Á leið til Siglufjarðar
Jæja, þá erum við Garpur á leið til Siglufjarðar, og verðum þar tveir saman fram í miðja næstu viku. Ég að vinna skilti og myndir fyrir Síldarminjasafnið og Garpur að kynnast Ölla afa og Guðnýju ömmu, og föðursystkynum sínum Hrafni og Hildi. Stína verður heima í borginni að taka á móti Mömmu sinni sem kemur til landsins á mánudag og æfa magadans og sinna sínum verkefnum.
Það er óvíst hvort ég muni skrifa mikið á vefinn þar til eftir að ég kem heim. Endilega haldið samt áfram að skrifa gáfulega hluti í svarþræðina við fyrri færslur.
Bless!
Meira þessu líkt: Logi Garpur.
Már Örlygsson



Þessum svarhala hefur verið lokað. Kærar þakkir til þeirra sem tóku þátt í umræðunni.