Greiðslumat

Skrifað 19. september 2003, kl. 15:33

Fyrr í dag fórum við Stína í bankann, lögðum fram skattaskýrslur, launaseðla og alls kyns pappíra með umsókn um greiðslumat fyrir nýju íbúðina. Þetta hafði tafðist aðeins hjá okkur út af önnum hjá endurskoðandanum okkar sem þurfti að koma skikki á skattskýrsluna okkar frá því í fyrra. (Mási slugsi að skila ekki skýrslunni á réttum tíma, ojj, ojj...)

Þetta er núna allt komið í réttan farveg og niðurstaða ætti að fást um miðja næstu viku.

Það er svoldið fyndið að af því við höfum aldrei farið í greiðslumat áður (gamla íbúðin okkar var ósammþykkt) þá er ekki laust við að ég sé með smá vott af prófkvíða. Kjánaleg tilfinning.

Annars er það að frétta að ónefnd hjón sem eru perluvinir okkar Stínu voru einnig að fara í greiðslumat í dag. Þau skrifuðu einnig undir kauptilboð í nýja íbúð á nákvæmlega sama degi og við Stína samþykktum gagntilboðið í Stangarholtið, sem var einmitt nákvæmlega sami dagur og perluvinur okkar Logi skrifaði undir kauptilboð fyrir nýju íbúðina sína. Það má segja að hjörtu okkar allra slái í takt í íbúðamálum.

Einn, tveir og skulda!


Meira þessu líkt: Húsnæði/heimili.


Þessum svarhala hefur verið lokað. Kærar þakkir til þeirra sem tóku þátt í umræðunni.


 

Flakk um vefsvæðið



 

Nýleg svör frá lesendum

  • Stefán (Hugmynd að gjörningi)
  • mylotarg drug (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • mylotarg drug (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • pamelaanderson (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • Production Music (Íslenskt leitarvélaspam?)
  • ma801zda (Vélrænar þýðingar)
  • tapasbocnoa (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • Siggi Palli (Vélrænar þýðingar)
  • Bjarni Rúnar (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • Unnur María (Vélrænar þýðingar)
  • Már (Vélrænar þýðingar)
  • Valdís (Vélrænar þýðingar)
  • Már (Vélrænar þýðingar)
  • Hrafnkell (Vélrænar þýðingar)
  • Már (Vélrænar þýðingar)

 

 

Yfirlit yfir þetta skjal

(Atriðin í listanum vísa á ákveðna kafla ofar á síðunni.)