American Psycho?

Skrifað 26. apríl 2003, kl. 14:49

Leiðindavefsvæðið rantur.com er horfið af vefnum og Tómas H skrifar stuttlega um það.

Í skáldsögunni (og síðar bíómyndinni) American Psycho er sögð saga ungs verðbréfabraskara. Hann er vel menntaður, í vel launuðu starfi hjá virðulegu fyrirtæki, og af góðum ættum. Á yfirborðinu er allt slétt og fellt og fallegt en í skjóli myrkurs fremur hann skelfileg ofbeldisverk. Hann virðist fullur haturs í garð lágstéttarfólks og kvenna og hefur ríka pyntingarhvöt. Inn á milli i bókinni, milli persónulegra lýsinga á óyndisverkum mannsins, brestur hann á með angurværum umfjöllunum um uppáhalds tónlistarmennina sína eða úttektum á bestu ástalögum Whitney Houston.

Ég get ekki að því gert að sjá ákveðna tengingu milli þess sem gekk á í skjóli nafnleysis á Rantur.com, og "atmósunnar" í American Psycho. Lágstéttahatrið, kvenhatrið, siðblindan í níðinu, og svo einhverjar svona "schizo" greinar inn á milli um hvað það er yndislega gaman að leika sér á róló með litlum börnum.

Auðvitað er ég ekki að eigna þessum mönnum neitt annað en það sem þeir skrifuðu opinberlega á Rantur.com. Hins vegar finnst mér vert að draga fram hliðstæðurnar milli skáldsögunnar og persónanna sem þeir sýndu á netinu, og velta fyrir mér hverjar fyrirmyndir þeirra séu og hvaða hvatir drífa þá áfram.

Önnur pæling: Það alkunna í vissum hópi fólks hvaða menn það voru sem stóðu að skrifunum á Rantur.com, en ég velti fyrir mér: Mundi það þjóna einhverjum tilgangi að nafngreina þessa einstaklinga opinberlega? Í aðra röndina sé ég ekki hvað væri rangt við það en á sama tíma finnst mér það vera algjör óþarfi.


Meira þessu líkt: Útgáfa.


Svör frá lesendum (5)

  1. Vefdagbok Tryggva: Ranturinn allur

    "Nú er mál mætra manna að Ranturinn sé allur. Ég sé ekki eftir þeim skrifum, þá sjaldan ég asnaðist til að lesa þau. Ég nefndi þá einu sinni í tengslum við stíl og snilld en aðallega til að fá dæmi um skort..." Lesa meira

    26. apríl 2003 kl. 15:33 GMT | #

  2. Jón Örlygsson svarar:

    Til hamingju með Femínista Possíið þitt. Plís ekki tala um online sjálfsrritskoðun aftur. Ekki það að ég sjái eftir Rantinum. En þú ert búinn að missa alveg helling af kúdosi.

    26. apríl 2003 kl. 16:56 GMT | #

  3. Már Örlygsson svarar:

    Sæll félagi Örlygsson. Þetta er nú bara ótrúlega kjánalegt fleim hjá þér, og ég ætla einmitt þess vegna að leyfa því að standa.

    Mér finnst það samt alveg geðveikt kúl hugmynd að ég eigi svona einka "femínistapossí" - svona "Mí and mæ bitsjes!" dæmi. Tóm snilld! Ég þarf að hrinda því í framkvæmd við tækifæri. ...uhm... Ég lýsi hér með eftir femínistaskvísum í klíkuna og tek við umsóknum í tölvupósti :-)

    27. apríl 2003 kl. 00:43 GMT | #

  4. Már Örlygsson: Egill segir...

    "Ljúflingurinn Egill segir söguna af lokun Rantur.com eins og hún snéri að honum sem hýsingaraðila lénsins. Hann segir m.a.: "Ég veit fyrir víst að eftir að hafa heyrt í [aðstandendum Rantur.com] í gær, að þá ætla þeir að snúa sér..." Lesa meira

    27. apríl 2003 kl. 01:13 GMT | #

  5. egill svarar:

    Mig langar til að vera í gellu-possíi...

    Hvar sæki ég um?

    27. apríl 2003 kl. 12:14 GMT | #

Þessum svarhala hefur verið lokað. Kærar þakkir til þeirra sem tóku þátt í umræðunni.


 

Flakk um vefsvæðið



 

Nýleg svör frá lesendum


 

 

Yfirlit yfir þetta skjal

(Atriðin í listanum vísa á ákveðna kafla ofar á síðunni.)