Flutningar fyrir dyrum

Skrifað 25. september 2003, kl. 14:18

Á mánudaginn fluttum við fyrstu kassana og megnið af húsgögnunum okkar í nýju íbúðina hans Loga, en hann var svo góður að leyfa okkur að nota hana þar til við fáum afhent í lok október. Sófasetti, borðum, stólum, ruslapokum fullum af fötum, bókakössum o.fl. var troðið inn í meðalstóran sendibíl og ferjað upp á fjórðu hæð í Brautarholtinu. (Takk Bjarni fyrir hjálpina!)

Í dag búum við í alveg risastórri, næstum galtómri stofu með tölvu, sjónvarpi, rúmi og kattasandskassa. Mjög skemmtileg tilbreyting. (Hver þarf s.s. borð og stóla?)

Pökkunarvinnan heldur áfram á hverju kvöldi, og nú sér fyrir endan á þessu. Það eru allar líkur á að við flytjum út og afhendum nýja eigandanum, Sigga Sveini, lyklavöldin að Grettisgötuhöllinni um helgina.

Nokkrir minnispunktar: Tala við fólkið í Stangarholtinu um að fá að flytja lögheimilið okkar beint þangað, láta loka tímabundið fyrir síma og ADSL, flytja lögheimilið... hverju er ég að gleyma?

P.S. Já við fengum grænt ljós á íbúðarkaupin úr greiðslumatinu. :-)


Meira þessu líkt: Húsnæði/heimili.


Svör frá lesendum (5)

  1. Tryggvi R. Jónsson svarar:

    Getur látið breytingu á lögheimili gerast á ákveðnum degi fram í tímann. Sannreyna svo að stofnanir sem eru í reglulegum póstsamskiptum við heimilið uppfæri. Tryggir árangur að hringja einn rúnt og ýta við þessu. Muna svo að fara inn á vef Póstins og breyta póstfangi, þá áframsendist í 3 mánuði á milli staða. Breyta heimilisfangi í símaskrá (Þínar Síður hjá LSÍ) og svo auðvitað að muna að flytja ;)

    25. september 2003 kl. 15:28 GMT | #

  2. Tóró svarar:

    Panta aflestur á rafmagnið. Man ekki eftir fleiru...

    25. september 2003 kl. 15:57 GMT | #

  3. Tryggvi R. Jónsson svarar:

    Þarf ekki einu sinni að panta aflestur lengur. Það þarf bæði að gera þetta fyrir rafmagn og vatn þar sem slíkt er sér fyrir eignina. Þetta er hægt að gera á heimasíðu OR og orðin sjálfsafgreiðsla á þessu hvað varðar aflestur. Margt hægt að gera í gegnum netið en ekki að breyta lögheimili hjá Þjóðskrá. Það er ennþá fax-based stofnun.

    25. september 2003 kl. 23:02 GMT | #

  4. SiggiSveinn svarar:

    Uhm... með ADSL tenginguna. Spurning um að, þar sem við erum með sama þjómustuaðilan, hvort það sé hægt að sannfæra þá um það að þegar þeir loki ADSL-ið ykkar þá opni þeir ADSL-ið mitt í leiðinni.

    26. september 2003 kl. 00:34 GMT | #

  5. Már Örlygsson svarar:

    Tryggvi, í sambandi við aflestur af mælum, þá gerist þess valla þörf. Hinn árlegi aflestur er nýbúinn, og við afhendum á mánaðarmótum, þannig að við borgum bara reikninginn fyrir september og Siggi tekur við eftir það. Mismunurinn á milli áætlunar og raunnotkunar í einn mánuð er svo hverfandi að það tekur því ekki að gera sér rellu út af því.

    Siggi, jú góð hugmynd.

    26. september 2003 kl. 10:29 GMT | #

Þessum svarhala hefur verið lokað. Kærar þakkir til þeirra sem tóku þátt í umræðunni.


 

Flakk um vefsvæðið



 

Nýleg svör frá lesendum

  • Stefán (Hugmynd að gjörningi)
  • mylotarg drug (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • mylotarg drug (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • pamelaanderson (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • Production Music (Íslenskt leitarvélaspam?)
  • ma801zda (Vélrænar þýðingar)
  • tapasbocnoa (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • Siggi Palli (Vélrænar þýðingar)
  • Bjarni Rúnar (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • Unnur María (Vélrænar þýðingar)
  • Már (Vélrænar þýðingar)
  • Valdís (Vélrænar þýðingar)
  • Már (Vélrænar þýðingar)
  • Hrafnkell (Vélrænar þýðingar)
  • Már (Vélrænar þýðingar)

 

 

Yfirlit yfir þetta skjal

(Atriðin í listanum vísa á ákveðna kafla ofar á síðunni.)