Færslur Þriðjudaginn 11. nóvember 2003

Kl. 14:27: Einföldunarstofnun 

Eðvarð Jón Bjarnason skrifar á Deiglunni um Einfaldleikann og tillögur Edwards de Bonos um "Einföldunarstofnun" sem hefði það hlutverk að framkvæma kerfisgreiningar á lögum, reglugerðum og þjónustu hins opinbera og benda á hvað má einfalda.

Augljóst dæmi um kerfi sem hefði gott af slíkum uppskurði er skattakerfið. Það að jafnvel fólk sem er langt yfir meðalgreind skuli ekki skilja hvernig skattkerfið okkar virkar er augljóst merki um að eitthvað mikið sé að.

Sendu þitt svar | Varanleg slóð

Kl. 14:19: Gubbi gubbi 

Ég gær var ég veikur. Gubb. Hef ekki verið jafn illa veikur í háa herrans tíð. Ömurlegt ástand sem setti öll plön næstu daga úr skorðum.

Stína var líka illa veik, en slapp þó við að gubba. Garpi, sem tók út sitt gubb á um helgina, fannst ömurlegt að eiga zomie-foreldra sem vildu næstum ekkert leika við hann og höfðu ekki ekki einu sinni dug í sér að elda almennilegan mat handa honum.

Afrek gærdagsins var að skrölta nötrandi 150 metrana fyrir hornið upp í nýju íbúðna og ná í kók til að stilla magann. Það og að opna útihurðina fyrir flutningamönnunum sem komu með nýjan og óbeyglaðan ísskáp handa Loga.

Í dag líður okkur stórum betur. Smá hitavella er ekkert til að kvarta yfir.

Sendu þitt svar | Varanleg slóð


 

Flakk um vefsvæðið



 

Færslur í nóvember 2003

nóvember 2003
SunMán ÞriMið FimFös Lau
            1.
2. 3. 4. 5. 6. 7. 8.
9. 10. 11. 12. 13. 14. 15.
16. 17. 18. 19. 20. 21. 22.
23. 24. 25. 26. 27. 28. 29.
30.            

Nýleg svör frá lesendum

  • Óli Jens (Lausnin á efnahagsvandanum)
  • Már (Lausnin á efnahagsvandanum)
  • Kjartan S (Lausnin á efnahagsvandanum)
  • Pjétur G (Lausnin á efnahagsvandanum)
  • reynir (Lausnin á efnahagsvandanum)
  • Egill (Lausnin á efnahagsvandanum)
  • Stefán (Hugmynd að gjörningi)
  • mylotarg drug (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • mylotarg drug (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • pamelaanderson (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • Production Music (Íslenskt leitarvélaspam?)
  • ma801zda (Vélrænar þýðingar)
  • tapasbocnoa (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • Siggi Palli (Vélrænar þýðingar)
  • Bjarni Rúnar (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)

 

 

Yfirlit yfir þetta skjal

(Atriðin í listanum vísa á ákveðna kafla ofar á síðunni.)