Pirringur er tímaeyðsla

Skrifað 20. ágúst 2003, kl. 14:42

Ég þarf að hætta að eyða tíma og orku í að rífast við fólk sem fer í taugarnar á mér. Það er nóg af skemmtilegu og skynsömu fólki sem ég er ósammála og get "rifist" við. Ikke?

Gott rifrildi fær mann til að hugsa og fyllir mann af orku. Slæm rifrildi rífa bara niður og gera mann leiðan.


Meira þessu líkt: Lífssýn.


Svör frá lesendum (5)

  1. Bjarni Rúnar svarar:

    Aaaaaa við Má! :-) Ég er annars alveg innilega sammála þér.

    20. ágúst 2003 kl. 14:54 GMT | #

  2. JBJ svarar:

    Ég lærði að nota /ignore í RL

    20. ágúst 2003 kl. 14:56 GMT | #

  3. katrín svarar:

    lengi að læra már;)

    20. ágúst 2003 kl. 15:18 GMT | #

  4. Tryggvi R. Jónsson svarar:

    Ég er reyndar svo skrítinn að ég hélt að það væri ekkert til sem heitir gott rifrildi? Er það þá ekki bara rökræður? Mér finnst öskur, læti og leiðindi vera partur af skilgreiningunni á rifrildi. Maður á líka ekki að pirra sig yfir því sem maður getur ekkert gert í. Ég lærði það í dag :-)

    20. ágúst 2003 kl. 15:56 GMT | #

  5. Már Örlygsson svarar:

    Ég nota orðið "rifrildi" þarna pínu lítið vítt. Já ég held að "gott rifrildi" sé einmitt það sem maður mundi almennt kalla rökræður/skoðanaskipti. Stundum getur maður tekist á um ákveðin málefni af miklum krafti við skemmtilegt fólk, en svo staðið upp að því loknu og allir eru sáttir og kátir.

    Ég þarf að læra betur að leggja mat á takmörk annara í þessum efnum, og líka að þekkja betur mín eigin takmörk.

    Katrín, ekki "lengi að læra", heldur alltaf að læra! ;-)

    20. ágúst 2003 kl. 16:58 GMT | #

Þessum svarhala hefur verið lokað. Kærar þakkir til þeirra sem tóku þátt í umræðunni.


 

Flakk um vefsvæðið



 

Nýleg svör frá lesendum

  • business loans (Req.js - javascript lazy-loading and dependency managment made easy)
  • Hannahrl (Req.js - javascript lazy-loading and dependency managment made easy)
  • Már (Req.js - javascript lazy-loading and dependency managment made easy)
  • Dinesh (Req.js - javascript lazy-loading and dependency managment made easy)
  • Már (Taubleyjur í nútímanum - lítill leiðarvísir handa hræddri þjóð)
  • Ada (Taubleyjur í nútímanum - lítill leiðarvísir handa hræddri þjóð)
  • notandi (Taubleyjur í nútímanum - lítill leiðarvísir handa hræddri þjóð)
  • Geir (Lausnin á efnahagsvandanum)
  • Jenný (Lausnin á efnahagsvandanum)
  • Óli Jens (Lausnin á efnahagsvandanum)
  • Már (Lausnin á efnahagsvandanum)
  • Kjartan S (Lausnin á efnahagsvandanum)
  • Pjétur G (Lausnin á efnahagsvandanum)
  • reynir (Lausnin á efnahagsvandanum)
  • Egill (Lausnin á efnahagsvandanum)

 

 

Yfirlit yfir þetta skjal

(Atriðin í listanum vísa á ákveðna kafla ofar á síðunni.)