Ég er blogghóra

Skrifað 21. ágúst 2003, kl. 17:43

Ég virðist vera orðinn nokkuð regluleg stoppistöð fyrir fjölmiðlafólk í tímahraki í leit að spennandi "soundbites" um blogg á íslandi. Þessa dagana eru allir spenntir fyrir því hvað íslendingar eru miklir heimsmeistrarar í bloggi. (Miðað við höfðatölu auðvitað, hvað annað?) Annars er það að frétta af stöðu íslenskunnar í tungumálalista Blogcensus að við færðumst fyrir nokkru niður úr 10. sæti í það 11. og nú síðast niður í það 12.

Eins og ég sagði við blaðamanninn áðan þá grunar mig að við eigum eftir að sjá íslenskuna fara neðar og neðar á þessum lista eftir því sem sjóndeildarhringur Blogcensus leitarvélarinnar víkkar. Mig grunar að sökum þess hvað íslenska bloggnetið er lítið og tiltölulega þéttriðið, þá hafi leitarvélin náð að finna flest allar íslensku síðurnar ansi snemma, en það sé að taka hana lengri tíma að hafa upp á öðrum og stærri bloggnetum á öðrum tungumálum. Þau bloggnet eru líklegri til að vera brotin upp í mörg tiltölulega sjálfstæð bloggnet sem getur tekið tíma að finna.

Af hverju við Íslendingar erum þetta duglegir að blogga veit ég ekki. Mig grunar að þar komi margt til. Nýjungagirni, útbreidd tölvukunnátta, lítil stéttaskipting, bókmenntaarfurinn, allir-þekkja-alla menningin, allir-gera-eins-og-hinir menningin, skortur á feimni/hræðsluleysi, gægjuþörf um náungann, etc.

Að lokum ný kvenmannsnöfn fyrir mannanafnanefnd að íhuga: Blogga, Bloggþóra, Bloggljót, Blogghildur, Bloggey, Bloggfríður, Blogglaug.

Uppfært daginn eftir: Ljósmyndarinn fré fréttablaðinu kom við í dag og tók myndir af mér.


Meira þessu líkt: Lifandi tunga, Útgáfa.


Svör frá lesendum (3)

  1. Dr. Schnitzel svarar:

    Nú tjái ég mig bara af því að ég sá einhvern bloggara kalla þig wesserbisser (held ég). Eitt málfarsatriði sem mig langaði að benda á: "sé að taka lengri tíma". Þarna væri nú betra að segja "taki lengri tíma". Það var allt, eins og sumir segja því miður. Nei, bíddu aðeins, "ísleNskuna", "sjálfstæð" með einu essi, "við Íslendingar eruM" og "gæGjuþörf". Get mér þess til að þú hafir verið að flýta þér. Bestu kveðjur.

    21. ágúst 2003 kl. 21:47 GMT | #

  2. Már Örlygsson svarar:

    Hmmm... já ég skrifaði þetta nokkuð hratt og stóð svo upp frá tölvunni suttu seinna. Ég er búinn að leiðrétta stafsetninguna og breyta aðeins setningarhlutanum sem þú hnýtir í. Takk fyrir ábendingarnar.

    22. ágúst 2003 kl. 13:25 GMT | #

  3. Rökkvi svarar:

    Af hverju ekki líka karlmannsnöfn eins og t.d. Bloggþór?

    28. ágúst 2003 kl. 22:11 GMT | #

Þessum svarhala hefur verið lokað. Kærar þakkir til þeirra sem tóku þátt í umræðunni.


 

Flakk um vefsvæðið



 

Nýleg svör frá lesendum


 

 

Yfirlit yfir þetta skjal

(Atriðin í listanum vísa á ákveðna kafla ofar á síðunni.)