Ég fíla Leonard Cohen

Skrifað 4. nóvember 2003, kl. 15:28

Mikið ofboðslega finnst mér platan Ten New Songs með Leonard Cohen góð. Lögin sem heilla mig mest eru Here It Is, Thousand Kisses Deep, og By The Rivers Dark

Tom Waits er annar tónlistarmaður sem höfðar afskaplega sterkt til mín, og líkt og Cohen þá batnar Waits bara með árunum. Þannig finnst mér Mule Variations (1999) alveg sérlega góð. Að öðrum lögum á þeim diski ólöstuðum þá þykir mér Chocolate Jesus lang best.

Hvað finnst ykkur?


Svör frá lesendum (13)

  1. Borgar svarar:

    Hef aldrei verið sérstaklega mikið fyrir Cohen. Waits hefur hins vegar verið í miklu uppáhaldi hjá mér síðan ég var unglingur og eins og þú segir, hann batnar bara með árunum (þá er ég að meina mínum árum).

    Af Mule Variations eru mín uppáhalds Georgia Lee (best á plötunni) og Filipino Box Spring Hog og Chocolate Jesus.

    Önnur sem eru þess virði að kíkja á ef fólk þekkir þau ekki eru Fumblin' with the Blues af The Heart of Saturday Night (1974) (mitt upphalds Waits lag af minni uppáhalds Waits plötu), Romeo Is Bleeding af vanmetnu plötunni Blue Valentine (1978), Little Boy Blue af One from the Heart (1982) og meistaraverkið Lullaby af annars slappri Blood Money (2002).

    4. nóvember 2003 kl. 16:01 GMT | #

  2. Slimjimy svarar:

    já.. ég er aðdáandi beggja, Leós og Tomma, en ég verð að segja að eldra efni beggja höfðar meira til mín... þó textagerðir drengjanna verði sýst síðri, þá verður Tommi bara meira kreizí og Leó meira fyrir syntha... ég er að reyna að halda löppunum á jörðinni...

    4. nóvember 2003 kl. 16:12 GMT | #

  3. Óli Gneisti svarar:

    Loka italics tagginu...

    4. nóvember 2003 kl. 16:19 GMT | #

  4. Tóró svarar:

    Ég verð að viðurkenna að ég hef ekki stundað umfangsmiklar rannsóknir á meistara Waits, en platan Closing Time frá því merka ári '73 er í miklu uppáhaldi hjá mér. Djassað, fjölbreytt og flott. Solid plata.

    4. nóvember 2003 kl. 16:56 GMT | #

  5. Ágúst svarar:

    Ég geri ráð fyrir því að þú eigir Songs of Leonard Cohen líka. Ef ekki, þarf að kippa því í liðinn ;)

    Ættir að fá hana sjá Valda.

    4. nóvember 2003 kl. 18:16 GMT | #

  6. Erna svarar:

    Thegar eg er ad gera hluti a rannsoknarstofunni sem krefjast mikillar einbeitingar set eg Waits, Cave eda Cash i geislaspilarann, var einmitt ad hugsa um daginn ad eg thyrfti ad kynna mer Cohen lika...

    Mer finnst Mule Variations godur, en mer finnst Closing Time alltaf bestur, enda a eg lika godar minningar tengdar honum.

    4. nóvember 2003 kl. 23:44 GMT | #

  7. Már Örlygsson svarar:

    Ágúst, ég á Songs með Leonard Cohen. Hún er líka algjört hnossgæti.

    Af öllum Tom Waits plötunum sem ég á (eða hef afritað) þá finnst mér Small Change best. Kannski er það af því hún var fyrsta platan sem ég keypti með honum, reyndar ég keypti hana af því ég hafði heyrt hana og fílað hjá pabba hennar Stínu. Á henni eru það t.d. lögin ... blah... mér finnst þau öll æði.

    Mér finnst Cohen ansi mistækur, en þegar hann er góður þá er hann alveg ofboð góður. Svo góður að ég fæ hroll. Það er satt að Waits verður sífellt meira "kreizí" með árunum, en ég fíla bara kreizí mjög vel.. :-)

    5. nóvember 2003 kl. 01:09 GMT | #

  8. Óli Jens svarar:

    Jamm, their eru bádir meistarar. Thekki samt ekkert vodalega mikid til Cohen, á eina best of plötu med honum (gömul og gód lög thar á ferd eins og Sisters of Mercy etc etc), tónleikaplötu sem mér finnst ekkert sérsök og svo tvær gamlar og gódar sem ég man ekki hvad heita. Hinsvegar er Waits í algeru uppáhaldi hjá mér, thar af er lagid Closing Time í mestu uppáhaldi hjá mér en thó sérstaklega thegar lesid er upp ljódid America eftir Allen Ginsberg yfir thví, alger snilld! Thad var einhverstadar hægt ad ná í thad á mp3 formatti, man ekki hvar thví midur (hef ekki fundi thad á neinni plötu neinstadar).

    5. nóvember 2003 kl. 11:37 GMT | #

  9. Ólafur Sverrir svarar:

    Já, Waits og Cohen eru góðir. Annars mætti benda fólki á hina íslensku hljómsveit misery loves company ( http://miserylovescompany.tk/ ). Þeir eru búnir að vera duglegir að halda tónleika síðan í sumar. Á seinustu tónleikum hafa þeir verið að flytja heilar Tom Waits plötur, og hafa þeir flutt m.a. Small Change. Hvet alla til að fylgjast með þeim og mættu á næstu tónleika.

    5. nóvember 2003 kl. 15:54 GMT | #

  10. Magga Best svarar:

    Cohen og hans yndislega gyðingajarm er mér ákaflega kært, en Tom Waits þoli ég hinsvegar ekki, þó að 80% af öllum sem ég þekki séu aðdáendur hans. Mér finnst hann bara feik. Það er eitthvað við hann sem öskrar "garðabæjarsársauki". Ég er viss um að hann kemur heim til sín og biður konuna sína mjóróma um að kreista handa sér gulrótarsafa í stað þess að fá sér viskí... því viskíþamb er bara hluti af ímynd hans og ímyndin á að selja plötur. Berjandi lóminn að gaula eitthvað og þykjast vera í New Orleans. Annað er t.d. Cash sem var hreinlega vandræðapési en fann svo frelsarann og fór að lifa sig inn í þann pakka... og Cohen hefur alltaf verið með pabba frelsarans á heilanum og allt sem um hann hefur verið ritað. Cave líka. Hann er ekkert að búllsjitta með þetta. Ef þeir væru að feika eitthvað þá væru þeir ekki syngjandi um guð því guð er sko ekki í tísku og hefur ekki selt mikið af plötum fyrir þennan markhóp. En Tom Waits. Hann hefði frekar átt að verða veðurfræðingur in mæ hömbúl opiníon.

    6. nóvember 2003 kl. 21:13 GMT | #

  11. Eyvi svarar:

    Sem Waits fanatik held ég að ég geti nú alveg leiðrétt þig strax með mikinn grundvallarmisskilning, Magga. Jú, ég er viss um að Waits fer heim til sín í dag og biður um gulrótarsafa, en áður fyrr (allt til 1992, eða þar um bil) var hann mikill drykkjumaður, og datt meðal annars oft í það með Keith Richards. Auk þess var hann einn mesti reykingarmaður sem ég hef séð (ótrúlegt hvað einn maður getur reykt mikið í einu viðtali, og á einum tónleikum). Hann hætti öllu því rugli fyrir tíu árum eða svo, og þá einmitt fór hann líka að breytast sem textahöfundur og syngur einmitt, rétt eins og Cave, Cohen og Cash, mjög mikið um guð og ésú. Þannig að þú skalt nú kynna þér hlutina aðeins áður en þú ferð að rakka þá niður.

    Annars vil ég taka undir það að Waits er snillingur (reyndar Cohen og Cave líka, og Cash, þótt ég þekki ekki nógu vel til hans, því miður).

    Ég vil líka þakka Óla fyrir plögg á MLC, hljómsveitina mína, en fyrir þá sem hafa áhuga (sérstaklega Waits/Cohen/Cave aðdáendur) langar mig að benda á að við erum að fara að spila á Sirkus, sunnudaginn 16. nóvember kl. 22:00, og það er ókeypis inn, þannig að endilega kíkja og fá sér bjór og hlusta á músík. Óþarfi að sitja heima og láta sér leiðast yfir maður á mann á góðu sunnudagskvöldi!

    kk

    7. nóvember 2003 kl. 13:27 GMT | #

  12. Eyvi svarar:

    Einu langar mig að bæta við svar mitt til Möggu:

    Mér finnast þetta mjög skrýtin rök hjá þér, að Tom Waits sé "feik" af því að hann er ekki fyllibytta. Hver segir að maður verði að vera það bara af því að maður syngur um það? Ég syng um fyllerí, samt drekk ég ekki. Skrifar Stephen King verri bækur af því að hann er ekki sjálfur morðingi? Þetta gengur ekki alveg upp.

    Langaði bara að koma þessu að.

    7. nóvember 2003 kl. 14:19 GMT | #

  13. Herra Svavar svarar:

    Ekki er ég fyllibytta... :) Samt er ég obboslega real... eða það finnst mér... :) Nema hvað, Djöfull er gaman að heyra fólk tala vel um þá Waits, Cave, Cash og Cohen, þeir eru mestu hetjur...

    Áfram þeir!

    og áfram Logi Garpur og Már og Stína! Áfram Áfram!!!

    10. nóvember 2003 kl. 16:49 GMT | #

Þessum svarhala hefur verið lokað. Kærar þakkir til þeirra sem tóku þátt í umræðunni.


 

Flakk um vefsvæðið



 

Nýleg svör frá lesendum

  • Óli Jens (Lausnin á efnahagsvandanum)
  • Már (Lausnin á efnahagsvandanum)
  • Kjartan S (Lausnin á efnahagsvandanum)
  • Pjétur G (Lausnin á efnahagsvandanum)
  • reynir (Lausnin á efnahagsvandanum)
  • Egill (Lausnin á efnahagsvandanum)
  • Stefán (Hugmynd að gjörningi)
  • mylotarg drug (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • mylotarg drug (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • pamelaanderson (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • Production Music (Íslenskt leitarvélaspam?)
  • ma801zda (Vélrænar þýðingar)
  • tapasbocnoa (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • Siggi Palli (Vélrænar þýðingar)
  • Bjarni Rúnar (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)

 

 

Yfirlit yfir þetta skjal

(Atriðin í listanum vísa á ákveðna kafla ofar á síðunni.)