Jósi Diss og skrýtna göngulagið mitt
Alltaf hægt að treysta Jósa til að vera fimur í dissinu. Leiðinlegi ég og skræki Rökkvi fengum smá sýnishorn frá honum í umræðu gærdagsins. Jósi stóð sig bara miklu, miklu betur í þessu en Rökkvi. Gaman að því! :-)
Annars finnst mér alltaf minna fyndið að gera grín að einhverju sem fólk getur ekkert gert að -- t.d. rödd þess eða vaxtarlagi. Hins vegar eru gráu svæðin mjög stór í þeim málum. T.d. þyki ég víst hafa ansi sérstætt göngulag, en samt hef ég aldrei getað fengið botn í það hvað er svona sérstætt við það. Athugasemdirnar sem ég hef fengið eru svo misvísandi að ég hef gefist upp á að skilja "vandamálið" og geng því bara eins og mér finnst best.
Ég hef alla tíð gengið mikið og hlaupið. Ég lít á fæturna á mér sem mitt farartæki, og sem slíkir þá virka þeir bara ansi vel. Það eina sem ég veit fyrir víst er að fólk virðist þekkja mig langar leiðir á göngulaginu, og eftir svolitlar vangaveltur og sálarkrísur út af því þá hef ég komist að þeirri niðurstöðu að það sé bara allt í lagi að hafa einkennandi göngulag.
Mér finnst gott að vera svolítið skrýtinn. Skrýtnu atriðin eru það sem gera mig að mér.
Meira þessu líkt: Lífssýn, Sögur og minningar.
Már Örlygsson



Svör frá lesendum (5)
soffi svarar:
Einkennandi göngulag er ekkert afbrigðilegt, fólk segist einnig þekkja mig langar leiðir af göngulaginu, samt segir það mig ekki hafa neitt spes/skrítið göngulag. It's how you do it not how you do it.
18. september 2003 kl. 10:07 GMT | #
Unnur svarar:
Immitt... það er soldið af fólki sem ég þekki langar leiðir af göngulagi án þess að það þýði að það sé með asnalegt göngulag. Reyndar á þetta fólk það sameiginlet að flest er þetta fólk sem ég þekki nokkuð vel, hitti oft allavega.
18. september 2003 kl. 10:32 GMT | #
Ágúst svarar:
Svo getur maður þekkt suma af "taktinum" í göngulaginu. M.ö.o. þá heyrir maður þegar þeir koma gangandi. Suma þekki ég alltaf á "taktinum" í göngulaginu. Sumir eru stórstígir, sumir ganga hægar eða hraðar en aðrir, sumir stíga fastar til jarðar en aðrir o.s.frv.
18. september 2003 kl. 11:26 GMT | #
Svavar svarar:
Þitt göngulag er sosum ágætt, en þú ættir að sjá Jón Geir Trommarann minn! Hann labbar oft eins og hann sé að tromma á fullu með öllum skönkum, það er geðveikt fyndið! En í fúlustu alvöru, mér finnst þú bara labba voða fínt Már :)
18. september 2003 kl. 11:56 GMT | #
soffi svarar:
Þú gætir kannski hent inn svona 5 mínútna myndbandi af þér að labba í td. Kringlunni?
18. september 2003 kl. 13:25 GMT | #