GPS fjörulabb
Við Keli kortanörd erum að plana göngutúr á laugardaginn með GPS tækið hans eftir strandlengju Kópavogs og Reykjavíkur til að bæta þeim upplýsingum inn á Íslandskortið hans.
Keli fann tvær þjónustur sem eru gagnlegar þegar svona ferðir eru undirbúnar:
- EasyTide gefur sjávarfallaspá fyrir Reykjavík og allar helstu hafnir á Íslandi (og í heimi!). Spáin sýnir að ef við leggjum af stað fyrir hádegi á laugardag, þá náum við góðri stórstraumsfjöru. Þá þurfum við bara að lesa úr fjörugrjótinu hvar "meðalströndin" er og labba eftir henni.
- Síða sem spáir fyrir um stöðu GPS gerfitungla á gefinni stund og stað á hnettinum. Hnattstaða Reykjavíkur er 64° 09' norður og 21° 58' vestur
Gott trimm dulbúið sem nördaskapur.
P.S. á meðan ég var að skrifa þetta er Keli búinn að skrifa færslu um þetta sama.
Meira þessu líkt: GPS Kortagerð.
Már Örlygsson



Svör frá lesendum (1)
Már Örlygsson: GPS fjörugangan mikla
18. maí 2003 kl. 02:29 GMT | #