Góð ráð fyrir nýja Movable Type notendur

Skrifað 24. maí 2003, kl. 13:18

  1. Ef þú hefur áður notað Blogger til að skrifa á vefinn, leyfðu þá Blogger vefslóðunum þínum að lifa áfram. Það hafa örugglega einhverjir vísað á gamlar færslur hjá þér og það er alltaf leiðinlegt að brjóta vísanir annara. Þrjár mismunandi leiðir eru færar í þessu sambandi:

    1. Láta Blogger færslusafnið (HTML skrárnar) lifa áfram óhreyft, og reyna ekkert að færa gömlu færslurnar inn í Movable Type (MT), heldur skrifa bara nýjar færslur í MT. Þetta er lang einfaldasta leiðin.
    2. Flytja gömlu færslurnar inn í MT og uppfæra alla tenglana þína á eldri færslur en leyfa gömlu Blogger skránum að standa áfram fyrir þá sem villast þangað inn. Frekar einfalt og virkar vel.
    3. Gera eins og í (b) en breyta Blogger archive síðunum þannig að vísanir inn á þær virki áfram en breyta textanum við hverja færslu þannig að hann vísi á nýju MT slóðina fyrir þá færslu. Frekar flókið í framkvæmd en mjög "snyrtileg" lausn.
  2. Láttu dagsetninguna sjást í nýju dagbókarvefslóðunum þínum. MT býr sjálfgefið til vefslóðir með "ID" númeri hverrar dagbókarfærslu, en það getur valdið ótrúlegum vandræðum seinna meir þegar þú vilt flytja þessar færslur yfir í annað dagbókarkerfi (MT verður örugglega ekki seinasta kerfið sem þú munt nota! :-)

    Hér er kóði fyrir snyrtilegar vefslóðir, ekki ósvipaðar mínum, sem þarf bara að klístra inn í ""Weblog Config" -> "Archiving"" stillireitina í MT:

    • Individual Archives: <$MTEntryDate format="%Y/%m/%d/%H.%M.%S"$>.html
    • Daily Archives: <$MTArchiveDate format="%Y/%m/%d"$>/index.html
    • Monthly Archives: <$MTArchiveDate format="%Y/%m"$>/index.html
  3. Uppfærðu RSS kóðann þinn upp í útgáfu 2.0. Hér er gefins RSS 2.0 sniðmátskóði til að klístra inn í staðinn fyrir kóðann sem kemur með MT. Svo er líka mjög góð hugmynd að breyta nafninu á RSS skránni þinni þannig að hún endi á .xml í stað .rdf.
  4. Það er góð hugmynd að virkja valkostina "Turn on TrackBack auto-discovery" og "Allow Pings on by default" á MT stillisíðunni "Weblog Config" -> "Preferences".

Meira þessu líkt: Movable Type, Varanleiki & URL, Útgáfa.


Svör frá lesendum (6)

  1. Andri Sigurðsson svarar:

    Frábært trick þetta með snyrtilegu vefslóðirnar, ég kom því strax í gang hjá mér. Ég hef einmitt verið að setja upp MT vefinn minn núna í nokkrar vikur, ef ég væri ekki haldinn óbilandi fullkomnunaráráttu væri þetta löngu komið í loftið :Þ Meira svona takk ;)

    24. maí 2003 kl. 14:57 GMT | #

  2. Ágúst svarar:

    Vinsamlegast útskýrðu þetta með TrackBackið aðeins betur...

    Er að spá í það hjá mér núna :)

    25. maí 2003 kl. 21:06 GMT | #

  3. Már Örlygsson svarar:

    Ágúst, smelltu á "Weblog Config" hnappinn í hliðarvalmyndinni, og þar inn í velurðu "Preferences" stillisíðuna. Á ca. miðri þeirri síðu eru stillingar fyrir TrackBack "Pings". Hakaðu í valkostina tvo sem ég tel upp í lið 4 í færslunni hér að ofan.

    25. maí 2003 kl. 21:30 GMT | #

  4. Dagbók Hrafnkels: Góð ráð til MT notanda

    "Már tekur saman góð ráð til nýrra Movable Type notanda. Ég vil bæta nokkrum við. Til að auðvelda útgáfu á fleiri miðlum, sér í lagi fyrir WAP síma ættu menn að hafa eftirfarandi reglur í huga við skrif: Ef..." Lesa meira

    26. maí 2003 kl. 11:55 GMT | #

  5. Dagbók Kristjáns og Stellu: Fornar slóðir og nýjar

    "Hilluröðunin í skjalasafni dagbókarinnar hefur verið endurskoðuð með hliðsjón af ráðleggingum Más. Eftir smá regex leikfimi tókst mér að fá..." Lesa meira

    26. maí 2003 kl. 20:30 GMT | #

  6. Örvitinn: molarnir lesa ekki í tímaröð!

    "Uppfærði RSS yfirlitið eftir forskrift Más í leiðinni. Ég ætla samt ekki að uppfæra slóðirnar, sé ekki að það skipti nokkru máli og ef ég uppfæri síðar mun ég halda gömlum færslum í uppruna..." Lesa meira

    27. maí 2003 kl. 15:50 GMT | #

Þessum svarhala hefur verið lokað. Kærar þakkir til þeirra sem tóku þátt í umræðunni.


 

Flakk um vefsvæðið



 

Nýleg svör frá lesendum


 

 

Yfirlit yfir þetta skjal

(Atriðin í listanum vísa á ákveðna kafla ofar á síðunni.)