Vírusar og af-Microsoftun

Skrifað 21. ágúst 2003, kl. 08:43

Jósi býðst til að af-Windowsa fólk í stíl við "afhommanir" Gunnars í Krossinum. Ég velti fyrir mér hvort tilboði Jósa fylgi ókeypis námskeið í notkun annara stýrikerfa, og hvert þessar frelsuðu sálir eiga að borga tíundina sem áður fór í vasa Microsoft? Ennfremur: Býður Jósi upp á hagstæð tölvukaupalán fyrir villuráfandi sauði sem vilja kaupa Macintosh tölvu? :-)

Bjarni veltir fyrir sér vírusaflóðinu og bendir á að "viðvörunarskeytin" sem flest (en ekki öll!) póstöryggiskerfi senda til baka í hvert skipti sem vírus finnst í pósti, eru í raun hluti af vandamálinu, því þau auka enn á flóðið. Hann íhugar að kenna póstsíunni sinni að þekkja svona "viðvörunarskeyti" og gleypa þau með húð og hári. Góð hugmynd!

Hvað er til ráða?

Margir benda á að fólk sem er umhugað um öryggi tölvunnar sinnar og vinnugagna, ætti að flytja sig yfir á Linux eða Macintosh. Það er auðvitað góð hugmynd (ég renni sjálfur hýru auga til Linux stýrikerfisins), en fæstir eru tilbúnir að taka svo stórt skref í einu vetfangi. Þeir sem vilja taka smærri skref í einu geta byrjað á að "af-Microsofta" verkfærin sem þeir nota dags-daglega.

Hér er listi yfir virkilega góð forrit sem leysa af hólmi forrit frá Microsoft, eru örugg og að auki ókeypis:


Meira þessu líkt: Hugbúnaður.


Svör frá lesendum (6)

  1. Tryggvi R. Jónsson svarar:

    WinAMP nær ekki alveg að spila allt sem WMP spilar en ef við gætum VLC: http://www.videolan.org/vlc/ á listann þá er nokkurn veginn hægt að droppa WMP. Ber samt að varast ,,eftirlíkingar" margir media playerar eru í raun að nota render-vél WMP og eru bara ný notendaviðmót á sama gumsið.

    21. ágúst 2003 kl. 11:02 GMT | #

  2. Jósi svarar:

    Tíundin sem áður fór til Microsoft þarf ekkert endilega að fara úr vasa fólks. Ef fólk notar Linux getur það bara notað tíundina til að kaupa sér ís.

    Ég býð ekki upp á lán (enda stórskuldugur sjálfur) en Apple IMC eru ofsalega montnir núna af nýjastu námsmannafjármögnunarleiðinni sinni: http://www.mac.is/namsmenn/

    21. ágúst 2003 kl. 11:52 GMT | #

  3. Már Örlygsson svarar:

    Takk Tryggvi, ég bætti VLC við listann í færslunni.

    21. ágúst 2003 kl. 15:40 GMT | #

  4. Einar svarar:

    Mæli með crystal player (http://crystalplayer.com/ ) sem fyrsta val á kvikmyndaspilara. Mun skemmtilegara viðmót en bæði WMP og VLC og betri í flesta staði. VLC ræður samt betur við gallaðar og hálfkláraðar skrár.

    21. ágúst 2003 kl. 22:59 GMT | #

  5. Tómas Hafliðason svarar:

    Þetta eru frábærar ábeningar.

    Bendi á pistilinn minn á deiglunni http://www.deiglan.com/3476.html Það borgar sig að vera öðruvísi. Það er í samræmi við það sem Bjarni benti á eftir lovevírusinn og mér þóttu frábærar ábendingar.

    Ég er búinn að sækja thunderbird og ætlar að configurar það. Það sem hefur ofast truflað mig varðandi þessi póstforrit er að geta ekki skilgreint marga reikninga. Nota t.d. hi netfangið, er með annað í vinnunni og svo Deiglunetfangið mitt. Vil sækja úr öllum þessum pósthólfum.

    22. ágúst 2003 kl. 00:00 GMT | #

  6. Björn Þór Jónsson svarar:

    Gott framtak hér: Norræna Open Source vefsíðan. http://www.nordicos.org/?lang=is

    Fréttatilkynningin: http://www.norden.org/webb/pressrelease/pressrelease.asp?lang=5&id=951

    29. ágúst 2003 kl. 11:13 GMT | #

Þessum svarhala hefur verið lokað. Kærar þakkir til þeirra sem tóku þátt í umræðunni.


 

Flakk um vefsvæðið



 

Nýleg svör frá lesendum

  • Stefán (Hugmynd að gjörningi)
  • mylotarg drug (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • mylotarg drug (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • pamelaanderson (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • Production Music (Íslenskt leitarvélaspam?)
  • ma801zda (Vélrænar þýðingar)
  • tapasbocnoa (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • Siggi Palli (Vélrænar þýðingar)
  • Bjarni Rúnar (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • Unnur María (Vélrænar þýðingar)
  • Már (Vélrænar þýðingar)
  • Valdís (Vélrænar þýðingar)
  • Már (Vélrænar þýðingar)
  • Hrafnkell (Vélrænar þýðingar)
  • Már (Vélrænar þýðingar)

 

 

Yfirlit yfir þetta skjal

(Atriðin í listanum vísa á ákveðna kafla ofar á síðunni.)