Friðrik Skúlason á Slashdot - mér að kenna
Slashdot.org bendir á opið bréf Friðriks Skúlasonar þar sem hann gagnrýnir samkeppnisaðila sína í tölvupóstvírusa bransanum fyrir að auka bara á vandann af Sobig.F og álíka tölvuormum í stað þess að reyna að leysa hann. Ég frétti af þessu bréfi á síðunni hans Bjarna.
Gaman að sjá íslenskt fyrirtæki vera Slashdottað í tætlur, gaman sjá faglegt og málefnalegt diss milli fyrirtækja í samkeppni, og gaman að sjá frétt eftir sjálfan sig birtast á Slashdot í fyrsta skipti (eða er þetta kannski annað skiptið...? helv. gullfiskaminni).
Ég velti fyrir mér hvað ég sæi ef ég kynni að greppa kryptísku Apache loggana á Klaka... :-)
Már Örlygsson



Svör frá lesendum (9)
Tryggvi R. Jónsson svarar:
Ég vona bara að vefþjónninn hjá FRISK valdi álaginu ... það er mjög algengt að síður sem ,,lenda" á /. fari niður.
11. september 2003 kl. 18:09 GMT | #
Már Örlygsson: Hin fullkomna Slashdot frétt
11. september 2003 kl. 18:29 GMT | #
Erlendur S. Þorsteinsson svarar:
Ég hef engar áhyggjur af því að vefþjónarnir okkar standi sig ekki (en e.t.v. smá áhyggjur af Línu.Net, ISP-anum okkar...).
11. september 2003 kl. 18:49 GMT | #
Bjarni Rúnar svarar:
Iss, þetta sést varla á álagsgröfunum. Ég hélt í smá stund að það væri eitthvað spennó að gerast, en þá var það bara þessi venjulegi kl. 18:00 "allir að athuga hvort það þurfi að uppfæra eitthvað" toppur.
Lélegt!
Þetta slashdot-effect er greinilega bara eitthvað sem kjánar með þunga gagnagrunnsdrifna kjána-vefi lenda í. En þetta er statísk síða spegluð af þremur öflugum Linux dollum... ;-)
11. september 2003 kl. 19:32 GMT | #
Salvör svarar:
Ég bendi nemendum mínum á að nota web analyser til að tékka á síðunum, http://www.websiteoptimization.com/services/analyze/ skv. því er frisk.is 64k Athyglisvert að RÚV www.ruv.is forsíðan er yfir 300 k sem er svakalegt fyrir forsíðu þar sem margir koma t.d. að skoða dagskrá
11. september 2003 kl. 19:47 GMT | #
Freyr svarar:
Bjarni: jamm, eins algengt og það er að slashdotta síður í klessu, þá eru þetta hreint og beint illa uppsettir vefþjónar/gagnagrunnar sem valda þessu. Ég las einmitt grein á /. (nenni ekki að finna URL, sorrý) um það hvernig væri hægt að nota gamla vél með ekkert allt of mikið af resoursum sem mundi léttilega standast the /. effect.
Salvör: Hvað þá með mest sóttu heimasíðu á Íslandi, www.mbl.is? 178.23 sekúndur að sækjast á 14.4 módemi.
11. september 2003 kl. 22:49 GMT | #
Tryggvi R. Jónsson svarar:
Gott að sjá að FRISK lifði af. Ég man síðast þegar einhver sagði "Það verður ekkert álag á þessum vef" og þá fór aðeins öðruvísi ;-) Reyndar virðist /.-un vera einnig tiltölulega algeng á litlum vefum sem eru hýstir hjá aðilum sem eru með bandvíddartakmarkanir, þ.e. þegar búið er að sækja 100Mb á mánuði frá þessum vef þá lokast hann. Já og svo auðvitað silly silly Java-crapletvefir :-)
12. september 2003 kl. 10:25 GMT | #
Már Örlygsson svarar:
Tryggvi, iss þú ert bara með Javafordóma. Vel skrifaðar Java-byggðar veflausnir geta verið að skila alveg brjáluðum afköstum - jafnvel þótt síðan sé útbúin í rauntíma. Það eina sem þarf er að velja almennilegan Java vefþjón.
12. september 2003 kl. 10:39 GMT | #
Tryggvi R. Jónsson svarar:
Ég skal vera fyrstu til að viðurkenna fordóma mína gagnvart Java-veflausnum og bara Java forritunarmálinu almennt. Ég tek hins vegar öllum dæmum og rökum um hið gagnstæða fagnandi :-)
13. september 2003 kl. 02:23 GMT | #