GPS fjörugangan mikla
Við Keli létum verða að því að ganga með GPS tæki eftir strandlengju Reykjavíkur. Við töfðumst og byrjuðum ekki fyrr en nokkru eftir að byrjað var að falla að, en það stytti vegalengdina sem við náðum að mæla.
Það tekur skratti mikið á að brölta í fjörugrjóti, en það féll aðallega í minn verkahring þar sem ég er í ívið betra formi en Keli og mun vanari en hann að fóta mig í stórgrýttum fjörum. Það er alveg merkilegt hvað jafnvægisskynið batnar hratt við að klöngrast svona.
Við náðum að mæla tæpa 12 kílómetra frá botni Kópavogs, fyrir Kársnesið, inn Fossvog og út Skerjafjörð fram undir Suðurgötu, en þá var orðið svo stórstreymt að það var ekkert vit í þessu lengur.
Á leiðinni heim, tók ég létt "swing" kring um alla þrjá hluta tjarnarinnar með GPS tækið góða. Þar hitti ég Arnheiði og fjölskyldu og neyddist til að útskýra hvers vegna ég þræddi tjarnarbakkann með lítið raftæki í útréttri hendi.
Ég er þægilega þreyttur í líkamanum eftir gönguna og hlakka til að taka næsta hluta leiðarinnar. Nördatrimm er skemmtilegt.
Keli mun væntanlega bæta niðurstöðum þessara landmælinga við íslandskortið góða einhvern næstu daga.
Meira þessu líkt: GPS Kortagerð.
Már Örlygsson



Svör frá lesendum (1)
Dagbók Hrafnkels: Fjörulabb með Má
19. maí 2003 kl. 12:40 GMT | #