XHTML - breytingar og minnispunktar
Síðan mín er öll orðin XHTML 1.0 samhæfð. Sjálfgefnu HTML síðurnar sem koma með Movable Type eru líka XHTML 1.0, þannig að einhverjum kann kannski að finnast þetta ómerkileg tíðindi, en ef þið skoðið kóðann á síðunni minni þá stendur ekki steinn yfir steini af upprunalega kóðanum. Í breytingaferlinu hef ég lært eftirfarandi:
- Ég komst að því að það er mikilvægt að
<?xml ...>línan og<!DOCTYPE ...>skilgreiningin birtist í línum 1 og 2 í kóðanum. Ef það bætast einhverjar tóm línubil efst í skjalinu þá er hætta á að síðan virki ekki í ýmsum smámunasömum vöfrum. Ég komst að því að
nameogidgildi verða að byrja á bókstaf en ekki tölum eða öðrum táknum. Ég bætti því bókstafnum "h" framan áidgildin sem merkja upphaf hverrar færslu á dagasíðunum í dagbókinni. Þannig breyttust ákveðnar vefslóðir hjá mér frá því að vera ".../#14:06:55" í það að vera ".../#h14:06:55".- Ég er nýhættur að skrifa
<b>og nota héðan í frá<strong>í staðinn.<b>markið er leyfilegt í XHTML 1.0 en þykir samt lummulegt því það fellur í flokk með "útlitsmörkum" á borð við<font>,<small>,<i>, etc. Ég er svo mikill nörd að ég sniðgeng markvisst öll útlitsmörk. :-) Vefslóðir með "&" táknum eru vandamál. Stök "&" merki eiga helst ekki að sjást í HTML, því "&" er notað til að tákna alls kyns skrýtna stafi á borð við © (
©) og ñ (ñ) og því er manni upp á lagt að skrifa&ef maður vill "&".Vandamálið er hins vegar að það er rík hefð fyrir því að nota "&" til að skilja að breytur í vefslóðum eins og t.d. löööngu vefslóðunum hjá RSS-molum, en ef þið skoðið HTML kóðann á þessari færslu, þá sjáið þið að ég þurfti að skipta út öllum "&" merkjunum í vefslóðinni fyrir
&. Þetta er bölvað vesen, en maður lætur sig hafa það til að tryggja að síðan manns uppfylli vefstaðla. :-)- XHTML segir að öll HTML mörk sem standa stök og "lokast" ekki utan um einhvern texta (t.d.
<br>,<hr>,<img>og<input>) þurfi núna að enda á "/>". Þannig að<br>verður<br />og<hr>verður<hr />o.s.frv. - Ég vel að nota "transitional" útgáfuna af XHTML en ekki "strict" útgáfuna af það er auðveldara og ég er hreinlega ekki viss um að ég sé tilbúinn að fórna öllu sem þarf til að uppfylla ströngu reglurnar. T.d. langar mig ofsalega að geta veitt mér ýmsan "transitional" lúxus á borð við að setja inn
<iframe>reit með RSS fyrirsögnum o.þ.h. Ég hef undanfarið reynt að venja mig á að nota alltaf
langstillinguna til að skilgreina á hvaða tungumáli textinn sem ég skrifa er.langer gott því það hjálpar lesvöfrum og leitarvélum að lesa síðuna mína.Flestar síðurnar mínar eru stilltar á íslensku í
<html>blokkinni, en svo þegar ég bregð fyrir mig smá ensku (t.d. titlar á greinum sem ég vísa á eða tilvitnanir) þá set églang="en"á markið sem inniheldur ensku setninguna. Þegar um stök orð er að ræða, þá kemst ég í smá vanda því það er ekkert<slang>mark í HTML og því hef ég brugðið á það ráð að nota hið hlutlausa<span>mark í þeim tilfellum.En nú vandast málið: XHTML vill ekki sjá
lang=""og heimtarxml:lang=""í staðinn. Þá er annað hvort að skrifa bæði (t.d.<blockquote lang="en" xml:lang="en">) eða segja "fokkit" og skipta alveg yfir íxml:langog láta eldri vafra lönd og leið. Ég hugsa að ég muni breyta yfir íxml:langtil að byrja með, en reyni kannski seinna að finna leið til að láta Movable Type bæta við samsvarandilanggildi sjálfkrafa til að hjálpa eldri vöfrum. Þetta er atriði sem fær að mæta miklum afgangi hjá mér.
Jæja, þá er ég búinn að nördast nóg í bili.
Meira þessu líkt: HTML/CSS, Um þessa síðu.
Már Örlygsson



Svör frá lesendum (4)
egill svarar:
Skv. rfc f. HTTP (að mig minnir) þá á að nota ; en ekki & til að skilja að breytur í vefslóðum.
Sjálfur hef ég hætt að nota &, og er búinn að nota ; í meira en ár og finnst mér það satt að segja læsilegra.
17. apríl 2003 kl. 01:25 GMT | #
Már Örlygsson svarar:
Ég fæ ekki séð að HTTP staðallinn segi neitt um & tákn. Hins vegar grunar mig að URL staðlarnir segi eitthvað um þetta...
Vandamálið er bara að allir vafrar í heimi setja "&" merki á milli færibreytanna sem verða til þegar maður sendir vef "form", og mig grunar að 90% af öllum forritunartólum (Javascript, CGI, etc.) geri sjálfgefið ráð fyrir "&" sem upptalningarmerki í vefslóðunum sem þær vinna með.
"&" varð ekki að vandamáli í vefslóðun fyrr en með tilkomu XML og XHTML og allra i18n pælinganna, en fram að því höfðu merkingamálin (HTML aðallega) verið svo vandlega skilgreind að það var hægt að ætla hugbúnaðinum sem las kóðann að þekkja undantekningarnar og vinna sig fram hjá þeim...
17. apríl 2003 kl. 09:12 GMT | #
egill svarar:
Ég bið forláts. Þetta átti að vera URI rfc-inn. Var syfjaður og þreyttur þegar ég var að rifja þetta upp.
Það er hægt að finna klausur um þetta í rfc númer 1738,1808,2396 o.fl.
Sem dæmi úr 2396:
The path may consist of a sequence of path segments separated by a single slash "/" character. Within a path segment, the characters "/", ";", "=", and "?" are reserved. Each path segment may include a sequence of parameters, indicated by the semicolon ";" character. The parameters are not significant to the parsing of relative references.
17. apríl 2003 kl. 12:07 GMT | #
Freyr svarar:
Bah, ég sem hélt ég væri að gera gáfulega hluti með því að herma eftir þér :)
Annars er það alltaf stefnan hjá mér að gera síðuna mína staðlaða, þó kannski ekki með jafn miklum áköfum og þú, en einhvernveginn fær heimasíðugerðin að lúta í lægra haldi fyrir svo mörgu öðru. Þetta kemur í kippum hjá mér.
20. apríl 2003 kl. 22:04 GMT | #