HAL prófanir

Skrifađ 9. september 2003, kl. 09:49

Hér eru nokkrar einfaldar prufusíđur til ađ skođa í HAL lesvafranum.

HAL er lesvafri/skjálesari frá Dolphin Software, sem sístćkkandi hópur blindra og sjónskertra tölvunotenda á Íslandi notar. Enn sem komiđ er er JAWS lang algengasti kosturinn, en íslenski framburđurinn í honum ku ekki vera eins góđur og hjá HAL, auk ţess sem mörgum finnst HAL vera ţjálli í notkun.

Ég er núna ađ kanna hvernig HAL vinnur međ CSS stílblöđ á vefsíđum - sér í lagi hvort hann skilji media reglurnar og hvernig hann les vefsíđur sem nota float og position : absolute til ađ skipa innihaldinu í dálka.

Niđurstađa (viđbót)

HAL 5.2 (nýjasta útgáfan) les ekki vefsíđur međ ţví ađ lesa gegnum innihald HTML skjalsins, heldur les hann einfaldlega bara ţađ sem sést á skjánum. Ţetta er stór galli, og veldur í ofanálag ţví ađ vefsíđur sem eru skrifađar međ töflulausu HTML og eru dálkaskiptar međ CSS skipunum verđa algjörlega óskiljanlegar. (Dćmi um svoleiđis síđur: 1, 2, 3, 4, 5.) HAL les töflulausar síđur nefnilega svona:

  1. efsta línan í vinstri dálki
  2. efsta línan í miđju dálki
  3. efsta línan í hćgri dálki
  4. önnur línan í vinstri dálki
  5. önnur línan í miđju dálki
  6. önnur línan í hćgri dálki
  7. o.s.frv...

Ţetta er náttúrulega alveg vonlaust og ţarf ađ laga. Ég mun verđa í sambandi viđ tengiliđ Dolphin Software í Svíţjóđ og vonandi tekst mér ađ sannfćra ţá um ađ gefa út lagfćringu hiđ fyrsta. Ţangađ til geta íslenskir HAL notendur notast viđ ţessa "user-stylesheet" reddingu.


Meira ţessu líkt: Accessibility, HTML/CSS.


Svör frá lesendum (1)

  1. Már Örlygsson: Fregnir úr heimi blindra

    "Arnţór Helga stađfestir ađ CSS reddingin fyrir HAL skjálesarann virkar. Ţađ eru góđar fréttir. Ţessi lausn mín hefur veriđ kynnt fyrir starfsmönnum Dolphin og á notendapóstlista Dolphin. Einhverjir á ţeim lista bentu líka á hugbúnađ sem heitir WebForma..." Lesa meira

    17. september 2003 kl. 09:34 GMT | #

Ţessum svarhala hefur veriđ lokađ. Kćrar ţakkir til ţeirra sem tóku ţátt í umrćđunni.


 

Flakk um vefsvćđiđ



 

Nýleg svör frá lesendum


 

 

Yfirlit yfir ţetta skjal

(Atriđin í listanum vísa á ákveđna kafla ofar á síđunni.)