Stóra DHTML áskorunin
Ég hef oft og mörgum sinnum í gegnum tíðina pirrað mig á því hvað DHTML felligardínuvalmyndir eru alltaf...
- ...óaðgengilegar (fötluðum, leitarvélum, frumstæðum vöfrum).
- ...sóðalegar hvað varðar HTML kóðann í valmyndunum.
- ...þungar og luralegar í hleðslu (10-20KB+ javascript, etc. etc.)
Ég sá fyrir skemmstu nokkuð áhugaverða lausn sem virkar fínt sem svona lóðrétt smellivalmynd sem opnast og stækkar/síkkar eftir því sem á hana er smellt:
Ég er búinn að prófa mig áfram með að útvíkka þessa DHTML lausn þannig að hún virki fyrir láréttar valmyndir og mouseover valmyndir, með sæmilegum árangri, en samt er langt í land með að útkoman sé almennilega frambærileg. Málið er að ég er ekki nægilega klár javascript forritari. (hei, maður verður að fá að vera lélegur í einhverju ;-)
Því langar mig að setja þetta vandamál mitt fram sem opinbera áskorun til allra þeirra sem þykjast vera sleipir í DHTML, CSS og javascript í þeirri von að útkoman verði eitthvað sem allir geta grætt á.
- Höfundarnir fá ómælda frægð og virðingu (mína a.m.k.).
- notendur vefsvæðanna okkar fá léttari og aðgengilegri valmyndir.
- við vefforritararnir verðum fljótari að útfæra góðar DHTML valmyndir.
Áskorunin er því: Getur þú betrumbætt þessar DHTML valmyndir?
Með von um spennandi viðbrögð.
Meira þessu líkt: Accessibility, Forritun, HTML/CSS.
Már Örlygsson



Svör frá lesendum (8)
Bjarni Rúnar svarar:
Þú vilt ekki krefjst þess að svona valmyndakóði sé GPLaðar, því það myndi leiða af sér að vefir sem notuðu þær yrðu að vera GPLaðar líka - eitthvað sem ég hugsa að fæstir eigendur vefsíðna myndu geta samþykkt.
Þú vilt í raun bara BSD leyfi eða mögulega LGPL.
11. september 2003 kl. 00:47 GMT | #
Már Örlygsson svarar:
Ágætt umhugsunarefni. Ég er búinn að breyta textanum þannig að þar er hvergi minnst á GPL lengur.
Hins vegar er alls ekkert augljóst hvað er "GPLaða forritið" og hvað er annað og ótengt hugverk á vefsíðum. Þetta snertir t.d. notkunarleyfin hjá Creative Commons sem eiga fyrst og fremst að ná til textans á síðunum en í raun er óljóst hvar textinn endar og hvar HTML kóðinn byrjar, etc. etc.
Lögfræði er kjaftæði. Best að hafa hlutina einfalda og opna.
11. september 2003 kl. 01:22 GMT | #
Sigga Sif svarar:
Sniðugt! Má ég koma með eina ábendingu? Það mætti laga valmyndina þannig að fellidótið hverfi aftur ef músin fer af, eða ef maður smellir utan hennar!
Hvað er annars Dé-ið í DHTML?
11. september 2003 kl. 10:30 GMT | #
Már Örlygsson svarar:
Sigga: ekki segja okkur, sýndu okkur. :-)
D þýðir Dynamic.
11. september 2003 kl. 10:52 GMT | #
Andri Sigurrðson svarar:
Líst vel á þetta .. skoða betur í kvöld :)
11. september 2003 kl. 17:33 GMT | #
Freyr svarar:
Sigga Sif, ef þú ert að tala um smellivalmyndina, þá fer fellivalmyndin þegar þú smellir á fyrirsögnina aftur (virkar eins og on/off takki fyrir fellivalmyndina). Alla vegna virkar það þannig hjá mér í Opera, en hins vegar eru möguleikarnir í valmyndinni eitthvað fubar og ólæsilegir.
Myndi sjálfsagt leggjast í þetta ef ég ætti einhvern smá frítíma :-/
11. september 2003 kl. 22:41 GMT | #
Sigurdss0n: Stóra DHTML áskorunin
16. september 2003 kl. 22:34 GMT | #
Sigurdss0n: DHTML menu
25. september 2003 kl. 14:25 GMT | #