Taktu öryggisafrit af gögnunum þínum fíflið þitt!
Bjarni skorar á Íslendinga að gera átak í öryggisafritun gagna sinna. Ég tek undir það með honum.
Fyrir tveimur dögum keypti ég mér nýjan 120GB harðan disk í heimilistölvuna ásamt diskasleða sem leyfir mér að taka í handfang og kippa diskinum úr tölvunni með einu handtaki þegar ég er búinn að afrita öll gögnin á tölvunni inn á hann, og setja hann í gæslu í öðrum bæjarhluta.
Við eigum einhverja tugi þúsunda stafrænna ljósmynda, erum búin að eyða einhverjum vinnuvikum samanlagt í að koma tónlistarsafninu okkar á stafrænt form (.ogg) og erum með bókhald, dagbókarfærslur, vinnugögn og allan fjandann annan á tölvunni.
Jarðskjálftar, eldsvoðar, innbrot, vélbúnaðarbilanir, mannleg mistök, og margt fleira getur valdið því að þessi stóri massi af ómetanlegum persónulegum gögnum glatist í einu vetfangi. Það væri bara heimska að eiga ekki allt í tvíriti a.m.k. og helst í þrí- eða fjórriti.
Meira þessu líkt: Hugbúnaður, Varanleiki & URL.
Már Örlygsson



Svör frá lesendum (3)
JBJ svarar:
Hvar fæst og hvað kostar svona diskasleði ?
23. september 2003 kl. 11:49 GMT | #
Már Örlygsson svarar:
Ég keypti mitt í Tæknibæ í Skipholti á 2500kr. Ég hugsa að flestar tölvuíhlutaverslanir selji svona á ca. 2000-4000kr
23. september 2003 kl. 12:00 GMT | #
Hrafnkell svarar:
en eruði vissir um að almennir IDE diskar styðji/séu hannaðir fyrir "hotplug"? Hvað með IDE reklana í stýrikerfum ykkar? Ef svo er ekki gæti það eitt og sér bara rústað gögnunum ykkar...
23. september 2003 kl. 18:00 GMT | #