Ódýr og góð íslensk vefhýsing?
Mér finnst vefhýsingin hjá Edal.is (einnig Edal.net) líta ansi spennandi út - og gleðst yfir því að loks sé komið íslenskt fyrirtæki sem hýsir heimasíður fyrir fólk og smærri fyrirtæki og rukkar ekki hönd og fót fyrir einfaldan hlut.
Getur einhver sagt okkur eitthvað af viti um þetta fyrirtæki? Stöðugleika? Reynslu? Kunnáttu? Þjónustu?
Már Örlygsson



Svör frá lesendum (4)
Bjarni Rúnar svarar:
Fyrsta sem ég rek augun í er að dótið er hýst í Bandaríkjunum. Það er ókostur ef a) þér er annt um bandvíddargjöld gesta þinna (eða þíns sjálfs), eða b) útlandasambandið bilar.
Það fer soldið eftir því hvað maður er að gera hvort þetta skiptir mann verulegu máli eða ekki.
7. nóvember 2003 kl. 12:00 GMT | #
Ágúst svarar:
Mér sýnist verðið bara vera mjög samkeppnishæft við bandaríska hýsingaraðila.
Maður veit samt ekki hvernig "notendaþjónustan" er hjá þessum aðila. Það skiptir auðvitað MJÖG miklu máli. Hostingmatters.com sem ég nota hafa t.d. staðið sig mjög vel hvað það varðar. Ég hefði ekki keypt þjónustuna hjá þeim í upphafi nema vegna þess að ég spurðist fyrir og fékk gott eitt að heyra um þá frá notendum. Gaman verður að sjá hvaða ummæli þessir fá frá notendum sínum. Ef þeir standa sig vel í því er þetta auðvitað ekki spurning fyrir einstaklinga og fyrir sem vilja ekki eyða of miklu fé í síðuna sína. Gott mál.
7. nóvember 2003 kl. 12:27 GMT | #
Ólafur Garðarsson svarar:
Vildi þakka ykkur fyrir að minnast á okkur hér. Býð öllum sem hafa áhuga að skoða vefinn okkar og spyrja okkur að vild um þjónustuna http://hysing.edal.is . Við kappkostum að veita góða þjónustu og þeir aðilar sem við leigjum vefþjóna hjá hafa reynst okkur mjög vel. Við prófuðum þá í nokkra mánuði áður en við buðum hýsinguna íslenskum "Lénsherrum". Það var dálítið japl og jaml að fá .is lénin til að virka vegna strangra grafna isnic en okkur tókst að klára það dæmi. Verðin sem hýsingaraðilar hafa verið að bjóða hér hafa að okkar mati ekki verið alveg í takt við það sem er að gerast út í heimi. Við sáum okkur því sóknarfæri á þessu sviði. Hér eru t.d. tveir vefir sem eru hýstir hjá okkur með góðum árangri: http://www.arangur.is og http://www.heimanam.is Þeir sem vilja prófa hýsinguna geta gert það í fimm daga endurgjaldslaust (gott að sjá stjórnborðið og alla aukakostina).
Kveðja,
Ólafur Garðarsson EDAL.NET
10. nóvember 2003 kl. 14:46 GMT | #
Freyr svarar:
Er þetta samt ekki að sækja vatnið yfir lækinn?
$ traceroute edal.is traceroute to edal.is (209.51.141.163), 30 hops max, 38 byte packets ... 4 ls-usa-gw.isholf.is (157.157.173.200) 58.585 ms 56.923 ms 21.605 ms 5 500.POS2-0.IG2.NYC4.ALTER.NET (157.130.0.201) 93.664 ms 118.823 ms 103.121 ms 6 589.at-5-0-0.XR3.NYC4.ALTER.NET (152.63.22.14) 177.620 ms 180.862 ms 169.299 ms 7 0.so-2-0-0.XL1.NYC4.ALTER.NET (152.63.17.29) 130.803 ms 174.842 ms 199.741 ms 8 0.so-5-3-0.XL1.NYC8.ALTER.NET (152.63.1.49) 146.813 ms 159.514 ms 99.711 ms 9 0.so-3-0-0.XR1.NYC8.ALTER.NET (152.63.19.30) 99.756 ms 242.037 ms 140.967 ms 10 183.ATM7-0.BR1.NYC8.ALTER.NET (152.63.23.169) 122.098 ms 119.870 ms 81.749 ms 11 200.atm6-0.pr1.lga2.us.mfnx.net (208.184.231.245) 136.951 ms 158.999 ms 138.893 ms 12 so-2-2-0.cr1.lga2.us.above.net (216.200.127.149) 140.592 ms 116.211 ms 118.943 ms 13 pos0-0.er1.atl4.us.mfnx.net (208.184.232.165) 160.042 ms 147.223 ms 168.114 ms 14 pos14-0.pr1.atl4.us.above.net (64.125.30.242) 196.247 ms 180.347 ms 278.915 ms 15 64.124.17.5.gnax.net (64.124.17.5) 141.486 ms 138.074 ms 137.639 ms 16 L3-ATL-3.gnax.net (209.51.131.78) 221.495 ms 160.115 ms 140.799 ms 17 209.51.141.163 (209.51.141.163) 136.873 ms 172.090 ms 161.005 ms
10. nóvember 2003 kl. 16:15 GMT | #