Munurinn á <i> og <em>

Skrifað 26. júní 2003, kl. 14:36

Spurt er um HTML:

Er <em> ekki alveg það sama og <i>?

Svar:

Já og nei.

Texti markaður með <i> og <em> birtast eins í öllum vöfrum en munurinn liggur í því að <i> merkir "hallandi letur" (e. italics) og <em> merkir "áherslu" (e. emphasis). Þannig er mikill merkingarmunur á þessum tveimur HTML mörkum, og það er mikilvægur þáttur í því að skrifa vandað HTML er að hafa merkingu textans hreina og klára.

<i> er þannig mjög einvítt mark. Það hefur enga innbyggða merkingu heldur segir það bara fyrir um útlit textans en ekkert um tilgang hans eða merkingu. (Auðvitað gæti ég alveg ákveðið að á síðunni minni láti ég <i> marka "áherslu" ...en þá er ég ekki að fylgja fyrirmælum HTML staðalsins og gera mörgum lesendum síðunnar erfiðara fyrir.)

HTML staðallinn kveður á um að <em> marki áhersluorð og öll forrit sem rekast á <em> mörk í HTML texta geta sjálfkrafa brugðist rétt við því (t.d. geta upplestrarvafrar sem blindir nota borið fram viðkomandi orð með sérstakri áherslu).

Sömu sögu má segja um muninn á <strong> ("strong emphasis") og <b>.


Meira þessu líkt: HTML/CSS.


Svör frá lesendum (4)

  1. Tóró svarar:

    Það má líta á þetta sem eitt dæmi um sögulega þróun HTML. Upphaflega var HTML hugsað fyrir vísindatexta innan háskólasamfélagsins og miðaðist við að lýsa því "hvað" textinn væri, ekki hvernig ætti að birta hann. Mörkin (svo ég reyni að nota orðalag Más) sögðu þá "þetta er fyrirsögn".

    Síðan færðist áherslan yfir á útlit og þá fóru menn að merkja fyrirsagnirnar "þetta er feitletraður texti í þessari stærð og af þessari leturtegund" (en sögðu ekkert um að þetta væri fyrirsögn). (Og ég tók þátt í því).

    Upp á síðkastið hefur þessi þróun svo gengið að nokkru leyti til baka, m.a. vegna miðla sem ekki ráða við að sýna útlitið (blindralesarar, farsímar o.s.frv.). Þannig að nú reyna menn (aftur) að vanda sig við að hafa mörkin lýsandi varðandi eðli textans (og skilgreina útlitið annars staðar).

    Þetta er nóg af nördalegri vefsagnfræði í bili :)

    26. júní 2003 kl. 16:05 GMT | #

  2. Zato svarar:

    Jahá. .. ég því miður hef ekki nógu mikla reynslu í HTML til að skila afhverju það má ekki bara hafa hlutina eins einfalda og hægt er að hafa þá... but hei ...þess vegna er ég nú ekki forritari (hihihih...ég er vondur strákur ég setti samasemmerki á milli html-ara og forritara.) :-)

    27. júní 2003 kl. 09:25 GMT | #

  3. AbstracT svarar:

    Ef tilgangurinn er einungis að breyta útlitinu, þá væri væntanlega betra að skilgreina letrið sem skáletrað í CSS í stað þess að nota <i>

    27. júní 2003 kl. 10:30 GMT | #

  4. Þorsteinn svarar:

    Stebbi hefur útskýrt þetta ágætlega (og réttilega) sem svo:

    • <em> og <strong> eru framsetningartög
    • <i> og <b> eru útlitstög

    Hentar betur fyrir framsetningu efnis fyrir blinda. Í raun geta þá vafrarnir beitt eigin aðferðum til að leggja áherslu á viðkomandi texta ef notast er við framsetningartögin. Mjög gott mjög gott

    27. júní 2003 kl. 12:33 GMT | #

Þessum svarhala hefur verið lokað. Kærar þakkir til þeirra sem tóku þátt í umræðunni.


 

Flakk um vefsvæðið



 

Nýleg svör frá lesendum


 

 

Yfirlit yfir þetta skjal

(Atriðin í listanum vísa á ákveðna kafla ofar á síðunni.)