Andvaka
Hlutir sem maður gerir þegar maður er andvaka um miðja nótt:
- Les fullt af skemmtilega skrifuðum færslum eftir Sour Bob?
- Telur vírusa og tilkynningar um vírusa jafnóðum og þær berast í pósthólfið manns? (kindur?)
- Leitar með hjálp Google að upplýsingum um hvort það megi virkilega ekki nota sápu á teflon pönnur eins og sumir halda fram? (Skv. Google virðist venjuleg uppþvottasápa í lagi.)
- Skrifar dagbókarfærslu? (Næturbókarfærslu?)
Fokkðiss, ég er lagstur aftur upp í til að sjá hvort ég sofni ekki aftur...
Meira þessu líkt: Sögur og minningar.
Már Örlygsson



Svör frá lesendum (2)
Hallur svarar:
þetta er mjög algengt vandamál en það sem hjálpar mér þegar ég á við andvöku að stríða er að fá mér mjólkurglas og gera eitthvað sem ég hef trassað lengi í tölvunni. Þá er maður að gera eitthvað sem þarf að gera og viti menn maður verður syfjaður á örskammri stundu.
20. ágúst 2003 kl. 09:26 GMT | #
gunnare svarar:
ég lendi mjög oft í þessu. um daginn ákvað ég að festa atburðinn á filmu: http://gunnare.askja.org/gallery/viewalbum.php?setalbumName=andvaka
20. ágúst 2003 kl. 10:43 GMT | #