Einn, tveir og íbúð!
Sumir hlutir taka stuttan tíma. Ógnvekjandi stuttan jafnvel. Einn, tveir og stórskuldug!
Í gær gerðum við kauptilboð í íbúð. Í dag fengum við móttilboð sem við erum sátt við, erum búin að samþykkja símleiðis og munum rölta við á fasteignasölunni á eftir til að skrifa undir. "Ógnvekjandi" hlutinn við allt þetta er að það er styttra en vika síðan við byrjuðum að skoða eignir öðruvísi en í tölvunni!
Íbúðin sem við erum að fara að kaupa (með fyrirvara um greiðslumat, etc. etc. - sjö níu þrettán) er í Stangarholti 6, önnur hæð og ris, sex herbergi, ásamt geymslu og þvottahúsi í kjallara. Ástand á eigninni almennt gott, en samt eru einstaka hlutir sem má endurnýja í rólegheitum á næstu árum. Við fáum lyklavöld að íbúðinni ekki seinna en 1. nóvember.
Í öðrum fréttum má nefna að Logi var að ná samkomulagi um kaup á lítill þakíbúð í Brautarholti, ca. 200 metra frá nýju íbúðinni okkar. Sú íbúð losnar strax, og það eru allar líkur á að við Stína munum leigja hana af Loga í um einn mánuð - frá því við afhendum Grettisgötuhöllina, þar til við getum flutt inn í Stangarholtið.
Spennandi!
Meira þessu líkt: Húsnæði/heimili.
Már Örlygsson



Svör frá lesendum (11)
Tóró svarar:
Til hamingju!
5. september 2003 kl. 12:43 GMT | #
Sigga Sif svarar:
Til hamingju líka frá mér!
5. september 2003 kl. 13:24 GMT | #
sigga svarar:
Frábært! Til lukku!!
5. september 2003 kl. 13:28 GMT | #
Tryggvi R. Jónsson svarar:
Til lukku! :-) Þegar hlutirnir fara í gang þá fara þeir hratt yfir.
5. september 2003 kl. 14:14 GMT | #
Bjarni Rúnar svarar:
Je, kúl. :) Og innan göngufæris, vei!
5. september 2003 kl. 14:52 GMT | #
Freyr svarar:
Til hamingju! Sex herbergja íbúð? Öfundn
5. september 2003 kl. 16:24 GMT | #
Árdís svarar:
Til hamingju! Tvö herbergi á mann eru náttúrulega algjört lágmark :)
5. september 2003 kl. 17:27 GMT | #
Már Örlygsson svarar:
Heh, sko, við erum með tvær kisur þannig að við slefum ekki nema 1,2 herbergi á fjölskyldumeðlim. Við vorum líka að grínast með það að við gætum boðið bæði mömmu minni og pabba að gista, ásamt mökum, og þau þyrftu ekki að verða vör við hvort annað. (Smá skilnaðargálgahúmor klikkar aldrei :-)
Allavega, þá voru svona aukaherbergi alltaf mikill draumur hjá okkur, bæði til að Stína gæti haft sér saumastofu/stúdíó fyrir sig, og við gætum vandræðalaust fengið ömmurnar og afana í heimsókn í borgina án þess að það yrði of þröngt um okkur - jafnvel þótt fleiri en einn aðlili kæmi í einu.
Okkur sýnist sá draumur ætla að verða að veruleika með þessum kaupum.
P.S. já, við skrifuðum undir í dag.
5. september 2003 kl. 19:57 GMT | #
Már Örlygsson svarar:
P.P.S. Takk fyrir hamingjuóskirnar. Takk, takk.
5. september 2003 kl. 20:00 GMT | #
Ágúst svarar:
Þótt seint sé... til hamingju!
Hey, ekki gleyma "tómstundaherbergi" fyrir húsbóndann :-þ
7. september 2003 kl. 14:51 GMT | #
Salvör svarar:
Til hamingju með íbúðarkaupin! Það er líka svona áfangi á þroskabraut að færast úr 101 í 105 (ég bý þar) eða hærri númer :-)
Sá í bókinni hans Hallgríms Helgasonar að 101 Reykjavík á að vísa til 010110110 svona bínary kóðamáls nútímans.
Reyndar væri sniðug hugmynd að skrá líf fólks eftir stöðum (GPS hnit) sem það hefur viðkomu á lífsleiðinni, kannski koma þar í ljós mynstur sem við sjáum ekki þegar við erum á þessu ferðalagi.
7. september 2003 kl. 17:19 GMT | #