Favicon
"Favicon" er táknmynd sem margir vafrar birta með vefslóð vefsvæðis og í listum yfir síður sem hafa verið bókamerktar. Opera og Mozilla gera þetta t.d. mjög vel, en Internet Explorer birtir ekki táknmyndir vefsvæða fyrr en eftir aðmaður búið til bókamerki ("favourite" í IE) fyrir viðkomandi síðu.
Það er hægt að fara tvær leiðir að því að gefa síðunni sinni Favicon:
- Gefa tákmyndinni skráarnafnið favicon.ico og vista hana í "rótarslóð" heimasíðunnar (í mínu tilfelli á slóðinni http://mar.anomy.net/favicon.ico). Margir vafrar athuga sjálfkrafa hvort skrá með þessu nafni er til og nota hana sem tákmynd fyrir allar vefsíður á viðkomandi léni.
- Öllu traustari leið er að setja línuna
<link rel="shortcut icon" href="/favicon.ico" />einhvers staðar í<head>hluta allra vefsíðna sem eiga að birta tákmyndina. Með því að skipta textanum "/favicon.ico" út fyrir eitthvað annað skáarnafn eða aðra vefslóð má láta mismunandi síður fá ólíkar tákmyndir.
Áhugasamir geta fundið meiri upplýsingar um Favicon tákmyndir á síðunni Favicon.com
Favicon tákmyndir þurfa að vera á ".ico" formi (sama táknmyndaskráarform og MS Windows notar fyrir skrár og möppur) og til þess að búa til svona .ico skrár þarf að nota sérstök tákmyndateikniforrit.
Ég fann eitt svoleiðis forrit á netinu sem leyfir manni að teikna 16 x 16 díla tákmyndir í 16 mismunandi litum og fá þær sendar sem viðhengi í tölvupósti þegar maður er ánægður með útkomuna. Ég prófaði að búa til einfalda táknmynd fyrir síðuna mína (svona slaufa eins og er notuð til að merkja "áhugaverða staði" í kringum landið) en af einhverjum ástæðum neitar Internet Explorer að sýna táknmyndina mína, þótt allir aðrir vafrar birti hana með sóma.
Getur annars einhver bent á góð teikniforrit sem vista .ico skrár - og þá helst í mörgum stærðum (32 x 32 punktar væri æði líka) og meira en 16 litum? Helst mundi ég vilja geta undirbúið tákmyndirnar í photoshop og klístrað þeim fullunnum inn í tákmyndaforritið og vistað.
Best væri að finna forrit sem kostar ekki fullt af peningum og inniheldur ekki nein sníkjuforrit og ógeð...
Meira þessu líkt: HTML/CSS.
Már Örlygsson



Svör frá lesendum (6)
katrín svarar:
ég er með svona favicon hjá mér og það birtist voðalega takmarkað sko.. td aldrei hjá mér sjálfri..
9. júní 2003 kl. 17:08 GMT | #
Sigurjón Sveinsson svarar:
Sæll Mási. Ég sá að þig vantar forrit til að búa til .ico skrár. Tékkaðu á þessu: http://www.microangelo.us/. Ég notaði eldri útgáfu af þessu forriti með góðum árangri. Kannski þarf að kaupa þetta forrit eða ná í krakk á það. Ég veit það ekki. En kannski getur þú notað þetta. Sjáumst síðar kallinn.
9. júní 2003 kl. 23:05 GMT | #
spörri svarar:
Irfanview (hraðvirkur myndaskoðari fyrir windows)http://www.irfanview.com/ getur breytt myndum í ico fyrir þig. Svo er það sennilega einna besti myndaskoðari sem þú getur fengið á windows.
10. júní 2003 kl. 15:34 GMT | #
Ragnar Freyr svarar:
Ég hef nú aldrei prófað það en ég held að þú getir bara teiknað icon í Photoshop 16x16 eða 32x32, vistað síðan í .bmp og endurskýrt yfir í .ico!
Sel það þó ekki dýrara en ég keypti það!
Ragnar Freyr onrushdesign.com icelandicnationalteam.com
11. júní 2003 kl. 09:34 GMT | #
Már Örlygsson svarar:
Samkvæmt upplýsingum á Favicon.com þá er .ico formið ekki ósvipað .TIFF skráarforminu að því leyti að það getur innihaldið margar mismunandi útgáfur af myndinni. Sjá spurt og svarað á Favicon.com: http://www.favicon.com/#1-12
Mig langar einmitt til að búa til töffaralega táknmynd í 16x16 og 32x32...
...en kannski maður láti Photoshop duga til að byrja með. Ég kjáni að fatta ekki þann möguleika. Híhí :-)
11. júní 2003 kl. 09:46 GMT | #
Jósi svarar:
Þó að einstaka vafrar skilji .bmp mynd endurskírða .ico þá geymir hreinræktuð .ico faktískt tvær stærðir; 32x32 og 16x16, og strangt til tekið þarf .ico skrá að vera svoleiðis... Þessi blanda af tveimur stærðum er aðalástæða þess að ekki er hægt að vista .ico skrár beint úr photoshop.
11. júní 2003 kl. 09:53 GMT | #