Lærdómur dagsins í dag
- Til er eitthvað sem heitir "Fundagerðabók" sem fæst í öllum ritfangaverslunum. Í hana á að handskrifa meginniðurstöður húsfunda og láta alla viðstadda á fundinum undirrita punktana á staðnum. Það er eina leiðin til að koma í veg fyrir að einhver fái bakþanka og harðneiti að hafa samþykkt eitthvað.
- Til er eitthvað sem heitir Kærunefnd fjöleignarhúsamála. Hún starfar á vegum félagsmálaráðuneytisins og úrskurðar m.a. í álitamálum sem snúa að skilgreiningu eignarhluta og sameignar, og úrskurðir hennar hafa víst nokkuð þungt vægi fyrir rétti ef einhver málsaðila ákveður að kaupa sér lögfræðing og taka málið fyrir dómsstóla. Það kostar ekkert að leggja mál fyrir kærunefndina en úrskurður fæst sjaldnast fyrr en eftir 5-6 vikur.
- Það getur borgað sig að hafa upp á fyrri eigendum og spjalla við þá. Það getur varpað nýju ljósi á álitamál. Maður þarf ekki að vera hræddur við fyrri eigendur.
...já, við erum að gera eignaskiptasamning í fyrsta skipti og það er smá sápuópera í gangi. Gaman, gaman!
Meira þessu líkt: Húsnæði/heimili.
Már Örlygsson



Svör frá lesendum (1)
Unnur svarar:
Vonandi leysist úr þessu hjá ykkur :) Við höfum verið svo heppin að það hefur aldrei neinn bakkað með neitt sem hefur verið ákveðið í okkar húsi en fyrirkomulagið á húsfundum er líka einmitt mjög formlegt, allt samviskusamlega fært til bókar og allir lesa yfir áður en er undirritað.
21. ágúst 2003 kl. 11:24 GMT | #