Verslunarmannahelgin...
Plönin mín eru fá og einföld. Ég fer kannski út í Viðey einn dagpart - lengra verður ferðalagið væntanlega ekki. U.þ.b. allar aðrar helgar ársins eru vænlegri ferðahelgar í mínum huga, eða eins og Unnur segir það svo fimlega:
"Ég er alveg að fíla það að eina helgi ári sé miðbærinn svo til laus við markhóp hefðbundinna útihátíða."
Líkt og hún þá held ég að þetta þarfnist ekki neinna frekari skýringa við. ;-)
Már Örlygsson



Svör frá lesendum (7)
Sissi svarar:
Er til léttari útgáfa af þessari síðu ? :)
1. ágúst 2003 kl. 09:58 GMT | #
Freyr svarar:
Já maður, þessi síða er ekkert smá bloated.... 6 sinnum (!) stærri en upphafssíða Google!
1. ágúst 2003 kl. 10:39 GMT | #
bio svarar:
Það er reyndar meira gott í þessari færslu hennar Unnar. Það er algjör bölvun að hafa farið á Hróarskeldu.
Ég fór á Hróarskeldu árið eftir að ég fór á þjóðhátíð. Fólk má giska á hvaða hátíð mig langar að fara aftur.
1. ágúst 2003 kl. 10:50 GMT | #
Már Örlygsson svarar:
Já Hrói er algjört æði. Það er oft sorglega áberandi að Íslendingahópar sem fara á Hróarskelduhátíðina halda að þetta sé eins og risastór Þjóðhátíð í Eyjum, og vafra um fullir og ælandi með hrópum og köllum... :-)
1. ágúst 2003 kl. 11:03 GMT | #
Hjalti svarar:
Midbærinn er líka laus vid marga adra en adeins hefdbundinn markhóp útihatida um thessa helgi. Synir adeins thekkingarleysi ad halda ad verslunarmannahelgi = útihatid.
Og thetta comment er i takt vid thessa sidu, eg er venjulega ekki svona neikvædur ... :)
6. ágúst 2003 kl. 11:21 GMT | #
Már Örlygsson svarar:
Hjalti, já það er rétt hjá þér. Það að miðbærinn er laus við hefðbundinn markhóp útihátíða útilokar ekki að aðrir geti líka farið úr miðbænum. Það hefði sýnt "þekkingarleysi" ef einhver hefði haldið því fram að fólk gerði ekkert annað um verslunarmannahelgina en að fara á útihátiðir.
Ég vona að þér batni af neikvæðnipestinni (getur verið að það hafi verið nettur "tröllailmur" af þessu svari þínu?) og ég vona að þú hefir það gott í útlandinu.
6. ágúst 2003 kl. 12:17 GMT | #
Hjalti svarar:
troll/trolling = thurs/thursast?
6. ágúst 2003 kl. 15:03 GMT | #