Gaman að "niðurfæra" hugbúnað
Í gær og í dag hef ég verið að "niðurfæra" (öfugt við að uppfæra :-) tvö forrit sem ég nota mikið, WinAmp og Internet Explorer. Því fylgir dáldið sérstök tilfinning, mjög frískandi.
Internet Explorer er vafri sem ég nota til að prófa vefsíður sem ég er að forrita HTML og CSS. (Ég nota Firebird vafrann í allt alvöru vafr.) Ég var áður með Internet Explorer 5.5 en niðurfærði mig í gær í útgáfu 5.0 af því að mun stærra hlutfall netnotenda er með 5.0 en 5.5, og það eru mun fleiri og erfiðari CSS villur sem þarf að huga að í útgáfu 5.0. Það er því betra/praktískara fyrir mig að vera með lélegan og algengan vafra, en skítsæmilegan sjaldgæfan vafra.
Ég keyri Windows 2000 á vélinni minni og það eina sem ég þurfti að gera til að niðurfæra Internet Explorer var að fara í Start -> Settings -> Control Panel -> Add/Remove Programs og fjarlægja "Internet Explorer 5.5". úr forritalistanum. Því næst endurræsti ég tölvuna og þá setti Windows gömlu útgáfuna sjálfkrafa inn.
Ég hef verið að nota tónlistarspilarann WinAmp 3.0 í nokkurn tíma, en var orðinn mjög þreyttur á því hvað hann er þungur og luralegur í keyrslu. Ég er greinilega ekki einn um að pirra mig á þessu því í dag er WinAmp 2.91 nýjasta/yngsta útgáfan af forritinu - full af nýjum fítusum en samt létt skemmtileg eins og í gamla daga. Ég var ekki lengi að fjarlægja 3.0 og setja nýja, fina WinAmp 2.91 inn í staðinn!
Það er ekki oft sem þetta gerist. :-)
Meira þessu líkt: Hugbúnaður.
Már Örlygsson



Svör frá lesendum (4)
egill svarar:
Ég er með winamp 3.0, og hæstánægður. En ég er reyndar að nota annað build (498) en þú færð á http://www.winamp.com (að ég best veit)
Menn skiptast reyndar í 2 hópa, þeir sem fíla 3.0, og þeir sem hata 3.0.
Veit reyndar að gaurinn sem skrifar 3.0, er ekki ánægður með það sem fór í loftið. Skilst að AOL Time Warner hafi beytt þrýstingi.
21. ágúst 2003 kl. 11:28 GMT | #
Már Örlygsson svarar:
WinAmp 3.0 var alveg suddalega hægvirkur. Það var það eina sem ég hafði út á hann að setja.
21. ágúst 2003 kl. 11:33 GMT | #
Spörri svarar:
Foobar2000 er alveg málið sérstaklega fyrir interface gúrúa en hann hefur einmitt ekkert interface er lítill, léttur og hraður, getur búið til gagnagrunn úr mp3 safninu þínu sem hjálpar mjög til við playlistasmíði. Enda er dýrðin skrifuð af Peter Pawlowski sem var svo illa við winamp3 að hann hætti að skrifa winamp plugins og skrifaði sinn eigin spilara.
http://www.foobar2000.org/
21. ágúst 2003 kl. 14:17 GMT | #
Freyr svarar:
Ég niðurfærði líka úr Winamp 3 í Winamp 2.x hjá mér. Spilun í útgáfu 3 hökti ef ég reyndi að keyra hana á sama tíma og nokkra leiki, en útgáfa 2.x gerði það ekki. Að öðru leyti hef ég ekkert á móti Winamp 3.
Eins og ég hef tekið fram áður þá nota ég ekki Windows nema til að spila tölvuleiki. Fyrir Linux er XMMS (http://www.xmms.org/) alveg að standa fyrir sínu, og fylgir þar að auki flestum dreifingum.
21. ágúst 2003 kl. 14:55 GMT | #