IE og XML/CSS - heimski IE!

Skrifað 30. maí 2003, kl. 16:35

Ég lék mér að því um daginn að setja sætt CSS á RSS skjölin mín (RSS er XML). Eins og við var að búast stóð Internet Explorer (IE) sig áberandi verst í að birta CSSið rétt, en ég er svo sem orðinn löngu vanur því að IE sé gamalt drasl í samanburði við aðra, nýrri vafra. Samt tókst Microsoft að koma mér virkilega á óvart í þetta skiptið...

Svansson benti mér nefnilega á að þegar valið er "View Source" í IE þá fær maður bara skilaboðin: "The xml source is not available for viewing" - sem er auðvitað kjaftæði. Þetta virðist gilda almennt um öll XML skjöl sem maður gerir snoppufríð með CSS (í þessu tilfelli RSS skjöl) að IE harðneitar að sýna manni XML kóðann í skjalinu. Enginn annar vafri hegðar sér svona.

Hvað er þá til ráða ef mann langar til að skoða XML kóðann á bak við "snoppufrítt" RSS skjal í IE? Ef maður hægri-smellir á vísunina á RSS skjalið (t.d. þessa vísun) þá getur maður valið "Save Target As..." og XML skráin vistast með eðlilegum hætti. Það virkar hins vegar ekki að gera "File" -> "Save As..." því skjalið vistast ekki ef farin er sú leið.

Auðvitað á maður ekkert að láta þetta fara í taugarnar á sér, enda er engin raunveruleg þörf á að gera RSS skjöl snoppufríð, en ég er þrjóskur í dag og harðneita að fjarlægja CSS vísunina úr RSS skránum mínum bara til að eltast við vitleysisháttinn í úreltum vafra. (Pirr)


Meira þessu líkt: HTML/CSS.


Svör frá lesendum (6)

  1. Ragnar svarar:

    Már, bara til að fá það á hreint. Er vefurinn þinn ekki örugglega með hvítan bakgrunn, svart letur, bláa hlekki (og fjólubláa notaða)?

    Því þannig er birtingarformið í það minnsta í þeim 5-10 tölvum sem ég hef skoðað hann í...

    Btw. - XML skjalið er með grænan bakgrunn - Ansi flott

    Hef ekkert meira að segja en hérna eru tveir skemmtilegir hlekkir sem koma þessu máli ekkert við:

    http://web.media.mit.edu/~hayes/mas863/urinecontrol_video.html (Það er gott að vera í MIT og fá að leika sér)

    http://www.ideo.com/casestudies/SocialMobiles/index.html (Ágætur vefur fyrir áhugafólk um bætta farsímamenningu, ekki veitir Íslendingum af)

    30. maí 2003 kl. 17:10 GMT | #

  2. Borgar svarar:

    Undarlegt, en minn IE vill alveg sýna mér XMLið. Ég fæ ekkert múður heldur notepad fullt af fallegu XMLi (og já, ég er að nota IE6). Gaman að hafa þessi forréttindi! =)

    30. maí 2003 kl. 18:27 GMT | #

  3. Már Örlygsson svarar:

    Ragnar, já síðan mín birtist hvít með svörtum texta í flestum vöfrum, því ég er ekki að nota neitt stílblað ennþá.

    Borgar, athyglisvert ef sumir IE vafrar birta XML kóðann en aðrir ekki. Ég er mjög forvitinn að vita hvað veldur.

    30. maí 2003 kl. 20:09 GMT | #

  4. Borgar svarar:

    Áralöng þjálfun hefur kennt windows-notendum að yppa bara öxlum og vinna í kringum vandamálið því það er tilgangslaust að finna villurnar - MS laga þær hvort eð er ekki.

    Ég velti nákvæmlega þessu vandamáli fyrir mér á sínum tíma (vegna þess að ég lenti í þessu og ég vinn við vefgerð [andvarp]). Fann aldrei svarið þá... Google fann þetta hins vegar undir eins: http://www.webmasterworld.com/forum10/1753.htm

    Kemur svosem ekki á óvart að þetta er tengt einhverju jafn absúrd og of stóru temp safni :-)

    Nú er spurning hvort að við getum fengið Svansson til að tæma tempið sitt?

    31. maí 2003 kl. 02:20 GMT | #

  5. Svansson.net svarar:

    ekkert mál, fór og eyddi temporary internet files. Það breytti sumsé engu máli. Takk samt.

    31. maí 2003 kl. 15:53 GMT | #

  6. Már Örlygsson: "The xml source is not available for viewing"

    "Head geek, Tim Bray, makes note of my casual linking to his CSS is Not Rocket Science article and pokes fun at my silly photo. ;-) Tim, in my rant I was wenting fumes because of how Internet Explorer seems..." Lesa meira

    2. júní 2003 kl. 17:23 GMT | #

Þessum svarhala hefur verið lokað. Kærar þakkir til þeirra sem tóku þátt í umræðunni.


 

Flakk um vefsvæðið



 

Nýleg svör frá lesendum


 

 

Yfirlit yfir þetta skjal

(Atriðin í listanum vísa á ákveðna kafla ofar á síðunni.)