Heimasíða fyrir GPS kortlagningarnar

Skrifað 29. maí 2003, kl. 05:47

Keli er búinn að setja upp síðuna Kortagerð litla mannsins til að halda utan um söfnun, birtingu og úrvinnslu GPS mælinga okkar tveggja. Síðan byggir á Movable Type þannig að það verður auðvelt að hafa hana lifandi.

Til að skoða Reykjavíkurkortið sem er að verða til hægt og bítandi, eða Íslandskortið, þarf að sækja og setja inn ókeypis SVG viðbót frá Adobe (mjög fljótlegt og einfalt ferli, nema fyrir Opera).

Keli rölti fyrir Arnarnesið í byrjun vikunnar og veltir fyrir sér að því tilefni hvort það megi sjá eitthvað listrænt út úr þessum GPS gjörningum.

Í dag ætlum við Keli að taka Garp með okkur restina af leiðininni út skerjafjörðinn, út í Gróttu (á háfjörunni rétt fyrir hádegið), og eitthvað áleiðis í átt að Ánanaustinu, eins og við nennum.


Meira þessu líkt: GPS Kortagerð.


Svör frá lesendum (3)

  1. Dagbók Hrafnkels: Gengið fyrir Seltjarnarnes

    "Ég, Már og sonur hans Logi Garpur (ekki orðin 1 árs!) gengum saman fyrir Seltjarnarnesið í dag. Þetta var allt liður í kortagerð litla mannsins. Við lögðum upp u.þ.b. þar sem flugbraut Reykjavíkurflugvallar endar (byrjar?) þar sem Suðurgatan endar...." Lesa meira

    29. maí 2003 kl. 16:54 GMT | #

  2. Hrafnkell svarar:

    Forvitnir geta alveg komist af án SVG viðbótarinnar því kortin eru líka sem PNG myndir. Kíkið t.d. á http://kort.he.klaki.net/Reykjavik/Reykjavik.png

    29. maí 2003 kl. 17:09 GMT | #

  3. Josi.klaki.net: Kort, GPS og myndavélar (eða gnu/map ?)

    "Keli og Már hafa verið duglegir undanfarið við að fara í göngutúra með GPS tæki til að kortleggja strandir Íslands og Keli hefur sett upp vefsíðu með kortinu sem er þannig að verða til. Þetta rifjaði upp fyrir mér hugmynd..." Lesa meira

    15. júlí 2003 kl. 15:40 GMT | #

Þessum svarhala hefur verið lokað. Kærar þakkir til þeirra sem tóku þátt í umræðunni.


 

Flakk um vefsvæðið



 

Nýleg svör frá lesendum


 

 

Yfirlit yfir þetta skjal

(Atriðin í listanum vísa á ákveðna kafla ofar á síðunni.)