Lýst eftir týpísku bloggi - Er ég leiðinlegur?
Lámenningar-Rökkvi hefur undanfarið tekið fyrir íslenska bloggara og skrifað "Týpískt [NAFN-Á-BLOGGARA] blogg" þar sem hann gerir grín að stíl, umfjöllunarefni, etc. hjá viðkomandi. Fórnarlömbin hafa hingað til verið tvö: Svansson og Betarokk.
Ég skrifaði athugasemd við síðuna hans Rökkva um daginn og heimtaði að fá svona útreið skrifaða um mig. Rökkvi gaf í skyn að hann ætlaði að hugsa málið.
Í gær birtist svo svar frá Rökkva hér í dagbókinni og lýsir því yfir að hann sjái engar forsendur til að taka mig fyrir því ég sé svo ...eh... lesið bara það sem Rökkvi skrifaði. Er ég svona ógeðslega fullkominn að það sé ekki hægt að dissa mig eða er þetta merki um að bloggið mitt sé geðveikt leiðinlegt? (skyld pæling Warnock's Dilemma)
Nú muna þeir sem fylgdust með íslenska bloggheiminum fyrir 2-3 árum líklega eftir nokkrum ágætlega heppnuðum diss-tilraunum sem Skratta-Magnús og Geir Ág. beindu til mín. Því skýtur sú spurning óhjákvæmilega upp kollinum hvort Rökkvi sé kannski bara ekki nægilega hugmyndaríkur til að dissa mig? ;-)
Spurning: Hvernig mundi "Týpískt Rökkva-blogg" líta út? Einhverjar hugmyndir?
Uppfært dagin eftir: Rökkvi svarar í góðu glensi.(Af því síðan hans býður ekki upp á að benda á stakar færslur, þá verður þessi forsíðuvísun að duga.)
Már Örlygsson



Svör frá lesendum (10)
Unnur svarar:
Bwahahahah... ég er svo kulin á hjartanu eftir að hafa hlustað á ykkur tala um tölvudót í mörg ár að ég sé alveg fyrir mér að það væri hægt að skrifa mjög skemmtilega paródíu á bloggunum ykkkar Bjarna ;p En ég líka þekki ykkur sem þýðir að mér finnst þið áhugaverðir... hmmm....
17. september 2003 kl. 10:21 GMT | #
Bjarni Rúnar svarar:
Ég held að þú sért alveg álíka leiðinlegur og ég. :-)
Því miður þá er það frekar slæmt, því ég er víst mjög, mjög leiðinlegur (sérstaklega í opna hlutanum). Fullt af fólki sem hefur gaman af því að umgangast mig dags daglega hefur sagt mér að það nenni oft ekki að lesa síðuna mína því hún getur verið svo mikið torf... blogg sem eru mjög nörduð og fagtengd eru bara áhugaverð fyrir mjög afmarkaðan hóp.
Mér finnst það einmitt allt í lagi. :-)
Ég held það sé gott að sættast við leiðindapúkann í sér, því annars fer maður bara að eltast við vinsældir og rembast við að halda teljaranum tikkandi, í staðinn fyrir að skrifa um það sem liggur manni á hjarta.
17. september 2003 kl. 10:22 GMT | #
Óli Gneisti svarar:
Ég játa að sumar (ekkert sérstaklega margar) færslurnar þínar eru þannig að ég hleyp alveg yfir þær, það eru þá einmitt eitthvað af þessum tæknilegu færslum. Á móti kemur að reglulega finnst mér eitthvað af þessum tæknilegu færslum heillandi. Þú nærð allavega að vera á rssblogglistanum sem kemur á heimasíðunni minni.
17. september 2003 kl. 10:22 GMT | #
Már Örlygsson svarar:
Hehe :-) Mér þykir það þokkalega í lagi að heiminum þyki bloggið mitt 90% óáhugavert. Ég er að þessu 90% fyrir sjálfan mig. Af og til skrifa ég eitthvað sem gagnast fólki og vekur til umhugsunar um málefni sem mér þykja skipta máli og það virkar eins og RIIISA bónus fyrir mig. Meira þarf ekki til að halda mér glöðum.
En svo við snúum okkur aftur að Rökkva, þá sýnist mér að hann sé sjálfur alveg príma efni í diss-færslu. Ég er bara ekki viss um að ég nenni að skrifa svoleiðis færslu. Kannski að Rökkvi geti tekið að sér að skrifa hana um sjálfan sig? :-)
17. september 2003 kl. 10:29 GMT | #
Tryggvi R. Jónsson svarar:
Ég verð nú að vera sammála þér Már í þetta skiptið, gerist nú ekki oft. Ég skrifa +90% fyrir sjálfan mig ,ef aðrir hafa ánægju/gaman/gagn af líka þá er það fínn bónus. Held að dæmigerð færsla hjá Rökkva yrði ferlega tómleg ef hann gerir ekki annað en að stæla aðra ;)
17. september 2003 kl. 12:32 GMT | #
Ágúst svarar:
Iss, ég er sko leiðinlegri en þið allir TIL SAMANS! :-þ
17. september 2003 kl. 19:47 GMT | #
Jósi svarar:
Týpískt blogg frá þér væri t.d. :
Ég hef verið að pæla í réttri notkun á texta undanfarið. David Kottke, Lawrence Merholz, Peter Lessig og fleiri usability/html-gúrúar með flott nöfn eru sammála mér í því að réttast sé að meginmál á vefsíðu sé í læsilegri stærð OG að fyrirsagnir séu í stærri eða meira áberandi stöfum. Meðfylgjandi er uppskrift að kórréttri HTML/CSS aðferð við að skilgreina texta.
Garpur sonur minn er ekki alveg farinn að geta gripið bolta en hann er samt fallegastur í heimi.
17. september 2003 kl. 21:34 GMT | #
Jósi svarar:
Þó að það væri auðvelt að skrifa eitthvað eins og "Allir aðrir en ég eru ljótir og leiðinlegir. Ég var á wrestling æfingu." sem týpískt Rökkvablogg, þá finnst mér að bloggsíminn gæti komið að góðum notum við að gera grín að Rökkva. Þegar við vorum allir í MH þá varð fólki tíðrætt um skræka rödd Rökkva. Ef fólk vill taka hann fyriri þá ætti það að taka upp sjálft sig (með rödd eins og 14 ára strákur í mútum) segjandi eitthvað eins og "wrestling, wrestling..."
17. september 2003 kl. 21:40 GMT | #
Már Örlygsson: Jósi Diss og skrýtna göngulagið mitt
18. september 2003 kl. 09:51 GMT | #
Rökkvi svarar:
Uss Jósi. Ég sem hélt að vel gefinn smekkmaður eins og þú myndi skilja menningarlegt og fagurfræðilegt gildi wrestling. Og ég er ekki skrækur þegar ég er að herma eftir Hulk Hogan eða Þorvarði Helgasyni.
19. september 2003 kl. 14:43 GMT | #