Einfaldir og aðgengilegir sprettigluggar

Skrifað 7. september 2003, kl. 15:20

Maður hefur í gegnum tíðna séð margar mis-gáfulegar leiðir farnar í að opna sprettiglugga ("popup" glugga), sumar hverjar mjög óaðgengilegar fyrir leitarvélar, fatlaða og notendur frumstæðra vafra.

[Uppfært 9. feb. 2004: Þessi grein er úrelt. Betri, hreinlegri og aðgengilegri útfærslu má finna í greininni Unobtrusive Popup Windows. Vinsamlega notið þær leiðbeiningar frekar en þessar.]

Andri Sigurðsson skrifaði í gærkvöldi ágæta grein um góða og slæma sprettiglugga. Ég stóðst ekki mátið og endurbætti aðeins kóðadæmin sem hann birti fyrir góða sprettiglugga, og ákvað að taka það alla leið í gæðum.

Lesið samt greinina hans Andra áður en þið haldið áfram.

Afritun og hvers kyns nýting kóðans hér að neðan er öllum velkomin.

Einfalt popup() javascript fall:

function popup (link) {
  var theSettings = "width=350,height=450";
  var theTarget = "_blank"; // Set default value for the link target
  if ((link.target != null) && (link.target != "")) {
    theTarget = link.target;
  }
  newWin = window.open(link.href, theTarget, theSettings);
  newWin.focus(); // make sure the new window has focus.
  return false;
}

Einfalda popup() fallið notað:

<a href="http://www.mbl.is" target="gluggi" onclick="return popup(this);">Opna sprettiglugga</a>

Ef engin target="" stilling er sett á vísunartagið, þá notar popup() sjálfgefna theTarget gildið sem er skilgreint fremst í fallinu.

Allir valkostir stillingastrengsins sem window.open() fallið notar:

  • width=pixels
  • height=pixels
  • scrollbars=yes|auto|no
  • resizable=yes|no
  • status=yes|no
  • toolbar=yes|no
  • location=yes|no
  • menubar=yes|no

Dæmi:

theSettings = "width=300,height=450,scrollbars=auto,resizable=yes,status=no";

Ath: engin bil mega vera á eftir kommunum, því þá virka stillingarnar ekki í sumum vöfrum.


Meira þessu líkt: Accessibility, HTML/CSS.


Þessum svarhala hefur verið lokað. Kærar þakkir til þeirra sem tóku þátt í umræðunni.


 

Flakk um vefsvæðið



 

Nýleg svör frá lesendum


 

 

Yfirlit yfir þetta skjal

(Atriðin í listanum vísa á ákveðna kafla ofar á síðunni.)