Fyrsti dagur í nýrri íbúð
Þetta er alveg geggjuð tilfinning að vera kominn með annan fótinn inn í nýju íbúðina. Og hún er svoo rúmgóð og þægileg í samanburði við það sem við erum vön. Kisurnar eiga eftir að fá víðáttubrjálæði, og til marks um það að við værum loksins komin með sæmilega rúmgott heimili þá ákváðum við að fjárfesta í ryksugu í fyrsta skipti á okkar 6 ára hjúskapartíð. Fram til þessa höfum við aldrei haft pláss fyrir svoleiðis dót og notast við fyrirferðalitlar rykmoppur og "döstböster" smásugur.
Ryksugan sem við keyptum í Heimilistækjum kom svo brotin og biluð upp úr kassanum, þannig að við þurfum að skila henni á mánudaginn.
Í dag gerðist eftirfarandi:
- Við Bjarni ferjuðum ískáp, þvottavél og þurrkara fyrir Loga upp í íbúðina hans á fjórðu hæð. Ísskápurinn (frá Heimilstækjum) kom dældaður úr kassanum þannig að við þurfum að skila honum á mánudaginn.
- Kommúnubíllinn nýttist æðislega í snattleiðangra strax á öðrum degi.
- Ég lakkaði fyrstu umferð yfir nýpússaða og nýbæsaða borðstofuborðið sem við fengum í Góða hirðinum um daginn.
- Við löbbuðum um íbúðina og pældum og skoðuðum og planlögðum.
- Við drógum nagla úr veggjum, skrúfuðum niður óþarfa gardínufestingar og spörtluðum í öll göt nema þau allra stærstu (þarf öflugra spartl í það)
- Hittum Skagastrandar-Heiðu og Bjarna, Unni og Eddu og sýndum þeim nýja slotið.
Í kvöld erum við þægilega þreytt og alveg ótrúlega hamingjusöm.
Sjö .... Níu .... Þrettán.
Már Örlygsson



Nýleg svör frá lesendum