Grín á hýrum degi
Það er alltaf gaman að sjá fólk falla fyrir klassísku baptistagríni. Vefurinn Landover Baptist Church er löngu orðinn einn af föstu punktunum í Internetlandslaginu, en ólíkt öðrum svipuðum fastapunktum (t.d. Lauknum), þá er húmorinn á LBC settur fram á svo heilsteyptan hátt að fólk fellur fyrir honum unnvörpum (eins og lesendabréfin bera svo ágætlega vitni um). Stundum má vart á milli sjá hverju er verið að gera grín að - heimskum suðurríkja baptistum, eða fordómafullum staðalmyndum þeirra sem falla fyrir þessari fáránlegu skopstælingu.
Ég hvet ykkur til að gramsa í Landover Baptist vefnum og smella á auglýsingarnar, kíkja á síðuna hennar Betty Bowers (America's Best Christian), og skoða kvikmyndagagnrýnina.
Að lokum getur svo verið gott að ná aftur áttum í hinum harða raunveruleika lífsins með því að lesa um ræktun "Bonsai" katta. (...fólk getur verið algjört ógeð sko!)
Meira þessu líkt: Listir og menning.
Már Örlygsson



Svör frá lesendum (8)
Svansson.net svarar:
ég var reyndar búinn að átta mig á þessu áður en þú bloggaðir þetta (yeah wright;))
9. ágúst 2003 kl. 17:32 GMT | #
Már Örlygsson svarar:
hehe... Svansson, ég var ekki viss um að þú hefðir fallið fyrir þessu, en það var greinilegt að liðið á Tilveran.is kolféll.
Tilveran er svo mikill einstefnumiðill að þar getur svona fáfræði þrifist og breiðst út mjög hratt.
9. ágúst 2003 kl. 19:33 GMT | #
Sindri svarar:
Þvílíkir fordómar hjá þér þetta með bonsai kettina. Það er ekkert að þessu frekar en að rækta bonsai tré og þetta hefur verið stundað í aldaraðir.
Bonsai kötturinn minn lifir ágætu lífi í krukkunni sinni og malar þegar ég tek lokið af til að klóra honum.
9. ágúst 2003 kl. 23:12 GMT | #
Björn Friðgeir svarar:
Svo er það http://www.capalert.com/capmarstartpage.htm með alvöru kristna kvikmyndagagnrýni. Verst hvað vefurinn þeirra er illa hannaður,popup og læti. En hver getur staðist gullkorn á borð við: four uses of the three/four letter word vocabulary (though used literally in accordance with proper definitions, they were used more as an excuse to add them) Ekki ég.
10. ágúst 2003 kl. 09:22 GMT | #
Einar Jón svarar:
Þetta eru snillingar: http://www.landoverbaptist.org/news0603/nigeria.html er ein fyndnasta sagan af Nígeríu-spami sem ég hef séð.
10. ágúst 2003 kl. 15:39 GMT | #
Árni Svanur svarar:
Í fljótu bragði sýnist mér sem það væri nú réttara að tala um þennan CAP vef sem dæmi um íhaldssama eða jafnvel bókstafstrúarnálgun við kristna kvikmyndagagnrýni :-)
Annars höfum við safnað saman á Deus ex cinema vefnum vísunum á fjölda vefja sem fjalla um trúar- og siðferðisstef í kvikmyndum, sjá http://www.dec.hi.is/?ritaskra/truarstef
10. ágúst 2003 kl. 16:36 GMT | #
Svansson.net svarar:
haha, ég féll samt alveg fyrir þessu fyrst, en skoðaði svo meira og áttaði mig á þessu þegar ég las efni til heiðurs Strom Thurmond. Lagfærði þá textann pínulítið svo það væri ekki aaalveg augljóst ég hefði fallið svona kylliflatur;)
10. ágúst 2003 kl. 18:46 GMT | #
Björn Friðgeir svarar:
Árni: jú þú hefur svosem rétt fyrir þér, án þess að ég hafi sérstaklega tekið það saman held ég að meirihluti versanna sem vitnað er í séu úr skuggalegri hlutum Gamla Testamentisins, eða bréfum öfgasinnans Sáls. En það er ekki eins og ég kunni biblíuna. Það er bara miklu skemmtilegra sem trúleysingi að heimta að allir sem kalli sig kristna verði að gúttera allt sem í henni er. Þá fölna margir.
11. ágúst 2003 kl. 21:04 GMT | #