Keppni í að vera sem mest eins

Skrifað 23. maí 2003, kl. 22:29

Er að horfa á keppnina Ungfrú Ísland ruglaða á Stöð 2. Djöfull er þessi keppni vandræðaleg. Úff maður. Best að labba um í næstum því engu, dilla sér vandræðalega og reyna á sama tíma að halda virðingu sinni.

Hvað fær fólk til að vilja taka þátt í svona lummulegheitum?

...ekki það, þetta eru á köflum ósköp sætar stelpur.

Samt fyndið hvernig þessi keppni (og aðrar fegurðarsamkeppnir) gengur út á að hópur af ungum stúlkum keppist um að vera sem mest "eins". Þær eru hver annari meira eins - einsari - og sú vinnur sem er mest eins - einsust. Maður verður svo skýrt var við þetta þegar maður horfir á svona keppni í ruglaðri útsendingu. Það er algjörlega vonlaust að þekkja þær í sundur því þær eru allar svo óskaplega ... eins.


Meira þessu líkt: Femínismi, Listir og menning.


Svör frá lesendum (5)

  1. Ágúst svarar:

    Já, bara verst hvað þær eru "truflaðar" ;-)

    23. maí 2003 kl. 22:49 GMT | #

  2. Zato svarar:

    Á næsta ári ætla ég að laumast baksviðs og lauma ælu meðali í vatnið þeirra .. það ætti að vera MJÖG interesant keppni ....... fegurðar drotningar að æla hver yfir aðra... now I´ll pay to see that !

    24. maí 2003 kl. 11:14 GMT | #

  3. Már Örlygsson svarar:

    Zato, ég er ekki viss um að það sé góð hugmynd að segja frá svona áætlunum í opinni dagbók á vefnum. :-)

    24. maí 2003 kl. 11:18 GMT | #

  4. Zato svarar:

    no plan is perfect ...

    24. maí 2003 kl. 23:17 GMT | #

  5. Tóró svarar:

    Ég vil ekki vita hvað olli því að þú horfðir á fegurðarsamkeppni í ruglaðri útsendingu. Vil ekki, vil ekki...

    26. maí 2003 kl. 10:36 GMT | #

Þessum svarhala hefur verið lokað. Kærar þakkir til þeirra sem tóku þátt í umræðunni.


 

Flakk um vefsvæðið



 

Nýleg svör frá lesendum

  • Stefán (Hugmynd að gjörningi)
  • mylotarg drug (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • mylotarg drug (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • pamelaanderson (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • Production Music (Íslenskt leitarvélaspam?)
  • ma801zda (Vélrænar þýðingar)
  • tapasbocnoa (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • Siggi Palli (Vélrænar þýðingar)
  • Bjarni Rúnar (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • Unnur María (Vélrænar þýðingar)
  • Már (Vélrænar þýðingar)
  • Valdís (Vélrænar þýðingar)
  • Már (Vélrænar þýðingar)
  • Hrafnkell (Vélrænar þýðingar)
  • Már (Vélrænar þýðingar)

 

 

Yfirlit yfir þetta skjal

(Atriðin í listanum vísa á ákveðna kafla ofar á síðunni.)