Blogggreinin í Fréttablaðinu
Fréttablaðið birti í dag grein um blogg (Fréttablaðið á PDF formi, bls. 24-25). Greinin er stutt og laggóð, og ég er ánægður með hvað þær málsgreinar sem vitna í mig koma vel til skila því sem ég sagði. Útkoman úr svona símaviðtölum er ekki alltaf jafn góð og þessi. Ég er bara kátur með blaðamanninn Þórarin (sem bloggar!), en þó finnst mér að hann hefði alveg mátt birta líka mynd af Bjarna mér til samlætis. :-)
Þórarinn nefnir til sögunnar vefinn "Blogcount.com" og segir að þar komi fram að á netinu séu tæplega 4000 íslenskar bloggsíður. Þó að Blogcount.com sé alveg prýðisgóður vefur með sérlega fróðlegar vísanir á greinar og rannsóknir um útbreiðslu bloggs vítt og breitt um heiminn, þá fann ég ekki neitt minnst á Ísland þar. Getur verið að Þórarinn hafi ætlað að vísa á Blogcensus.net og tungumálaupplýsingarnar þar?
Annars fannst mér pínulítið kyndugir þessir "fræga fólkið bloggar" rammar, þar sem Eva María Jónsdóttir, Sigurjón Kjartansson og Steinar Bragi skrifa tvö dagbókarbrot á kjaft. Hvar eru þessar vefdagbækur þeirra þriggja? Var þetta kannski svona "pappírsblogg" sem átti sér bara stað á blaðsíðum fréttablaðsins en ekki á netinu? Ef svo er þá legg ég til að við köllum það "tilgerðarblogg" eða "uppgerðarblogg" - enda ekki ósvipað því að fjölmiðill fjallaði um fólk sem étur bara grænmetisfæði (e. vegetarians) og fyllti upp í greinina með köflum um "fræga fólkið sem borðaði ekkert kjöt í tvo daga!!!" ;-) Er hægt að "blogga" í dagblaði?
Ekki það, það er alltaf gaman að lesa dagbókarbrot úr hversdagslífi fræga og fallega fólksins. Mér fannst bara pínu kyndugt að kalla þetta "blogg".
Hver er blogg-staðan á frægu bloggurunum þremur?
- Ef marka má leitarvélarnar er Eva María ekki með vefdagbók - nema hún bloggi í laumi undir dulnefninu "Ljósvakalæðupokinn" í stíl við stöllu sína úr Kastljósinu. :-)
- Sigurjón Kjartansson bloggar ...eða öllu heldur bloggaði, því síðasta færslan hans er dagsett 30. mars s.l. og þar áður skrifaði hann þann 29. janúar þessi orð:
"Hvar hef ég verið? Ekki nennt? Bloggið er dautt!"
- Steinar Bragi virðist heldur ekki hafa bloggað neitt ef mark er takandi á leitarvélunum, og líkt og Eva María virðist hann ekki einu sinni nenna að halda úti heimasíðu (enda hafa þau bæði ábyggilega nóg annað við tímann að gera).
Þá vitum við það.
Meira þessu líkt: Útgáfa.
Már Örlygsson



Svör frá lesendum (5)
Óli Gneisti svarar:
Mig rámar í að Eva hafi verið með einhverja dagbók á mbl þegar hún var að ferðast um Indland, það gæti svosem hafa verið einhver önnur.
24. ágúst 2003 kl. 19:20 GMT | #
reynir.net svarar:
nei það var ragna sara sem var með "ferðadagbók" á mbl.is þegar hún var í heimsreisu, en hún er einmitt systir Evu...
-r
24. ágúst 2003 kl. 19:23 GMT | #
Svansson.net svarar:
Ég leit þannig á, e. nokkra umhugsun, að nokkrir nafntogaðir einstaklingar hefðu verið beðnir um að skrifa blogg til birtingar í Fréttablaðinu, en að þetta væri ekki tekið af bloggsíðum þeirra.
annars ættir þú að linka á bloggið hans þórarins, www.badabing.is:)
24. ágúst 2003 kl. 19:31 GMT | #
Már Örlygsson svarar:
Svansson, takk fyrir ábendinguna. Er búinn að bæta inn vísun á síðuna hans Þórarins.
24. ágúst 2003 kl. 19:34 GMT | #
Salvör svarar:
Flott grein. Og líka gaman að þessum bloggbrotum þ.e. bloggi þessara þriggja úr þotuliðinu þ.e. hvernig þau myndu vera ef þau blogguðu.
Annars er ég að reyna að starta umræðu á femínistavefnum um blogg sem svona lýðræðistæki og rödd litla mannsins þ.e. blogg í sambandi við mannréttindamál, lýðræði og kven- og karlablogg
Slóðin er http://www.feministinn.is/umraedur/viewtopic.php?t=59
Er líka að prófa að hafa umræðuhóp sem er alveg opinn, gestir geta líka skrifað inn (smella bara á sendasvar)
Værir þú og allir sem nenna tilbúin til að skrifa stutta pistla þar inn. Ef ekki annað þá ábendingu um góða bloggara sem fjalla um mannréttindamál/þjóðmál.
24. ágúst 2003 kl. 19:45 GMT | #