Góð ráð fyrir nýja Movable Type notendur
Ef þú hefur áður notað Blogger til að skrifa á vefinn, leyfðu þá Blogger vefslóðunum þínum að lifa áfram. Það hafa örugglega einhverjir vísað á gamlar færslur hjá þér og það er alltaf leiðinlegt að brjóta vísanir annara. Þrjár mismunandi leiðir eru færar í þessu sambandi:
- Láta Blogger færslusafnið (HTML skrárnar) lifa áfram óhreyft, og reyna ekkert að færa gömlu færslurnar inn í Movable Type (MT), heldur skrifa bara nýjar færslur í MT. Þetta er lang einfaldasta leiðin.
- Flytja gömlu færslurnar inn í MT og uppfæra alla tenglana þína á eldri færslur en leyfa gömlu Blogger skránum að standa áfram fyrir þá sem villast þangað inn. Frekar einfalt og virkar vel.
- Gera eins og í (b) en breyta Blogger archive síðunum þannig að vísanir inn á þær virki áfram en breyta textanum við hverja færslu þannig að hann vísi á nýju MT slóðina fyrir þá færslu. Frekar flókið í framkvæmd en mjög "snyrtileg" lausn.
Láttu dagsetninguna sjást í nýju dagbókarvefslóðunum þínum. MT býr sjálfgefið til vefslóðir með "ID" númeri hverrar dagbókarfærslu, en það getur valdið ótrúlegum vandræðum seinna meir þegar þú vilt flytja þessar færslur yfir í annað dagbókarkerfi (MT verður örugglega ekki seinasta kerfið sem þú munt nota! :-)
Hér er kóði fyrir snyrtilegar vefslóðir, ekki ósvipaðar mínum, sem þarf bara að klístra inn í ""Weblog Config" -> "Archiving"" stillireitina í MT:
- Individual Archives:
<$MTEntryDate format="%Y/%m/%d/%H.%M.%S"$>.html - Daily Archives:
<$MTArchiveDate format="%Y/%m/%d"$>/index.html - Monthly Archives:
<$MTArchiveDate format="%Y/%m"$>/index.html
- Individual Archives:
- Uppfærðu RSS kóðann þinn upp í útgáfu 2.0. Hér er gefins RSS 2.0 sniðmátskóði til að klístra inn í staðinn fyrir kóðann sem kemur með MT. Svo er líka mjög góð hugmynd að breyta nafninu á RSS skránni þinni þannig að hún endi á
.xmlí stað.rdf. - Það er góð hugmynd að virkja valkostina "Turn on TrackBack auto-discovery" og "Allow Pings on by default" á MT stillisíðunni "Weblog Config" -> "Preferences".
Már Örlygsson



Nýleg svör frá lesendum