MT Ágúst in da House

Skrifað 24. maí 2003, kl. 09:54

Óska Ágústi til hamingju með að vera að flytja dagbókina sína(#) úr Blogger yfir í Movable Type og hafa tekist að setja fá MT til að keyra skammlaust. Þegar ég gafst upp á að hjálpa honum í nótt og fór að sofa, þá hafði okkur ekki tekist að fá kerfið til að keyra ennþá, þannig að hann hefur fundið út úr því sjálfur. :-)

Ég vona að hann láti gömlu Blogger archive slóðirnar sínar virka áfram. Það liggja ábyggilega nokkur hundruð vísanir héðan og þaðan inn á síðurnar hans sem munu brotna ef blogger slóðirnar hverfa.


Meira þessu líkt: Movable Type, Varanleiki & URL, Útgáfa.


Svör frá lesendum (2)

  1. Már Örlygsson: Góð ráð fyrir nýja Movable Type notendur

    "Ef þú hefur áður notað Blogger til að skrifa á vefinn, leyfðu þá Blogger vefslóðunum þínum að lifa áfram. Það hafa örugglega einhverjir vísað á gamlar færslur hjá þér og það er alltaf leiðinlegt að brjóta vísanir annara. Þrjár..." Lesa meira

    24. maí 2003 kl. 13:21 GMT | #

  2. Ágúst svarar:

    Auðvitað verður allt á sínum stað. Ég m.a.s. reyni að halda gömlu tripod-slóðunum í virku ástandi.

    Verst að ég þurfti að stækka plássið sem ég hef á sörvernum, þannig nokkrir dollarar bætast við VISAð en hvað gerir maður svo sem ekki fyrir sagnfræðinga framtíðarinnar ;-)

    24. maí 2003 kl. 13:55 GMT | #

Þessum svarhala hefur verið lokað. Kærar þakkir til þeirra sem tóku þátt í umræðunni.


 

Flakk um vefsvæðið



 

Nýleg svör frá lesendum


 

 

Yfirlit yfir þetta skjal

(Atriðin í listanum vísa á ákveðna kafla ofar á síðunni.)