Hugsanabrot mín um femínistafélagið

Skrifað 1. maí 2003, kl. 21:54

Ég er mikið að pæla í femínistafélaginu þessa dagana. Þetta er merkilegur félagsskapur sem ég er glaður að hafa fengið að fylgjast með og taka þátt í, en þessa dagana er eins og stefna og áherslur félagsins séu fyrst að taka á sig mynd og enn er ekki alveg ljóst hver sú mynd verður. Ég safna hérna saman, til minnis fyrir mig, efni sem ég hef skrifað í tölvupósti og í svarþráðum á heimasíðum annara.

Fyrst er rétt að benda á nýtilbúna samantekt á öllum skrifum mínum um femínisma á þessari síðu. Þessi færsla birtist sér í lagi á þeim lista.

Um daginn sendi ég eftirfarandi fyrirspurn á Femínistapóstlistann:

Í allri þessari netumræðu um ritskoðun og "mannýga femínista" þá varð mér það á að ramba inn á heimasíðu félagsins og fann þar ávarp Gyðu frá stofnfundinum (ég var ekki á stofnfundinum):

Er þetta virkilega sú ímynd sem félagið vill gefa af sér? Mér finnast þessir "draumar" ekkert sérlega geðfelldir, og ef þetta hefur eitthvað með opinbera stefnu félagsins að gera þá er ég ekki viss um að ég sé í réttum félagsskap.

...en grínlaust, þá langar mig að vita hvað ykkur listameðlimum finnst um þessa ræðu. Ykkar tilfinningar um hana og þá mynd sem hún gefur?

Út frá bréfinu spannst mikil umræða sem hefur breiðst út um víðan vefvöll. Það er greinilegt að bréfið stuðar er síendurtekið notað til að alhæfa um stefnu og starfsaðferðir félagsins. Það að bréfasafn póstlistans er ekki aðgengilegt almenningi bætir þar ekki úr skák.

Sumir femínistar hafa notað orð eins og "skoðanakúgun" og "þöggunartilburði" um skrif þeirra femínista sem hafa gagnrýnt birtingu ræðunnar á heimasíðu félagsins. Þeim röddum hef ég svarað á heimasíðu Salvarar:

Það var enginn sem hélt því fram að Gyða ætti ekki fullan rétt á því að láta sig dreyma og segja öllum frá því. Málið snérist ekki um skoðanakúgun eða ritskoðun á neinu leveli, heldur snérist það um hvað hentaði félaginu best í opinberri kynninarstarfssemi þess - hvaða textar gæfu réttasta mynd af sameiginlegum markmiðum og skoðunum félagsmanna og hverjir ekki.

...og á póstlistanum

Draumur Gyðu fer *ekki* í taugarnar á mér, og ég skal glaður berjast hatrammlega fyrir rétti hennar og allra annara til að láta sig dreyma og skrifa um það. Mínar efasemdir (ef efasemdir skal kalla) snúa að félaginu sjálfu; hlutverki þess, stefnu, ímynd útá við, og möguleikum þess á að hafa jákvæð áhrif á íslenskt samfélag með tilliti til framangreindra atriða.

Í óbeinum tengslum við þessa umræðu um ímynd og stefnu félagsins, og vegna þess að (dulítið vafasamar) heimildir herma að lítill hópur framtaksamra félagsmanna standi fyrir róttækum átaksherferðum undir beinum eða óbeinum formerkjum félagsins, þá hef ég spurt mig hvert félagið stefnir og hvort ég vilji fylgja félaginu sama hver sú leið verður.

Í svarþræði hjá Salvöru:

Það er svo einfalt að ef það á að nota félagið til að keyra áfram skoðanir/aðferðir á borð við þær sem Gyða og skoðanasystkyn hennar "dreymir" um, og gera það í mínu nafni, þá tek ég staf minn og geng. Mig grunar að sama gildi um marga aðra.

Þetta er hápólitískt mál sem varðar spurninguna hvort fólk með ólíkar skoðanir geti unnið friðsamlega saman í breiðri femínistafylkingu að sameiginlegum baráttumálum sínum eða hvort lítill hópur duglegra og kraftmikilla róttæklinga breyti félaginu í lítinn fókuseraðan klúbb sem væri þá meira í líkingu við það sem Bríet er/var.

Um samvinnu á heimasíðu Salvarar í sama svarþræði og að ofan:

Það er staðreynd að ef ólíkir aðilar eiga að geta unnið saman þá verða *allir* að vera tilbúnir að brjóta odd af oflæti sínu og láta ákveðin deilumál liggja á milli hluta á vinnustaðnum. Það gengur aldrei að bara annar aðilinn gefi endalaust eftir sínar skoðanir án þess að neitt komi á móti.

Þar með er ég ekki að segja að róttæklingarnir í Femínistafélaginu eigi að hætta að vera róttækir og reiðir - þvert á móti! - heldur að þeir eigi að vera róttækir og reiðir undir eigin formerkjum. Mig grunar t.d. að félagið Bríet sé og hafi alltaf verið prýðilegur vettvangur fyrir róttækar femínískar aðgerðir.

Þá upplifði ég það þannig að femínistafélagið hefði verið stofnað með þeim formerkjum að þar væri breitt og umburðalynt félag þar sem höfðað væri til fólks úr öllum krókum og kimum skoðanaflórunnar til að mætast og vinna saman að *sameiginlegum* baráttumálum sínum, s.s. almennri viðhorfsbreytingu í samfélaginu, bættri ímynd femínismans, etc. og mér finnst ef að það var markmiðið í upphafi, að þá sé ekki rétt að svíkja það.

...nógir minnispunktar í bili.

Í öðrum fréttum: Eins og einhverjir hafa orðið varir við þá hélt ég uppi háværri vörn fyrir femínistafélagið þegar Orri hraunaði yfir femínista á síðunni sinni (púff!). Í lokafærslu sinni um málið segist hann hafa "sannanir" og hvaðeina en ætlar ekki að tjá sig um þær í bili sökum prófa.

Ég held að Orri sé fullur af stórum orðum en hafi ekkert í höndunum til að styðja þau. Við Orri höfum talað saman í tölvupósti um málið og þar hvatti ég hann ítrekað til að koma hreint fram í ásökunum sínum og birta sannanirnar sem hann þykist hafa. Ég hef meira að segja boðið honum aðstoð mína við að koma þeim á framfæri, en allt kom fyrir ekki. Enn standa skrif hans sem innantóm rægingarherferð gegn öllum femínistum.


Meira þessu líkt: Femínismi.


Þessum svarhala hefur verið lokað. Kærar þakkir til þeirra sem tóku þátt í umræðunni.


 

Flakk um vefsvæðið



 

Nýleg svör frá lesendum

  • Stefán (Hugmynd að gjörningi)
  • mylotarg drug (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • mylotarg drug (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • pamelaanderson (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • Production Music (Íslenskt leitarvélaspam?)
  • ma801zda (Vélrænar þýðingar)
  • tapasbocnoa (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • Siggi Palli (Vélrænar þýðingar)
  • Bjarni Rúnar (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • Unnur María (Vélrænar þýðingar)
  • Már (Vélrænar þýðingar)
  • Valdís (Vélrænar þýðingar)
  • Már (Vélrænar þýðingar)
  • Hrafnkell (Vélrænar þýðingar)
  • Már (Vélrænar þýðingar)

 

 

Yfirlit yfir þetta skjal

(Atriðin í listanum vísa á ákveðna kafla ofar á síðunni.)