Veðurfréttamaður með skoðanir

Skrifað 18. ágúst 2003, kl. 09:41

Hvernig er það, fetti enginn fingur út í orð veðurfréttamannsins á Stöð 2 daginn sem "Gay Pride" gangan var haldin? Þá lýsti hann blauðviðrinu á þá leið að hann vissi ekki alveg hverju öll þessi rigning ætti að fyrirstilla, kannski væri guð að gráta yfir hinsegin dögunum.

Ég var að vaska upp á meðan á þessu stóð. Stína kallaði mig inn í stofu og spurði hálf hvumsa: "eiga veðurfréttamenn að hafa skoðanir?"

Mér er spurn: Skapaðist virkilega engin umræða um þetta, eða missti ég bara af henni?


Meira þessu líkt: Lífssýn.


Svör frá lesendum (13)

  1. Tóró svarar:

    Ég tók ekki eftir þessu, en heyrði í útvarpinu eitthvert kvöldið veðurfræðing ræða um hitabylgjuna í Evrópu (gæti hafa verið í Speglinum). Hann var á því að svona hitabylgjur væru bara notalegar ef menn kynnu bara að njóta þeirra og að meirihluti evrópubúa séu bara sáttir með þetta og að fjölmiðlar séu að gera úlfalda úr rykmýi.

    Ætli þessir 500 eða svo sem sagt er að hafi dáið vegna hitanna í Frakklandi einu saman hafi verið sammála?

    18. ágúst 2003 kl. 10:25 GMT | #

  2. Finnbogi svarar:

    Ég heyrði þetta og hristi bara hausinn. Ætli flestir hafi ekki gert slíkt hið sama?

    18. ágúst 2003 kl. 11:04 GMT | #

  3. Svansson.net svarar:

    Ég man eftir áþekku atviki fyrir um fimm árum síðan, þá sagði veðurfréttamaður á RÚV um veðrið í Suður Evrópu að það viðraði vel fyrir þá sem vildu standa að loftárásum og orðalagið lýsti fyrirlitningu á slíkum hernaði. Það varð engin sérstök umræða um það heldur þrátt fyrir að loftárásir NATO og Serbíu stæðu þá sem hæst, en veðurfréttamaðurinn fékk stutt viðtal í Fókus fyrir ummælin.

    18. ágúst 2003 kl. 11:30 GMT | #

  4. Már Örlygsson svarar:

    Það fer náttúrulega aðallega í taugarnar á mér að veðurfréttamenn hafi skoðanir á hlutunum þegar þeir hafa aðrar skoðanir en ég. :-)

    18. ágúst 2003 kl. 11:47 GMT | #

  5. Unnur svarar:

    Held það séu um 3000 sem eru búnir að deyja í Frakklandi einu saman.

    18. ágúst 2003 kl. 11:47 GMT | #

  6. - grettir svarar:

    Ég sá þetta og fannst þetta bara nokkuð fyndið í því samhengi sem þetta var sagt. Á undan hafði Páll Óskar nefnilega verið í viðtali í Íslandi í Dag og grínaðist með það að enginn tæki mark á veðurfræðingum þessa dagana. Þegar spáin hljómaði upp á rigningu, þá væri sól og vice versa. Saklaus skot á báða bóga.

    18. ágúst 2003 kl. 12:00 GMT | #

  7. Tryggvi R. Jónsson svarar:

    Það er kannski skárra að veður-fréttamaður sýni svona skoðanir heldur en fréttamaðurinn sem var til dæmis að segja frá Gay Pride. Það er alltaf verra ef maður ,,fúskar" á sínu fagsviði en ef maður á hvort eð er ekki að hafa neitt vit á hlutum. Væntanlega voru þessi ummæli samt óþörf til að lýsa veðrinu :-) Spurning um að halda sig við starfslýsinguna.

    18. ágúst 2003 kl. 12:04 GMT | #

  8. TinTin svarar:

    Ég tók einmitt sérstaklega eftir þessu skoti veðurfræðingsins á GayPride! Þetta var líklega óþarfi, alla vega hugsaði ég um leið hvað hann væri að spá!?! Sammála því að hann ætti frekar að einbeita sér að því að koma veðurfréttunum til skila !

    18. ágúst 2003 kl. 12:21 GMT | #

  9. Páll Hilmarsson svarar:

    Veðurfréttamaðurinn sem Svansson vísar í er Haraldur Ólafsson og orðrétt voru ummælin svona:

    "Nú viðrar vel til loftárása".

    Sem síðar varð að titili á lagi Sigurrósar.

    Jamm.

    18. ágúst 2003 kl. 12:22 GMT | #

  10. Sindri svarar:

    Var hann endilega að lýsa sínum skoðunum. Eins og þú lýstir þessu þá áttu ummælin að vera brandari. Brandarar eru sjaldnast skoðanayfirlýsing (þó þeir gefi þær oft í skyn) og einmit fyndnari ef þeir eru þvert á skoðanir manns.

    Það er svo allt annað mál hvort veðurfréttamenn eigi að segja vafasama brandara.

    18. ágúst 2003 kl. 13:49 GMT | #

  11. Gísli svarar:

    Úlfaldinn og mýflugan lifa enn góðu lífi. Engin skoðun er svo góð að allir þurfi að vera á henni.

    18. ágúst 2003 kl. 20:34 GMT | #

  12. Már Örlygsson svarar:

    Gísli, þetta er skemmtilega orðað hjá þér, en ég er samt ekki viss um að ég skilji hvað þú átt við. Geturðu útskýrt?

    Mér finnst þetta hafa verið skemmtilega fjölbreitt umræða og að mestu yfirveguð hingað til - laus við allan múgæsing. Á að skilja afstöðu þińa þannig að þér þyki einhverjir vera að gera úlfalda úr mýflugu? Hverjir þá?

    18. ágúst 2003 kl. 20:39 GMT | #

  13. Gísli svarar:

    "Um héraðsbrest ei getur þótt hrökkvi sprek í tvennt. " Svo segir í kvæðinu um ekkjuna við ána. Mörg ummæli í fjölmiðlum dæma sig sjálf. Ég efa ekki að Sigurður hafi sagt þetta en kippi mér ekkert upp við það. Það er fyndið á sama hátt og þegar Páll Óskar sagði í ÍÍD að guð myndi ekki láta rigna á gönguna. Það þótti flott á sínum tíma, man ég, þegar veðurfræðingurinn kvað vel viðra til loftárása. Flott, vegna þess að svo margir voru sammála honum. Enn flottara, eftir að Sigurrós gaf lagið út. Mér finnst vera mikill þrýstingur frá ýmsum hópum í samfélaginu að sumar skoðanir séu betri en aðrar og að sem flestir eigi að vera á þeim.

    Í framhaldi af þessu má rifja upp kafla úr Punktinum um hurðir í sambýlishúsum.

    18. ágúst 2003 kl. 22:47 GMT | #

Þessum svarhala hefur verið lokað. Kærar þakkir til þeirra sem tóku þátt í umræðunni.


 

Flakk um vefsvæðið



 

Nýleg svör frá lesendum

  • Stefán (Hugmynd að gjörningi)
  • mylotarg drug (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • mylotarg drug (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • pamelaanderson (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • Production Music (Íslenskt leitarvélaspam?)
  • ma801zda (Vélrænar þýðingar)
  • tapasbocnoa (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • Siggi Palli (Vélrænar þýðingar)
  • Bjarni Rúnar (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • Unnur María (Vélrænar þýðingar)
  • Már (Vélrænar þýðingar)
  • Valdís (Vélrænar þýðingar)
  • Már (Vélrænar þýðingar)
  • Hrafnkell (Vélrænar þýðingar)
  • Már (Vélrænar þýðingar)

 

 

Yfirlit yfir þetta skjal

(Atriðin í listanum vísa á ákveðna kafla ofar á síðunni.)