Hóruvinir og MSN spjall
Bjarni er IRC-hóra, pælið í því!
Um daginn skrifaði Bjarni líka skynsamlega um Instant Messaging spjall (t.d. MSN).
...en talandi um MSN spjallkerfið, þá benti Tryggvi á frétt um daginn. þar sem segir að Microsoft ætla að loka alla notendur úti sem ekki nota Microsoft forrit í spjallinu. Það þýðir væntanlega að ég og stór hópur félaga minna munum hverfa út af MSN netinu í næsta mánuði, því við notum Jabber samhæfð spjallforrit.
Jabber er opinn og frjáls spjallstaðall sem á mikla framtíð fyrir sér, og hefur nú þegar hlotið náð fyrir augum margra stórfyrirtækja sem m.a. hyggjast nota jabber skilaboð í rafrænum viðskiptum. Til eru fjömörg ókeypis Jabber spjallforrit, sem flest eiga það sammerkt að geta líka tengst inn á MSN netið - þ.e. þangað til Microsoft lokar á utanaðkomandi tengingar. Hér eru nokkur góð forrit:
Sjálfur hef ég notað Exodus í meira en ár, og er bara hæst ánægður. :-)
Meira þessu líkt: Hugbúnaður.
Már Örlygsson



Svör frá lesendum (5)
Sindri svarar:
Úr upprunalegu fréttinni:
Þeir ætla sem sagt alls ekki að loka á forrit frá þriðja aðila, bara ekki að hleypa hverjum sem er inn á kerfið.
26. ágúst 2003 kl. 09:43 GMT | #
Bjarni Rúnar svarar:
Með öðrum orðum: "allir sem geta borgað fá aðgang, en open source heimurinn má éta það sem úti frýs".
Fyrir utan græðgi, þá snýst þetta líklega að miklu leyti um að gera Linux notendum erfitt fyrir, því þeir eru skíthræddir við að LInux hefji bráðum innreið inn á vinnustöðvar og heimilistölvur almennings.
26. ágúst 2003 kl. 17:22 GMT | #
Sindri svarar:
Hvar stóð að þeir ætluðu að rukka einhverjar stórar upphæðir fyrir þetta? Ég veit ekki betur en að Micro$oft M$N sé frítt (bjór)!
26. ágúst 2003 kl. 22:49 GMT | #
Bjarni Rúnar svarar:
"We are very interested in interoperating with all third parties, there just needs to be a formal agreement" ... þetta er dulmál yfir "we are very interested in working with people who can fork over cash."
Þar sem "people" eru fólk sem býr til MSN-clienta.
27. ágúst 2003 kl. 14:30 GMT | #
Jósi svarar:
Centericq, forritið sem Bjarni Rúnar setti upp fyrir okkur sem notum skeljaraðganginn á Klaka var að segja við mig: "You are running a version of messenger that requires an immediate security update. Please visit http://messenger.msn.com/Help/Upgrades.aspx to complete the update."
29. ágúst 2003 kl. 09:13 GMT | #