Forsætisráðfrú?
Það er ekki oft semþað hendir mig að auglýsing hafi áhrif á mig, en það gerist í dag. Miðjuopnan í Fréttablaðinu í dag (blaðið virðist ekki vera komið á vefinn, en ég læt vísunina standa ef það skyldi lagast) er auglýsing frá Samfylkingunni þar sem spurt er hvort ekki sé tími til að breyta til. Þarna er stillt upp passamyndum af forsætisráðherrum Íslands gegnum tíðina, ein mynd fyrir hvert ár. Þessi súpa af miðaldra körlum virkar mjög sterkt á mann, og fjandinn hafi það ef ég ætla ekki bara að skjósa Alþýðusamfylkinguna í vor. Að auki grunar mig að það sé besta leiðin til að koma VG í ríkisstjórn - miklu vænlegra til árangurs en að kjósa þá beint... :-)
P.S. ég er óendanlega ósammála VG í flestum málum, en ég hef samt átt það til að kjósa þá til að skapa sem mest mótvægi við Sjálfsstæðisflokkinn. VG eru að mínu viti flokkur hafta og banna á alla hluti, og ég fíla það ekki. Hins vegar eru þeir það eina í íslenskum stjórnmálum sem kemst nálægt því að vera vinstri-sinnaðir og ég fíla þá fyrir það. Það getur verið erfitt að vera vinstri-frjálshyggjumaður þegar í kjörklefann er komið.. :-)
Meira þessu líkt: Femínismi.
Már Örlygsson



Svör frá lesendum (10)
birgir.com svarar:
Jamm, maður kannast við þetta dilemma líberalsósíalistans. VG er of forsjárhyggjukenndur fyrir minn smekk, en Samfó of hægrisinnaður.
17. apríl 2003 kl. 13:20 GMT | #
Jósi svarar:
Ja, er Samfylkingin ekki að beita öllum ráðum til að losna við Sjallana úr stjórnarráðinu, þar á meðal að verða eins og Sjálfstæðisflokkurinn sjálfur? Mér fannst Baggalútur orða þetta helvíti vel: http://www.baggalutur.is/senda.php?ID=1690
17. apríl 2003 kl. 13:49 GMT | #
Már Örlygsson svarar:
Hehehe, gott skot hjá Baggalúti. Hins vegar má segja að ég treysti Samfó miklu betur til að fylgja stefnuskrá Sjálftökuflokksins heldur en Sjálftökuflokknum sjálfum, auk þess sem ég treysti Samfó betur til að sleppa því að styðja blóðug innrásarstríð Bandaríkjanna, og traðka á skoðanafrelsi landsmanna (og ferðamanna) á meðan kínverskur fjöldamorðingi er í opinberri heimsókn.
17. apríl 2003 kl. 15:05 GMT | #
Svansson.net svarar:
Kýstu þá ekki bara frjálslynda flokkinn eins og óánægðu sjallarnir frekar en VG?;-).
Varðandi auglýsinguna byggir hún á sama þema og sú sem Hulda gerir úttekt á á tíkinni Aumingja við http://tikin.is/default.asp?sidid=3174&trerod=003&tid=7&vefid=106&GRSID=1306
17. apríl 2003 kl. 15:45 GMT | #
Már Örlygsson svarar:
Fyndið. Mér finnst þessi grein á tíkinni vera tómur útúrsnúningur. Að sjálfssögðu var þessi auglýsing Alþýðusamfylkingarinnar glannalega orðuð (þau vildu ná athygli og fengu hana svo sannarlega) en að eyða heilli grein í að reyna að mála skrattann á vegginn hjá samfó er bara kjánalegt sandkassa skítkast. :-)
17. apríl 2003 kl. 16:12 GMT | #
Svansson.net: Opnuauglýsingin
17. apríl 2003 kl. 16:18 GMT | #
Svansson.net svarar:
Annars er það engan veginn sjálfgefið að tilgangur með þessari grein Huldu hafi verið að mála skrattann á vegginn og stunda sandkassapólitík. Ég er satt best að segja ekki frá því að auglýsingin hafi misboðið einhverjum konum/stelpum. Viðbrögð bæði Óskar|http://oskalingur.blogspot.com/20030401oskalingurarchive.html#92733286| og Bjarkar|http://bleiki.raftur.net/#92776234| benda t.d. til þess. Kannski Huldu hafi misboðið líka;-)
17. apríl 2003 kl. 16:27 GMT | #
Már Örlygsson: Frúin á miðopnunni
17. apríl 2003 kl. 16:48 GMT | #
Már Örlygsson: Móðgun, valdhroki, örvænting og niðurlæging?
25. apríl 2003 kl. 00:39 GMT | #
Sverrir svarar:
Ef þú vilt VG í ríkisstjórn þá kýstu VG. Annað er hrein sjálfsblekking.
Ef þú vilt vinstristjórn þá kýstu annan hvorn þeirra flokk sem hafa lofað því að skipta um stjórn, það er VG og Frjálslyndir. Samfylkingin treystir sér ekki einu sinni til þess að lofa því að kanna þann möguleika fyrst.
Annars dettur mér ekki í hug að reyna sannfæra þig um annað en það sem þér sýnist. Fólk fær yfirleitt þær ríkisstjórnir sem það á skilið og því verður víst seint breytt.
25. apríl 2003 kl. 11:18 GMT | #