Færslur föstudaginn 7. nóvember 2003

Kl. 11:42: Ódýr og góð íslensk vefhýsing? 

Mér finnst vefhýsingin hjá Edal.is (einnig Edal.net) líta ansi spennandi út - og gleðst yfir því að loks sé komið íslenskt fyrirtæki sem hýsir heimasíður fyrir fólk og smærri fyrirtæki og rukkar ekki hönd og fót fyrir einfaldan hlut.

Getur einhver sagt okkur eitthvað af viti um þetta fyrirtæki? Stöðugleika? Reynslu? Kunnáttu? Þjónustu?

Svör frá lesendum (4) | Varanleg slóð

Kl. 09:13: Margar útgáfur af IE keyrandi í einu 

Joe Maddalone er með fínar leiðbeiningar um hvernig hægt er að keyra margar útgáfur af Internet Explorer í einu á sömu tölvunni án þess að nota flóknar og dýrar reddingar á borð við VMWare. Þetta er augljóslega alveg brilljant lausn fyrir svona vefforritunarnörd eins og mig.

Ég er ekki búinn að prófa þessar leiðbeiningar, þannig að ég veit ekki hvort þær virka jafn vel undir Windows 2000. Kemur í ljós.

Uppfært: Ryan Parman er búinn að útbúa ZIP skrár með öllu sem þarf og sannreyna að þetta virkar undir Windows 2000. Takk Andri fyrir ábendinguna.

Svör frá lesendum (3) | Varanleg slóð

Kl. 08:59: "Things of the Past" 

Test Weblog: Things of the Past Very funny!

Svör frá lesendum (1) | Varanleg slóð


 

Flakk um vefsvæðið



 

Færslur í nóvember 2003

nóvember 2003
SunMán ÞriMið FimFös Lau
            1.
2. 3. 4. 5. 6. 7. 8.
9. 10. 11. 12. 13. 14. 15.
16. 17. 18. 19. 20. 21. 22.
23. 24. 25. 26. 27. 28. 29.
30.            

Nýleg svör frá lesendum


 

 

Yfirlit yfir þetta skjal

(Atriðin í listanum vísa á ákveðna kafla ofar á síðunni.)