Kl. 22:42: Bubbi byggir og söng-Garpur
Garpur (16 mánaða) er orðinn eitilhaður aðdáandi leikbrúðuþáttanna Bubbi byggir. Svo mikill aðdáandi að á vídeóleigunni í dag fékkst hann ekki til að sleppa hulstrinu utan af spólunni til að mamma hans gæti sýnt hana manninum á bak við afgreiðsluborðið og leigt spóluna.
Þetta var líklega í þriðja skiptið sem við leigðum svona spólu handa honum. Að auki hefur hann séð u.þ.b. einn Bubbaþátt í barnasjónvarpi RÚV. (Segið svo að það sé ekki til ást við fyrstu sýn.)
Garpur á eitt par af Bubbi byggir sportsokkum sem guð-má-vita-hver gaf honum (ég man aldrei svona hluti, argh, sorrí!) og hann er svo ánægður með myndina af Bubba á sokkunum að hann vill helst ekki vera í neinum skófatnaði sem skyggir á hetjuna hans, hann Bubba.
Fyrsta lagið sem Garpur söng sjálfur var "AAAHH, ah ah!" og hossaði sér ákaft með, en það útleggst á hans máli sem: "BUUUBBI byggir!". Þessu tók hann upp á eftir að hafa horft á nokkra Bubbaþætti í fyrsta skipti, dag einn snemma í seinasta mánuði.
Auðvitað kættumst við Stína yfir þessu ótrúlega mikilvæga þroskamerki hjá syni okkar, en því verður ekki neitað að gleðin var eilítið blendin í ljósi þess að drengurinn skyldi velja þetta lag fram yfir öll ótrúlega skemmtilegu, þjóðlegu og uppbyggilegu söngvana og kvæðin sem við höfðum kyrjað yfir honum næstum linnulaust alla daga síðan hann fæddist. Ónei, "AAAHH, ah ah!" var það og ekki orð um það meir. Þjóðleg og uppbyggileg barnakvæði eru hvort eð er bara fyrir fullorðna.
P.S. þó finnst mér við hæfi að bæta við að mér finnst fátt sætara en þegar Garpur liggur í rúminu, búinn að fá sér mjólkursopann fyrir svefninn og kominn með snudduna í munninn, og snýr sér að mér eða mömmu sinni alvarlegur í bragði, potar í okkur, tekur út úr sér snudduna og "umlar" með silkimjúku röddinni sinni nokkra að því er virðist handahófskennda, flata tóna til að biðja okkur um að syngja eitthvað fyrir sig. Það gjörsamlega bræðir mann.
Svör frá lesendum (6) |
Varanleg slóð
Kl. 21:56: Veggbrotið mikla árið 2003
Í dag fækkaði innveggjum í nýju íbúðinni okkar um einn. Sagarmennirnir komu, sáu og söguðu draslið burt á mettíma, og núna eigum við voða snyrtilegan stafla af ferköntuðum veggbútum á grasblettinum fyrir framan útitröppurnar.
Verkið var fagmannlega unnið en ansi dýr myndi samt Hafliði allur. Það er eins gott að maður gerir þetta ekki oft.
Núna þarf ég bara að finna tíma til að hreinsa skítinn af veggjum, gólfi og lofti, brjóta í burtu allar nibbur og útstæða fleti í sárinu, leigja tveggja-blaða sög og 5-10kg brothamar, saga, bora og brjóta fyrir nýjum raflögnum og veggdósum, fá æðislega rafvirkjann sem ég talaði við fyrr í kvöld til að koma og leggja rörin og dósirnar, steypa allt draslið fast, láta draga nýja víra í og tengja tengja tengja, spartla, pússa, spartla, pússa, spartla, pússa, og mála allt saman og fúska tímabundna línóleumdúksreddingu í sárið í gólfinu.
...og þá er ótalið að kaupa og setja upp nýja eldhússkáparöð í stað eldhússskápanna heitinna sem þurfti að farga í veggbrotinu mikla haustið 2003.
Hmmm... Var ég búinn að minntist á að við ætlum að flytja inn um helgina? Það hlýtur að möndlast einhvernveginn í bland við spartlið og raflagnafjörið. ;-)
Svör frá lesendum (1) |
Varanleg slóð
Kl. 15:53: Aðgengileg skipurit í HTML
Hvernig markar maður skipurit (hjá fyrirtæki eða stofnun) með hreinlegu HTML og CSS sem...
- Tryggir að skipuritið sé skiljanlegt þeim sem lesa það á lófatölvu eða í skjálesara eins og þeim sem blindir nota.
- Gefur kost á myndrænni framsetningu líkri þeirri sem fólk á að venjast í prentuðu efni.
Svör frá lesendum (4) |
Varanleg slóð
Kl. 10:04: Er Framfarir.net rasistafélag?
Það finnst mér. Magnús Holmstad svaraði um daginn gamalli dagbókarfærslu síðan í fyrra og segir það ekki rétt m.a. af því að á Framfarir.net (enginn linkur) komi hvergi fyrir orðið "kynþáttur".
Ég hugsaði aðeins málið og ákvað svo að svara honum fullum hálsi.
Hvað finnst ykkur? Er ég kannski bara þröngsýnn og fordómafullur?
Sendu þitt svar |
Varanleg slóð
Nýleg svör frá lesendum