Þórður forritari ákvað að gerast ritskoðarinn ógurlegi! eftir að ég vísaði á uppsagnarræpuna hans fyrr í dag. Það var ekki ætlun mín að hrella hann.
Mér finnst nýja færslan hans alveg bráðskemmtileg tjáning á hinni alræmdu bloggkrísu sem velflestir bloggarar virðast þurfa að kljást við fyrr eða síðar:
En fólk : hættið að lesa bloggið mitt....innrás á einkalíf mitt bara....haldiði að internetið sé einhver almannaeign?
...!... ...?... ...eeeh...
....ég ætla að þegja núna og fara út í sjoppu áður en ég segi eitthvað meira heimskulegt! :o)
:-)
Svör frá lesendum (7) |
Varanleg slóð
Þórður bloggar um uppsögn sína:
"Ég vinn við forritun, en er á bensínstöðvakaupi. Mér líður s.s. eins og verstu hóru nema ég er að hórast með það sem er inni í hausnum á mér og láta misnota það en ekki líkman minn. Ég hef náttúrulega aldrei hórast neitt að viti með líkamann minn og því veit ég ekki hversu slæmt það er en miðað við það að mér finnst hugur minn miklu meira virði en líkaminn þá hugsa ég að niðurlægingin sé svona svipuð, fyrir mig a.m.k."
Grey kallinn... ég vona að hann finni fljótt góða vinnu.
Viðbót: Mæli með því að fólk forritunar portfoliosíðu Þórðar. Hann hefur verið að gera áhugaverða hluti.
Svör frá lesendum (3) |
Varanleg slóð
Kl. 01:30: Aðgengileiki vefsvæða tilnefndra til Íslensku vefverðlaunanna 2003
Ég sat í dómnefnd Íslensku vefverðlaunanna í fyrra og veit því alveg hversu leiðinlegt það er þegar allir þykjast vita betur en dómnefndin hvaða vefir hefðu átt að vera tilnefndir og bla, bla. Ég ætla því ekki ekki að leggja dóm á hvort viðkomandi vefsvæði séu vel eða illa að tilfnefningunum komin, heldur aðeins að minna fólk á aðgengisþáttinn, en hann á það til að gleymast.
Hér er stutt og yfirborðskennd úttekt á aðgengileiki blindra og fatlaðra að þeim vefsvæðum sem eru tilnefnd í flokknum "Besti íslenski vefurinn":
- http://www.doktor.is :
- Vantar
alt=""
lýsitexta á sumar myndir.
- Javascript dauðans í sprettigluggahnöppum.
- Óaðgengilegar DHTML valmyndir.
- http://www.tonlist.is :
- http://www.hugi.is : - alveg merkilega fínn, enda tilnefndum við hann líka í fyrra :-)
- http://www.islendingabok.is/:
- Engin
alt=""
lýsitexti á mikilvægum grafískum hnöppum, og röng notkun lýsitexta á öðrum.
- http://www.simaskra.is :
- Engin
alt=""
lýsitexti á myndum, og mikill texti bundinn í myndir. Röng notkun lýsitexta annars staðar.
- Javascript dauðans í leitarhnöppum, innsláttarreitum og sprettigluggahnöppum.
- Óaðgengilegar DHTML valmyndir.
- Sjá eldri úttekt frá því í desember 2002...
Ég vona að þessir aðilar líti á tilnefninguna sem hvatningu til að gera enn betur og geri átak í aðgengismálum sinna vefsvæða. Sömuleiðis vona ég að veffyrirtækin í bransanum taki sér ærlegt tak. Sá útbreiddi skortur á faglegum metnaði og tæknilegri kunnáttu sem viðgengst í íslenska vefbransanum þegar kemur að svona einfaldri vefforritun, er okkur öllum til háborinnar skammar.
Auðvitað eru einstaka undantekningar frá þessari meginreglu um mentnaðar- og kunnáttuleysið, en þeir aðilar vita fullvel hverjir þeir eru og þurfa ekkert sérstakt pepp hér og nú.
Við getum öll gert betur.
Svör frá lesendum (2) |
Varanleg slóð
Nýleg svör frá lesendum