Færslur Þriðjudaginn 4. nóvember 2003

Kl. 15:28: Ég fíla Leonard Cohen 

Mikið ofboðslega finnst mér platan Ten New Songs með Leonard Cohen góð. Lögin sem heilla mig mest eru Here It Is, Thousand Kisses Deep, og By The Rivers Dark

Tom Waits er annar tónlistarmaður sem höfðar afskaplega sterkt til mín, og líkt og Cohen þá batnar Waits bara með árunum. Þannig finnst mér Mule Variations (1999) alveg sérlega góð. Að öðrum lögum á þeim diski ólöstuðum þá þykir mér Chocolate Jesus lang best.

Hvað finnst ykkur?

Svör frá lesendum (13) | Varanleg slóð

Kl. 12:29: "Öllum er illa við mig" heilkennið 

Ég þekkti einu sinni stelpu sem gekk um með þá grillu í höfðinu að hún væri best í öllu. Þetta var mjög sæt og ljúf stelpa, og hæfileikarík á mörgum sviðum, en eins og gengur og gerist þá var hún ekki best í öllu.

Eins og áður sagði þá var hún mjög sæt og ágætlega vaxin - hafði útlitið með sér eins og maður segir - og virtist vera afar upptekin af þeirri staðreynd. A.m.k. brást hún alltaf við allri gagnrýni (sérstaklega frá öðrum stúlkum) með því að setja upp á sig snúð, fara í fýlu og saka viðkomandi um að vera bara öfundsjúka út í sig (eða illa við sig) af því hvað hún væri falleg.

Og það var eiginlega viðkvæðið hjá henni að öllum væri illa við hana af því hvað hún væri ofboðslega falleg - þess vegna fengi hún ekki aðalhlutverkið í sýningunni, þess vegna væri hún ekki valinn besti dansarinn, þess vegna mætti hún ekki hæstu einkunnina, o.s.frv. o.s.frv...

Það sorglega var að hún trúði þessu statt og stöðugt sjálf. Og ekki nóg með það heldur hafði hún líka hátt um það við alla sem vildu heyra. Af þessum sökum var hún á endalausum hrakhólum félagslega, og ílengdist sjaldnast í neinum félagsskap nema litlum hópum sem samanstóðu af samviskubitnum undirlægjum sem flestar gáfust þó upp á henni að lokum.

Sagan af þessari stúlku rifjaðist upp fyrir mér þegar ég las þessa Ísraelsfrétt á Mbl.is og þessa dagbókarfærslu hjá Sindra.

Svör frá lesendum (4) | Varanleg slóð

Kl. 01:14: Dagur þrjú: eyrnabólga, þreyta og þunglyndi 

Þessi dagur var erfiður, bæði andlega og líkamlega.

Vaknaði í morgun með sára eyrnabólgu í öðru eyranu, næstum heyrnarlaus. Náði að afkasta slatta sen samt var það ekki nóg. Það minnkar afköstin okkar alveg heilmikið að hafa strákinn með okkur. (Sem betur fer er hann yndislegur.) Við stöndum tvö saman, með strákinn, fyrir framan fjall af sandi með tvær teskeiðar að vopni. Þannig er tilfinningin. Var ég búinn að minnast á hvernig eyrnabólga og flensuskítur getur farið í skapið á manni?

Í gær sunnudag var Siggi Sveinn svo indæll að kíkja á okkur og hjálpa við að plasta og kantskera, Hinrik Hoe fór með mér í Húsasmiðjuna og Hörpu Sjöfn og hélt í höndina á mér á meðan ég keypti málningu og dót, og Raggi snillingur labbaði með mér lið fyrir lið í gegnum hvað þyrfti að gera til að brjóta niður eldhúsvegginn sem snýr út að gagninum og útskýrði fyrir mér leyndardóma raflagna í svona húsum eins og okkar. Móa sæta tók svo Garp til sín í heimsókn í kvöld svo við Stína gátum einbeitt okkur af fullum krafti að málningunni og spartlinu. Takk, takk, takk!

Í dag fékk ég svo sticker-shock dauðans þegar gaurinn frá Sagtækni sagðist vilja fá tæplega 150þús. kr fyrir að saga burt vegginn góða (ca. 3 x 2,5 metrar). Mér reiknast til að hann hafi ætlað að rukka okkur a.m.k. 9 þús. kr á tímann (með tækjakostnaði) sem er alveg suddalega dýrt. Á morgun hringi ég í fleiri sögunarmenn og sé hvort einhver býður ekki lægra - helst mikið lægra.

Svo fluttum við lögheimilið okkar, létum Íslandspóst vita af flutningnum, rákum á eftir Vodafone með að færa gamla símanúmerið okkar og ADSLið á nýja staðinn, urðum okkur úti um raflagnateikningar að íbúðinni (þannig fæst hjá Borgarskjalasafni á 3. hæð Borgarbókasafnsins í Tryggvagötu), keyptum fleiri verkfæri í verkfærasafnið okkar og leituðum árangurslaust að hentugum barnahliðum til að setja efst og neðst í brattastiga sem liggur milli hæðarinnar og rissins í íbúðinni.

Eins tengdum við og stilltum af nýju þvottavélina og þurrkarann sem Logi keypti sér (minniháttar vatnsslys sem hefði getað farið verr) og sjáum núna fram á að geta grynnkað eitthvað á óhreynatausfjallinu sem hefur safnast upp í þvottavéla- og tímaleysi síðustu vikna.

Í öðrum fréttum er það helst að fyrsti dagur í dagömmuaðlögun hjá Garpi gekk vel. Rétt um klukkutíma session með mömmu sína sér við hlið allan tíman. Hafragrautur og fyrstu viðkynni af Munda litla 9 mánaða sem er líka hjá dagömmunni. Á morgun aðeins lengri heimsókn og þá ætlar Stína að skilja hann eftir í ca. 1,5 klukkutíma á meðan hún bregður sér að kenna magadans í Magadanshúsinu í þar sem Apple umboðið var á sínum tíma. Allt er það "part av programmet".

Á morgun þarf ég að mæta snemma og vinna allan daginn venjulegu vinnuna mína, og sjá svo til hvort mér takist ekki að hóa saman einhverjum góðum hóp í bjór, pizzu (enn eina ferðina, ojj), Iron Maiden í ferðatækinu, og málningarfjör fram eftir kvöldi.

Núna sofa, enda við dauðuppgefin.

Svör frá lesendum (9) | Varanleg slóð


 

Flakk um vefsvæðið



 

Færslur í nóvember 2003

nóvember 2003
SunMán ÞriMið FimFös Lau
            1.
2. 3. 4. 5. 6. 7. 8.
9. 10. 11. 12. 13. 14. 15.
16. 17. 18. 19. 20. 21. 22.
23. 24. 25. 26. 27. 28. 29.
30.            

Nýleg svör frá lesendum

  • Óli Jens (Lausnin á efnahagsvandanum)
  • Már (Lausnin á efnahagsvandanum)
  • Kjartan S (Lausnin á efnahagsvandanum)
  • Pjétur G (Lausnin á efnahagsvandanum)
  • reynir (Lausnin á efnahagsvandanum)
  • Egill (Lausnin á efnahagsvandanum)
  • Stefán (Hugmynd að gjörningi)
  • mylotarg drug (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • mylotarg drug (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • pamelaanderson (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • Production Music (Íslenskt leitarvélaspam?)
  • ma801zda (Vélrænar þýðingar)
  • tapasbocnoa (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • Siggi Palli (Vélrænar þýðingar)
  • Bjarni Rúnar (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)

 

 

Yfirlit yfir þetta skjal

(Atriðin í listanum vísa á ákveðna kafla ofar á síðunni.)