Vísanir á töff...
-
Herra Svavar Muzak og hljómsveitin Hraun bjóða upp á hráa tónleikaupptöku af nýju og mjög, mjög flottu lagi, Impossible. Svavar er alveg suddalega góður lagahöfundur. Meiri tónlist eftir hann og textar við tónlistina.
-
Andri Sigurðsson kemur sterkur inn í CSS og HTML nördaskapinn og skrifar skemmtilega um svipaða hluti og ég hef verið að kasta fram hér á síðunni undanfarna mánuði. Greinarnar hans má finna bæði á heimasíðunni hans og á Hugi.is. Hmmm... ég ætti kannski að fara að skrifa eitthvað inn á Huga líka.
- Póstforritið Mozilla Thunderbird er nýkomið í nýja og spennandi útgáfu 0.2 (Win 7.3MB og Mac 11,1MB) sem er bæði léttari, nettari, stöðugri og fullkomnari en sú síðasta. Nidelven IT eru með leiðbeiningar um hvernig er hægt að flytja pósthólf yfir í Thunderbird úr Outlook og öðrum vinsælum póstforritum.
- Tóbakstugga er enn á fullu að veita þýðendum og útgefendum kvikmynda og sjónvarpsefnis strangt aðhald með faglegri gagnrýni. Skemmtilegt framtak sem virðist ætla að lifa. Umræðuhalarnir sem fylgja í kjölfar úttektanna eru líka oft mjög skemmtilegar. Þó finnst mér þau mættu líka skrásetja dæmi um virkilega góðar þýðingar og flottar "lausnir" á orðaleikjum...
Meira þessu líkt: HTML/CSS, Hugbúnaður, Lifandi tunga, Listir og menning.
Már Örlygsson



Svör frá lesendum (2)
Gísli svarar:
Þú spyrð um góðar þýðingar. Sástu "Elling" í Háskólabíó á sínum tíma? Hún er á Stöð 2 í kvöld.
5. september 2003 kl. 09:47 GMT | #
Jósi svarar:
Betri slóð á "þau" er hér: http://tobakstugga.klaki.net/about.html#authors
8. september 2003 kl. 15:02 GMT | #