Getur verið að EMI sé að "fatta" netið?

Skrifað 25. apríl 2003, kl. 03:52

Frétt á BBC: EMI backs digital downloads

"Faced with sliding music sales, EMI has ditched efforts to stamp out online distribution altogether in favour of more liberal licencing arrangements. "

Hljómar eiginlega of vel til að maður trúi því. Ég vona bara...:

  • að EMI verðleggi tónlistina á sanngjarnan hátt. Það vill enginn borga 2000 kr fyrir 12 hljóðskrár með misgóðum lögum.
  • að EMI dreifi tónlistinni á opnu formi sem hægt er að spila á öllum tölvum - ekki bara Windows eða MacOS tölvum. (MP3 eða Ogg form væri best)
  • að hljómgæði skránna sem maður borgar fyrir sé a.m.k. jafn góð og hljómgæðin á geisladiski.
  • að EMI ákveði að líta ekki á frjálsa dreifingu sem þjófnað heldur aukna markaðshlutdeild.

Í öðrum fréttum er að svín ætla víst að hefja sig til flugs í næstu viku.


Meira þessu líkt: Höfundaréttur, Viðskipti, Útgáfa.


Svör frá lesendum (3)

  1. Jósi svarar:

    Öll "big 5" útgáfufyrirtækin (EMI meðtalið) ætla að taka þátt í nýrri tónlistarþjónustu sem Apple er að fara að hleypa af stokkunum eftir helgi. Sagan segir að tónlistin verði á AAC (mpeg 4) formi og að fyrst um sinn verði þetta bara fyrir MacOS...

    http://www.latimes.com/business/la-fi-music4mar04,1,7646945.story?coll=la%2Dhome%2Dtodays%2Dtimes

    http://www.macrumors.com/pages/2003/04/20030421114525.shtml

    http://www.macrumors.com/pages/2003/04/20030425025727.shtml

    25. apríl 2003 kl. 08:32 GMT | #

  2. Jósi svarar:

    http://www.apple.com/music/store/

    Hvert lag kostar 0.99$, það er einhverskonar DRM byggt inn í þetta (engin smáatriði hafa verið gefin upp), maður getur streamað tónlist til vina sinna en ekki kóperað til þeirra, en samt er hægt að brenna diska með tónlistinni. Þeir eru greinilega að veðja á að það verði svo einfalt/ódýrt að ná í eitt lag að maður nenni ekki að brenna diska og labba með á milli. Það verður svo gaman að sjá hvað það mun taka langan tíma þar til þetta DRM verður krakkað ;-)

    28. apríl 2003 kl. 19:58 GMT | #

  3. Jósi svarar:

    http://apple.slashdot.org/comments.pl?sid=62298&cid=5827403

    Svo virðist sem að DRM dótið í þessu sé til þess að ekki sé hægt að kópera beint til annarra úr spilaranum/download forritinu, en það er samt hægt að fara í kringum það. Þetta er sniðug leið, að gera löglegu leiðina svo ódýra og auðvelda að maður nenni ekki að standa í sjóræningjadótinu, en ekki vera með leiðinlega forræðishyggju og læsa allt niður, eins og Palladium stefnir að. Ef að minni útgáfufyrirtæki fá að selja sína tónlist þarna og önnur stýrikerfi en MacOS og Windows (Windows útgáfan kemur síðar á þessu ári) geta tengst þessu, þá verður þetta flott.

    29. apríl 2003 kl. 11:44 GMT | #

Þessum svarhala hefur verið lokað. Kærar þakkir til þeirra sem tóku þátt í umræðunni.


 

Flakk um vefsvæðið



 

Nýleg svör frá lesendum


 

 

Yfirlit yfir þetta skjal

(Atriðin í listanum vísa á ákveðna kafla ofar á síðunni.)