Ritskoðun?

Skrifað 22. apríl 2003, kl. 13:31

Ég er núna í þeirri stöðu að ég gæti þurft að ritskoða mig all verulega. Ég vinn sem sjálfstæður verktaki fyrir hina og þessa viðskiptavini, og það er staðreynd að sum fyrirtæki (kúnnar/samstarfsaðilar/etc./etc.) sjá það sem vandamál að ég viðri mínar persónulegu skoðanir á lífinu og tilverunni á opinni vefsíðu. Ég hef enn ekki lent í neinum árekstrum út af því sem ég hef tjáð mig um hérna, en ég sé fram á að það geti með þessu áframhaldi hæglega gerst í framtíðinni. Hvernig á ég að bregðast við því?

Á ég að hætta í tölvubransanum og fá mér launavinnu við eitthvað "low profile" eins og að smíða loftræstikerfi til þess að geta tjáð sig algjörlega óheft? Á ég aldrei að tjá mig um núverandi og fyrrverandi kúnna/samstarfsaðila nema ef ég tala fallega um þá? Ef ég tjái mig ekki um fyrirtæki A, er ég þá ekki hræsnari ef ég held árfam að segja skoðanir mínar á fyrirtækjum B og C sem eru í samkeppni við A? Á ég að loka dagbókinni eða einskorða skrif mín við erlendar bíómyndir, son minn og kettina mína tvo? Á ég að setja mér skýru reglu að láta aldrei uppi opinberlega hvaða verkefnum ég hef unnið að og með hverjum ég vinn - ekkert CV, enginn verkefnalisti?

Hvar dregur maður grensuna í svona málum? ...eða á ég bara að hætta þessu alveg?

Viðbót: Í svörunum bætti ég við nánari skýringu á því sem ég er að meina.


Meira þessu líkt: Um þessa síðu, Útgáfa.


Svör frá lesendum (22)

  1. Bjarni Rúnar svarar:

    Þú verður bara að fá á hreint þegar þú hefur störf hjá e-m hvaða hluti starfsins teljast vera trúnaðarmál og hvað ekki. Fyrirtæki hafa nákvæmlega engann rétt til að skipta sér af öðru sem þú vilt tjá á þínum vef.

    Ég persónulega verð ofboðslega pirraður þegar settur er þrýstingur á mig gegnum vinnu eða þessháttar til að halda kjafti...

    En á móti kemur að ég er mjög duglegur að halda kjafti og setja allt sem gæti komið mér illa í lokaðan hluta dagbókarinnar minnar, þannig að ég er kannski ekki besti talsmaður óheftrar tjáningar... ;-)

    22. apríl 2003 kl. 14:17 GMT | #

  2. Jósi svarar:

    Sjálfur hef ég í gegnum tíðina ritskoðað sjálfan mig mismikið eftir því fyrir hvern ég er að vinna í það og það skiptið. Í blankheitum undanfarinna mánaða hef ég síðan fundið fyrir yndislegu frelsi, vegna þess að ég þori að tjá mig. Það er ekki eins og maður missi vinnuna sem maður hefur ekki. Í þínum sporum myndi ég bara passa mig að sýna hóf í umfjöllun um atvinnuveitendur; Þó að þú vinnir fyrir A þá er í lagi að fjalla um A almennt en kannski ekki í lagi að segja að Jón Jónsson hjá A sem sjái um vefsíðumál viti ekki hvað hann sé að gera. Það er bara bissness að halda kúnnanum góðum, og viss þagnarskylda hlýtur að vera í þínu starfi eins og hjá öðrum stéttum. Þú hlýtur að mega fjalla um A, að því gefnu að þú ljóstrir ekki upp um innherjaupplýsingar og talir þá eins um A, B og C. Hinsvegar flækist málið ef að þú lítur á mar.anomy.net sem fréttamiðil, en þá þarftu að pæla í fréttamannasiðferði...

    22. apríl 2003 kl. 14:37 GMT | #

  3. Tóró svarar:

    Þetta er ágæt spurning. Síðast þegar ég vissi varst þú nú þokkalega skynsamur ungur piltur þannig að ég held að þú hafir vit til að forðast öll alvöru vandræði.

    Sammála Bjarna um að eðlilegt er að spjalla við þína viðskiptamenn um það hvað er leyndó og hvað ekki í vinnu þinni fyrir þá. Svo lengi sem umfjöllun um nafngreinda aðila er formi rökstuddrar gagnrýni ("rýnt til gagns") á það engann að saka, hvort sem sá aðili heitir A eða C.

    Í anda hænu/egg rökræðu má setja dæmið upp svona:

    Þú ert gagnlegur/verðmætur starfskraftur vegna þess að þú ert "authority" um notendamiðaða vefhönnun (ef ég fer rétt með frasann). Þú hefur þekkingu vegna þess að þú fylgist með því sem er að gerast úti í heimi og ert "authority" vegna þess að þú heldur þeirri þekkingu á lofti (m.a. hér) og ert tilbúinn að rökræða og ganga á undan með góðu fordæmi. Ef þú hættir bera visku þína á torg með þessum hætti rýrnar styrkur þinn sem starfskrafts ;)

    En lína botnsins er sú að þú þarft bara að vera meðvitaður um að stíga varlega til jarðar og sýna smá skynsemi.

    22. apríl 2003 kl. 14:41 GMT | #

  4. Jósi svarar:

    Smá tæknipæling, ætli sé hægt að hakka Movable Type til að setja User/Password á lá Bjarni Rúnar? Ég finn ekki svoleiðis plugin í fljótu bragði...

    22. apríl 2003 kl. 14:47 GMT | #

  5. Vefdagbók Tryggva: Að ritskoða sjálfan sig

    "Már var að velta fyrir sér eigin ritskoðun áðan og aðrir benda á að einhverjir stundi sögufölsun/ritskoðun. Ég hef þurft að passa mig í þessu, enda skrifað undir marga og torlesna trúnaðarsamninga sem væri mjög vont fyrir mig að brjóta gegn. Þá..." Lesa meira

    22. apríl 2003 kl. 14:54 GMT | #

  6. Már Örlygsson svarar:

    Ég hef aldrei skrifað um trúnaðarmál eða málefni sem snúa að hlutum sem snerta fagleg samskipti mín og kúnnans og hef ekki í hyggju að byrja á því nokkurn tíman.

    Það sem ég er að velta fyrir mér eru skálduð dæmi eins og þetta:

    • Ég vinn að gerð vefsíðu fyrir fyrirtæki A og leysi það verkefni með sóma.
    • Óháð öllum vefverkefnum þá á ég viðskipti við fyrirtæki A, sé auglýsingaherferð, les fréttatilkynningu um eitthvað, eða mynda mér almennt skoðun á tilvist fyrirtækis A og segi frá þeirri skoðun á heimasíðunni minni.
    • Fyrirtæki A (eða starfsmenn þess) fá veður af því sem ég skrifa á heimasíðuna mína og finnst að ég sé "biting the hand that feeds me" og slíta öllum frekari viðskiptum við mig.

    Sama gæti hugsanlega átt sér stað í gegnum einn eða fleiri milliliði sem finnast viðskiptavild sinni hjá Fyrirtæki A ógnað með tjáningu minni.

    Svona aðstæður eru enganveginn bundnar við mig persónulega, heldur grunar mig að þetta sé eitthvað sem snertir fjölmarga aðra óbreitta íslenska "bloggara".

    Hvar endar málfrelsi hins vinnandi manns?

    22. apríl 2003 kl. 14:58 GMT | #

  7. Jósi svarar:

    Hinn vinnandi maður hefur töluvert meira málfrelsi en verktakar eins og þú :) Venjulegir launamenn hafa samninga sem ekki er jafn auðvelt að segja upp eins og að ráða ekki verktaka í fleiri verkefni...

    22. apríl 2003 kl. 15:11 GMT | #

  8. Einar Örn svarar:

    Ég skil þetta mjög vel, Már. Ég hef oft velt því fyrir mér hvort til dæmis það sem ég læt útúr mér á síðunni gæti komið niðrá veitingastaðnum, sem ég á.

    Það er ómögulegt að gera öllum til geðs, þannig að það eru sennilega alltaf einhverjir, sem hneykslast á skrifum manns, hvort sem maður skrifar með/móti stríði, vinstri/hægri eða hvað sem er.

    Þetta var mun auðveldara þegar maður var í skóla. Sennilega er þetta ein af ástæðunum fyrir því að margir bloggerar hætta þegar þeir útskrifast úr háskóla.

    22. apríl 2003 kl. 15:13 GMT | #

  9. Bjarni Rúnar svarar:

    Ég held að þetta sé að einhverju leyti spurning um að vera sanngjarn. Menn verða fúlir ef þú gerir ekkert nema gagnrýna... en ef þú hrósar af og til líka þá fæst ballans.

    Það er yfirleitt hægt að finna eitthvað fallegt til að segja um alla ef maður á annað borð hefur áhuga á því. :-)

    Og auðvitað er algjört lykilatriði að láta vita ef menn sem þú hefur gagnrýnt laga það sem þér fannst vera að og hrósa fyrir það sérstaklega.

    22. apríl 2003 kl. 15:20 GMT | #

  10. Már Örlygsson svarar:

    Ég reyni alltaf eftir fremsta megni að vera sanngjarn og málefnalegur þegar ég tjái skoðanir mínar á fólki, fyrirtækjum og málefnum, og ég þykist vera nokkuð duglegur við að hrósa þegar tilefni er til þess.

    Auðvitað er ég ekkert fullkominn í þessu frekar en aðrir, og skýt mig einstaka sinnum í fótinn með vanhugsuðum athugasemdum og orðalagi. Ég reyni samt yfirleitt að leiðrétta slík mistök með sýnilegum hætti og biðja viðkomandi aðila afsökunar ef tilefni er til þess.

    Það er einmitt það sem mér finnst svo erfitt við tilhugsunina um að segja ekkert nema jákvæða hluti um aðila sem ég hef unnið fyrir, en ætla svo að tjá mig um samkeppnisaðilana kúnnans, bara af því ég hef ekki unnið fyrir þá. Mér finnst slíkt ekki heiðarlegt og mér ekki sæmandi. Þá vil ég frekar leggja niður þessa síðu og þegja alveg.

    22. apríl 2003 kl. 15:35 GMT | #

  11. Potturinn: Hvað má Már skrifa um?

    "Ef Már óttast að verða fyrir einhverju út af vinnu, á hann að skilgreina skrif sín miðað við það. Það er svo..." Lesa meira

    22. apríl 2003 kl. 15:35 GMT | #

  12. Bragi: Trúnaður

    "Már er að velta fyrir sér málfrelsi hans á netinu og hefur áhyggjur af því að vinna hans fyrir ákveðin fyrirtæki hafi áhrif á skrif hans á netinu. Þetta finnst mér ekki vera raunverulegt vandamál." Lesa meira

    22. apríl 2003 kl. 15:59 GMT | #

  13. Bjarni Rúnar svarar:

    Ég held þú sért að gera úlfalda úr mýflugu. :-) Og ég held jafnframt að það hljóti að stafa af því að einhver hafi verið leiðinlegur við þig. Legg til að þú sendir hann til mín og ég skal snúa upp á gerivörturnar á honum þar til hann lofar að vera til friðs!

    Skil í alvöru ekkert í þessu allt-eða-ekkert tali í þér, það er ekki eins og gagnrýni á fyrirtækjum og vinnuveitendum hafi vegið þungt í skrifum þínum til þessa, og sé ekki alveg af hverju þú gætir ekki sleppt bara þeim ef þetta veldur þér áhyggjum og haldið áfram að fjalla um allt hitt sem þú hefur áhuga og skoðun á.

    En svona sjálfsritskoðun er hál braut sem getur auðveldlega leitt þig út í bölvað rugl - það er nefnilega þannig að sama hvað þú segir, fallegt eða ljótt, þá er einhver ósammála þér, hvort sem um er að ræða pólitík, vefhönnun eða barnauppeldi. Það er m.a.s. líklegt að einhver sé svo ósammála þér að hann gæti ekki hugsað sér að ráða þig í vinnu vegna skoðanaágreinings um hvernig best sé að ala börnin þín upp! En ætlarðu virkilega að láta það stoppa þig?

    Þú ert bara mannlegur eins og við hin og hefur fullan rétt á að vera með og tjá "heimskulegar" og "ósanngjarnar" skoðanir ef þig langar. Þú getur ekki gert öllum til geðs og þú getur aldrei verið 100% heiðarlegur, 100% sanngjarn eða 100% sjálfum þér samkvæmur. Ef það á að verða til þess að þú leggjir niður skrif (sem ég vona að þú sért ekki að íhuga í raun og veru), þá geturðu með sömu rökum líka hætt alveg að eiga áhugaverðari samskipti við fólk heldur en létt hjál um veðrið.

    Allavegna, boðið stendur, ég er með Leatherman töngina mína við höndina og þú bara sendir fórnarlambið inní Þverholt og ég redda málinu. :-)

    22. apríl 2003 kl. 16:02 GMT | #

  14. Már Örlygsson svarar:

    Bragi, þetta snýst ekki um trúnaðarupplýsingar eða viðskiptaleyndarmál, heldur það hvort maður egi/megi/vilji almennt tala um aðila sem hafa borgað manni fyrir að vinna einhver alls ótengd verkefni. Hér er ekki um að ræða lögfræðilegt álitamál, heldur félagslegt og "viðskipta"pólitískt.

    22. apríl 2003 kl. 16:04 GMT | #

  15. Tóró svarar:

    Tökum þrjú ímynduð dæmi um komment sem tengjast hinu ímyndaða fyrirtæki A og samkeppnisaðilanum B:

    1. "A er með auglýsingaherferð í gangi. Mér finnst hún ekki hitta í mark hjá mér vegna þess að..."

    2. "Átti viðskipti við B í dag. Kom mér á óvart hvað það gekk snurðulaust fyrir sig. Kem örugglega til með að leita til þeirra aftur."

    3. "Þurfti að sækja um ... hjá A. Fékk þjónustu dauðans. Aldrei aftur. Pirr."

    4. "Þurfti að sækja um ... hjá A. Mér finnst að þeir þurfi að bæta hjá sér ... , a.m.k. var mér vísað á milli fjögurra aðila áður en ég fékk loks svarið sem mig vantaði."

    Af þessum ímynduðu færslum er að mínu viti nr. 3. sú eina sem þú gætir þurft að hugsa þig tvisvar um ef A er viðskiptavinur þinn og hugsanlega þurft að láta þér nægja að bölva í hljóði (eins og við pöpullinn gerum).

    Ef menn eru í bissniss af alvöru eiga þeir að þola rökstudda gagnrýni og hrós á samkeppnina.

    Annars tek ég undir með Bjarna (aftur) að ég held þú sért að úlfaldgera mýflugu.

    22. apríl 2003 kl. 16:17 GMT | #

  16. gunnare svarar:

    hmm... ég skil ekki alveg þessar pælingar. mér finnst þú gera heldur lítið úr stjórnendum fyrirtækja.

    ef þú sem verktaki vinnur verk fyrir fyrirtæki út í bæ og skilar góðri vinnu sem fyrirtækið er ánægt með væri það lélegur stjórnandi sem ákveður á grundvelli málefnalegrar gagnrýni á heimasíðunni þinni að hætta viðskiptum við þig.

    22. apríl 2003 kl. 17:59 GMT | #

  17. Már Örlygsson svarar:

    Ég frábið mér alla frekari úlfaldabrandara, takk fyrir.

    Þetta er viljandi dáldið órætt sett fram hjá mér (sorrí!), en ég lofa ykkur að mér er fúlasta alvara með þessum óræðu vangaveltum.

    22. apríl 2003 kl. 20:34 GMT | #

  18. Már Örlygsson svarar:

    P.S. Takk fyrir góð ráð, Tóró, Bjarni, Einar, Jósi og þið öll. Þessar vangaveltur verða meltar áfram á næstu dögum.

    22. apríl 2003 kl. 20:36 GMT | #

  19. Svansson.net svarar:

    Það er líklega líka mörg góð ráð til að minnka hættuna á árekstrum af þessu tagi. Til að mynda ekki að blogga um það að þú sért að vinna þetta verkefni fyrir fyrirtækið um svipað leyti og þú setur gagnrýni fram, það getur litið verr út í augum stjórnenda. Þú getur samt sett verkefnið í CV-ið. Og auðvitað alls ekki að tengja verkefnið þitt saman við gagnrýnina.

    Hvernig er það - gæti það bitnað á fleirum en þér ef þú missir verkefni út á slíka gagnrýni? Ef svo er ekki ættir þú kannski ekkert að stressa þig á þessu ef þú metur málfrelsið nógu mikils til að vera tilbúinn til þess að missa stöku verkefni.

    22. apríl 2003 kl. 22:13 GMT | #

  20. Svansson.net: Ritskoðaður Már?

    "TITLE: Ritskoðaður Már? URL: http://www.svansson.net/index.php?itemid=1001 IP: 130.208.165.5 BLOG NAME: Svansson.net DATE: 04/22/2003 10:40:44 PM" Lesa meira

    22. apríl 2003 kl. 22:40 GMT | #

  21. Elín Hilmarsdóttir svarar:

    Ég skil þig vel Már. Ég er reyndar nýfarin að vafra um á þessum bloggsíðum og m.a.o. takk fyrir ábendingarnar um það sem er áhugavert! Mín fyrsta hugsun var - vá - hvernig þorir þetta fólk að segja svona mikið um sig, skoðanir sínar, óskir, langanir og yfirhöfuð allt og ekki neitt. Ég hef hingað til verið ófeimin við að segja hvað mér býr í brjósti hvar og hvenær sem er - en ég svitnaði við tilhugsunina um að setja það á prent. Eins og þú sérð er ég að vinna bug á þessum ótta mínum og mig langar að svara þér. Ég held þú hafir svarað þér sjálfum í bloggi sem þú sendir einhverri konu í bloggkrísu um daginn. Hún var með efasemdir um það hversu mikið hún ætti að opinbera um samband hennar og sonar hennar. Þú svaraðir henni. Ég man ekki hvernig en ég held að það hafi snúist um það að halda trúnað í heiðri án þess að neita sjálfum sér um tjáningarfrelsi.

    Ætla ekki að segja meira í bili - en mér finnst þetta dásamleg ný tegund af tjáningarfrelsi og auðvelt að sneiða framhjá beinni umræðu um einstaka verkefni/kúnna.

    24. apríl 2003 kl. 03:52 GMT | #

  22. Vefdagbok Tryggva: Már er greinilega mikið að spá þessa dagana

    "Fyrst var Már að spá í ritskoðun og málfrelsi og núna er hann að spá í lán á hugverkum. Ég velti mér aðeins upp úr þessu í lok síðasta árs og komst að því að notkunartakmarkanir höfundaréttarhafa samræmast ekki lögum. Til dæmis..." Lesa meira

    25. apríl 2003 kl. 11:03 GMT | #

Þessum svarhala hefur verið lokað. Kærar þakkir til þeirra sem tóku þátt í umræðunni.


 

Flakk um vefsvæðið



 

Nýleg svör frá lesendum


 

 

Yfirlit yfir þetta skjal

(Atriðin í listanum vísa á ákveðna kafla ofar á síðunni.)