Microsoft hugbúnaður og óöryggistilfinning

Skrifað 20. ágúst 2003, kl. 12:29

  • Sobig F
  • MSBlast
  • Welchi
  • Blaster

Ég keyri Microsoft Windows 2000 á vinnuvélinni minni, og eftir ástand síðustu daga þá er ég orðinn stanslaust hræddur um að ég tapi fullt af vinnugögnum. Sú staðreynd að ég keyri Windows er farið að valda mér mjög mikilli óöryggistilfiningu.

Ég reyni að setja upp allar nýjustu öryggisuppfærslurnar frá Microsoft, en ég veit samt að það tryggir ekki öryggi tölvunnar minnar nema að litlu leyti. Ég nota ekki Internet Explorer nema til að prófa vefsíður sem ég skrifa sjálfur, og ég les tölvupóstinn minn aldrei í gegnum Outlook, og ég kveiki ekki á IIS nema einstaka sinnum og í stuttan tíma í senn. Samt er ég ekki fyllilega öruggur.

Þetta endalausa óöryggi pirrar mig. Næst þegar ég hef ekkert betra að gera þá ætla ég að setja upp Linux á tölvunni minni.

P.S. mér finnst það alveg ótrúlegt að bankar og ríkisstofnanir reiði sig algjörlega á Microsoft hugbúnað. Það vekur mér líka ugg.


Meira þessu líkt: Hugbúnaður.


Svör frá lesendum (8)

  1. Tryggvi R. Jónsson svarar:

    Er þetta kannski ástæðan fyrir andvökunni? :-) Ég hef einmitt fundið fyrir þessu líka og þó svo að Linux sé ágætur kostur þá hef ég gert nokkrar tilraunir til að migrate-a mig algerlega yfir í Linux en alltaf lent í einhverjum vandræðum annað hvort með vélbúnað (t.d. wep á wifi-korti) eða hugbúnað (OpenOffice,Evolution) sem hafa orðið til þess að ég er ennþá dual-bootisti og eyði óþægilega miklum tíma í Windows. Spurning hvort það sé hægt að fá rakadrægara Windows með vængi? Já og muna auðvitað að taka reglulega afrit á öruggan stað.

    20. ágúst 2003 kl. 12:48 GMT | #

  2. Tóró svarar:

    Mér hefur liðið mun betur á minni Win2000 vél eftir að ég fór að keyra bæði vírusvörn (Panda, einhverjir þúsundkallar á ári) og einfaldan eldvegg (ZoneAlarm, ókeypis útgáfan). Og er alveg hættur að keyra IIS - það er tól djöfulsins.

    Eina ónæðið sem maður verður fyrir er að þurfa að taka til í póstinum þegar Sobig eða félagar fylla hann af rusli.

    Minnir mig samt á það að kominn er tími á að taka öryggisafrit af vinnslugögnunum, dunda mér við það í kvöld.

    20. ágúst 2003 kl. 13:14 GMT | #

  3. Freyr svarar:

    Ég hef alltaf sagt það að Windows er frábært stýrikerfi - til að spila tölvuleiki á. Enda nota ég það ekki í neitt nema það. Reyndar er til "kúl" project eins og Xwine (http://www.transgaming.com/) sem leyfir manni að spila Windows leiki á Linux (án sjáanlegrar hnökra á vinnsluhraða) en það virka ekki allir leikir, þó þeir séu að vinna í því.

    Nota Opera bæði þegar ég er í Windows og Linux - nota ekki IE nema ég neyðist til þess, og ég meina NEYÐIST. IE keyrir reyndar fínt á Linux undir win4lin (http://www.netraverse.com/) og VMWare (http://www.vmware.com/), en þau bæði kosta peninga og þú þarft hvort eð er að eiga eintak af Windows. Mér finnst Opera hraðvirkari, öruggari og jafnvel notendavænni en það sem skiptir mestu máli, þá er Opera ennþá supportað product sem er verið að vinna í á meðan IE er það ekki.

    Nota Thunderbird (http://www.mozilla.org/projects/thunderbird/) fyrir póst. Einfaldur, hraðvirkur og meira robust en nokkuð af hinum póstforritunum sem fylgja flestum Linux dreifingum (Evolution, KMail, o.fl.) - og þeir eru ennþá bara í útgáfu 0.1!

    Bæði Opera og Thunderbird keyra á öll helstu stýrikerfi (meira að segja makka! (hæ Jósi >:) )), ekki er vitað um neinar öryggisholur (alla vegna ekki á stærð við það sem finnst í IE og OE), bæði eru enn í þróun, og það sem skiptir kannski mestu máli fyrir flesta - þú þarft ekki að borga fyrir þau nema þú viljir. Ég er ekki einu sinni viss um að þú getir borgað fyrir Thunderbird þótt þú vildir það - alla vegna fann ég ekki í fljótu bragði neitt "donate" eða "purchase" á síðunni þeirra.

    Eina vírus böggið sem ég fæ er, eins og hjá Tóró, póst frá öðrum sem hafa verið smitaðir.

    Vertu maður, hættu að stela (http://innra.net/?Templates%20show%20defaults/default.tpl%20articles/stopthief.tpl - ertu að segja mér að þú hafir borgað fyrir allt sem þú ert með á tölvunni?) og dumpaðu Windows.

    20. ágúst 2003 kl. 15:07 GMT | #

  4. Jósi svarar:

    Opera fyrir makka sýgur. Sýgur fast. Sýgur vatnsmelónur í gegnum garðslöngur. Ekki nota Opera fyrir makka.

    Annars er ég sammála Frey. Dömpum Windows. Að vísu þarf vefhönnuður eins og Már sennilega að hafa IE við höndina til að sjá hvað klikkar þar og finna workaround fyrir svoleiðis, en alla venjulega vinnu er hægt að framkvæma á betri stýrikerfum.

    Ég sá annars ansi skemmtilega undirskrift á Slashdot um daginn: "Windows. From the guys who brought you Edlin."

    20. ágúst 2003 kl. 15:59 GMT | #

  5. Baldur Helgason svarar:

    Már þetta er augljóst, fáðu þér Makka!

    Mac OS X er besta kerfið til að hanna og smíða vefi. Fyrir útlitshönnun ertu með öll helstu teikniforritin. Fyrir vefsmíði ertu með Unix (Free BSD) kraumandi þarna undir sem þýðir að default ertu mað Apache, SSI, PHP og Perl. Síðan skilst mér að það sé ekkert mál að setja inn MySQL, en það er ekki mín deild ég er hönnuður. Til að testa fyrir window þá getur þú notað Virtual PC og verið með fleyri en eina útgáfu af IE til að testa (ég er með IE 5.0 og IE 6.0). Síðan eru vírusar nánast óþektir á Makkanum.

    Þegar ég flutti út til NY fékk ég mér ódýra Windows fartölvu, það var ekkert nema vesen í heilt ár, skipti aftur yfir í Mac fyrir ári, allt annað líf, ætla alldrei aftur til baka.

    20. ágúst 2003 kl. 16:54 GMT | #

  6. Vefdagbok Tryggva: Mál málanna í dag: Sobig.F

    "Sobig.F hefur verið að láta póstþjóna um allan heim finna fyrir því og notendur allir sem einn kvarta og kveina en hverjir eru það sem hafa ekki uppfært hjá sér stýrikerfið og eru með gamlar vírusvarnir? Jú auðvitað notendur." Lesa meira

    20. ágúst 2003 kl. 17:59 GMT | #

  7. Josi.klaki.net: Það er þörf á Gunnari í Krossinum

    "Ég hef nýverið varla getað annað en pælt í tölvuveirum, næstum allir sem nota tölvur og internet hafa orðið varir við faraldur síðustu daga (1, 2, 3). Mér var að detta í hug einn maður sem gæti hjálpað okkur við..." Lesa meira

    20. ágúst 2003 kl. 20:26 GMT | #

  8. reynir.net svarar:

    ahoy Baldur! þú hefur náttúrlega rétt fyrir þér að mestu leiti, en í samhenginu "tölvur og vírusar" er í raun allt betra en microsoft hugbúnaður, linux er að koma mjög heitur inn sem replacement fyrir windows hjá mér. þarf bara að spuglera í því aðeins meira (athuga hvort þörfin fyrir að skipta um stýrikerfi hverfi ekki á endanum)...

    20. ágúst 2003 kl. 22:35 GMT | #

Þessum svarhala hefur verið lokað. Kærar þakkir til þeirra sem tóku þátt í umræðunni.


 

Flakk um vefsvæðið



 

Nýleg svör frá lesendum


 

 

Yfirlit yfir þetta skjal

(Atriðin í listanum vísa á ákveðna kafla ofar á síðunni.)