Hryđjuverk eđa árásir?
Logi sagđi mér um daginn ađ Reuters fréttastofan hefđi ađ yfirlýstri stefnu ađ nota ekki orđiđ "hryđjuverk" (e. terrorism) í sínum fréttum ţví ţađ vćri svo gildishlađiđ. Ţannig kölluđu ţeir baráttu Palestínumanna ekki hryđjuverk, og ekki heldur árásirnar á WTC fyrir tveimur árum. Mér fannst ţađ sanngjörn og eđlileg stefna fyrir hlutlausa og faglega fréttastofu.
Snögg leit á Google sýnir berlega ađ ţessi ákvörđun hefur fariđ illilega fyrir brjóstiđ á Bandaríkjamönnum.
Norman Solomon gagnrýnir hins vegar bandaríska fjölmiđla fyrir hrćsni í grein sem ber titilinn "Media Spin Revolves Around the Word 'Terrorist'"
"It's entirely appropriate for news outlets to describe the Sept. 11 hijackers as 'terrorists' -- if those outlets are willing to use the 'terrorist' label with integrity across the board. But as long as news organizations are not willing to do so, the Reuters policy is the only principled journalistic alternative."
Hver er stefna íslenskra fréttastofa í ţessum málum?
Meira ţessu líkt: Pólitík, Stríđ - Friđur.
Már Örlygsson



Svör frá lesendum (3)
Einar Örn svarar:
Ég er sammála ţví sem Solomon segir.
Hins vegar er ég ekki sammála Reuters. Ég tel ađ árásirnar á WTC séu hryđjuverk í öllum ţeim skilningi, sem ég legg í merkingu orđsins.
Ţađ er hins vegar rétt ađ ţetta orđ hefur veriđ notađ í mjög svo pólitískum skilningi til ađ réttlćta ađgerđir, ekki bara af Bandaríkjamönnum, Rússum, og mörgum fleiri ţjóđum.
12. september 2003 kl. 10:22 GMT | #
Már Örlygsson svarar:
Ég fć ekki betur séđ en ađ "hryđjuverk" sé í flestum tilfellum - ef ekki öllum - afstćtt hugtak. Ţađ veldur ţví ađ öll notkun ţess verđur gildishlađin.
Reuters er fréttastofa sem starfar í öllum heimshlutum og markhópurinn ţeirra er fólk úr öllum heimshlutum. Ţeir geta í raun ekki leyft sér ađ hlađa fréttir sínar gildismati eins hóps frekar en annars.
BTW, í stađ orđanna "hryđjuverk" og "hryđjuverkamađur" ţá nota ţeir önnur og hlutlausari orđ á borđ viđ "árásir", "sjálfsmorđsárásir", "árásarmađur", "sjálfsmorđsflugmenn", etc. etc.
12. september 2003 kl. 10:32 GMT | #
Sindri svarar:
Ţessi pćling minnir mig ađ vangaveltu mína um merkingu "Shock and Awe" frá ţví um daginn: http://sindri.nord.is/index.php?p=89956172&c=1
12. september 2003 kl. 11:07 GMT | #