Teikningar af húsinu okkar
Ég hef undanfarið verið að mæla upp og teikna á tölvuna vandað uppkast af húsinu sem íbúðin okkar Stínu er í. Við erum að selja hana og til þess að það sé hægt þarf að ganga frá eignaskiptasamningi fyrir húsið, og slíkir samningar byggjast á samþykktum teikningum af viðkomandi húseign.
Þetta er búið að vera hálfgert eilífðarverkefni, en uppkastið mitt á loksins að vera tilbúið fyrir inntöku og formlegan frágang í AutoCad af einhverjum fagaðila sem kann til verka í svona teikningum. En af því mér finnst svona teiknivinna svo skemmtileg, þá ætla ég að vista þetta litla "afrek" mitt hérna í dagbókinni minni, þar sem það eru minni líkur á að skrárnar glatist en ef ég geymi þær bara á harða disknum heima.
Teikninguna má sækja bæði á Illustrator og PDF formi (PDF skjalið virkar ekki, ég mun laga það við fyrsta tækifæri). Hvor skrá um sig er innan við 300KB.
Væntanlegur kaupandi mun kannski hafa gaman að því að skoða teikningarnar að framtíðareigninni, og mér mun finnast gaman að eiga þessi skjöl til minningar um fyrstu eignina okkar Stínu - íbúðina þar sem Logi Garpur fæddist í stofunni.
P.S. Þessu tengt: DXF/DWG Export from Adobe Illustrator 8.
Meira þessu líkt: Húsnæði/heimili, Logi Garpur.
Már Örlygsson



Svör frá lesendum (3)
Jósi svarar:
PDF skjalið opnast bara sem ein tóm blaðsíða hjá mér (þ.e. í forritinu Preview á MacOS X)
5. ágúst 2003 kl. 18:48 GMT | #
Tóró svarar:
Keisarinn er ekki í neinum fötum :)
(Acrobat á W2K)
5. ágúst 2003 kl. 18:59 GMT | #
Már Örlygsson svarar:
Já ég var orðinn dáldið sybbinn þegar ég vistaði þetta og gleymdi að prófa PDF skjalið. Málið er að teikningin er mjög stór, en "document" stærðin er bara A4, þannig að allir hlutar teikningarinnar lenda utan blaðsíðurammans og lenda þar með utan sýnilega hluta PDF skjalsins.
Tölvan með Illustrator fór í viðgerð í dag, þannig að ég mun ekki geta lagað þetta fyrr en á föstudag.
Ef einhver er með Illustrator uppsett hjá sér, þá má viðkomandi gjarnan stækka "document" skilgreininguna (eða smækka teikninguna þannig að hún passi inn á eina blaðsíðu) og viesta sem PDF og senda mér skjalið í tölvupósti. :-)
5. ágúst 2003 kl. 20:47 GMT | #